Author: lensherra

Leiklistarnámskeið fyrir börn og unglinga

Hin árlegu leiklistarnámskeið Leikfélags Kópavogs fyrir börn og unglinga hefjast 12. september næstkomandi og standa til loka nóvember. Námskeiðin eru annarsvegar fyrir aldurinn 11-12 ára (6.-7. bekkur) og hinsvegar fyrir 8. bekk og upp úr, þ.e. unglinga á aldrinum 13-16 ára. Námskeiðin standa í 10 vikur og verða vikulega á mánudögum kl. 16.00-17.00 fyrir yngri hóp en kl. 17.15-19.15 hjá eldri. Í lok námskeiðs sýna hóparnir stutt, frumsamin leikrit. Leiðbeinendur eru Guðmundur L. Þorvaldsson og Gríma Kristjánsdóttir líkt og á síðasta ári. Guðmundur er m.a. menntaður frá New York Film Academy auk fjölmargra námskeiða í leik og leikstjórn. Guðmundur...

Read More

Leikstjóri óskast!

Leikfélag Sauðárkróks auglýsir eftir leikstjóra fyrir haustverkefnið félagsins sem er barnaleikrit. Æfingatímabilið er frá 8. september til 20. október. Áhugasamir vinsamlega hafið samband sem fyrst við formann Leikfélags Sauðárkróks, Sigurlaugu Dóru, í síma 862-5771 eða í netfangið...

Read More

Í samhengi við Stjörnurnar! aftur á svið

Leikhópurinn Lakehouse snýr aftur á svið með margrómaða verkið Í samhengi við Stjörnurnar! fimmtudaginn 24. ágúst í Tjarnarbíó kl. 20:30. Leikritið Í samhengi við stjörnurnar eftir Nick Payne kom öllum á óvart með einlægni sinni og frumleika árið 2012 og sló í gegn á West End í London og á Broadway í New York, þar sem Jake Gyllenhaal og Ruth Wilson léku aðalhlutverkin. Verkið verður nú sýnt í fyrsta sinn á Íslandi. Það er leikhópurinn Lakehouse sem setur verkið upp á Íslandi, en forsprakki hópsins, Árni Kristjánsson, er nýkominn úr mastersnámi í leikstjórn frá Bristol. Þetta verður hans fyrsta sjálfstæða...

Read More

Leikfélag Hafnarfjarðar á leið til Mónakó

Þessa dagana standa yfir stífar æfingar á Ubba kóngi, en verkið verður sýnt í næstu viku á hinni virtu alþjóðlegu leiklistarhátíð Mondial du Théâtre í Mónakó. Leikfélag Hafnarfjarðar frumsýndi Ubba kóng eftir Alfred Jarry í leikstjórn Ágústu Skúladóttur vorið 2015.  Farið var með verkið á leiklistarhátíð í Austurríki í fyrra og nú leggur Ubbi enn á ný upp í langferð. Mondial du Théâtre er haldin í Mónakó fjórða hvert ár á vegum AITA/IATA, International Association of Amateur Theatre, og Studio de Monaco.  24 leikhópum er boðið að taka þátt hverju sinni og sýnir hver leikhópur tvisvar sinnum.  Sýningar LH...

Read More

Kæra manneskja í Tjarnarbíói

Sviðslistaverkið Kæra manneskja verður frumsýnt í Tjarnarbíói föstudaginn 1. september kl. 20:30. Hefur þú einhvern tíma tekið eftir því hvernig tilveran gengur hring eftir hring? Fyrst ertu barn, svo eignast þú kannski börn, sem eignast börn. Þú andar inn, andar út, inn, út, sífelldar endurtekningar, stórar sem smáar, hring eftir hring. Þú þarft súrefni til að lifa, en að lokum verður úr þér allur vindur. Af moldu ertu komin, að moldu skalt þú aftur verða. Þú ert nátengd náttúrunni og hringrásin þín og hennar eru samstilltar. Þú þarfnast hennar. Allt hefur áhrif, kæra manneskja, og vonandi munu þessar hugleiðingar fá...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert