Author: lensherra

Framhjá rauða húsinu og niður stigann

Verkið Framhjá rauða húsinu og niður stigann er fyrsta verkefni hins nýstofnaða atvinnuleikhóps Umskiptingar, sem staðsettur er á Akureyri. Verkið er byggt á þremur frumsömdum einleikjum sem eru fléttaðir saman til að mynda sérstæða heild. Heildarmyndin gefur svo betra samhengi fyrir þær sögur sem sagðar eru. Verkið fjallar um þrjá ófullkomna einstaklinga sem allir reyna að fóta sig í fallvöltum heimi og tekst það misvel. Persónurnar standa allar fyrir taumlausa einstaklingshyggju og önnur einkenni sem við þekkjum öll í sjálfum okkur og öðrum. Ein persónan er þjökuð af útlitsdýrkun og lágu sjálfsmati, ein heldur að öll vandamál heimsins leysist...

Read More

Naktir í náttúrunni í Þjóðleikhúsinu 15. júní

Leikfélag Hveragerðis sýnir Naktir í náttúrunni, Athyglisverðustu áhugasýningu leikársins 2016-17, í Þjóðleikhúsinu fimmtudaginn 15. júní kl. 19.30. Miðasala er í Þjóðleikhúsinu og á Tix.is . Miðaverð er 3.000 kr. Úr umsögn dómnefndar: Val Þjóðleikhússins á athyglisverðustu áhugaleiksýningu leikársins hefur nú farið fram í tuttugasta og fjórða sinn. Að þessu sinni sóttu alls ellefu leikfélög um að koma til greina við valið með tólf sýningar. Að valinu á áhugasýningu ársins komu að þessu sinni fjórir leikarar úr leikhópi Þjóðleikhússins, þau Atli Rafn Sigurðarson, Edda Arnljótsdóttir, Lára Jóhanna Jónsdóttir og Snorri Engilbertsson, ásamt Ara Matthíassyni þjóðleikhússtjóra. Fyrir valinu að þessu sinni...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert