Author: lensherra

Hellisbúinn snýr aftur

Hellisbúinn er líklega vinsælasti einleikur heims. Hellisbúinn hefur þegar verið sýndur í 52 löndum, yfir 1000 borgum og frá upphafi hafa tugir milljóna um allan heim séð Hellisbúann. Hellisbúinn snýr nú aftur til Íslands í þriðja sinn en sýningin er líklega mest selda leiksýning landsins. Yfir 105 þúsund Íslendingar hafa hlegið, grátið, og fengið ódýra hjónabandsráðgjöf hjá Hellisbúanum. Jóel Sæmundsson túlkar hinn gifta meðalmann að þessu sinni, en Jóel er sjálfur einn fyndnasti maður sem hann þekkir, að eigin sögn. Hellisbúinn er frásögn af lífinu sjálfu, hjónabandi, ástum og ósætti. Hellisbúinn útskýrir sína sýn á samlífið og samskipti kynjanna....

Read More

Ubbi kóngur sló í gegn í Mónakó

Leikfélag Hafnarfjarðar sýndi leikritið Ubba kóng dagana 29. og 30. ágúst sl. í Théâtre Princesse Grace í Mónakó á hinni virtu alþjóðlegu leiklistarhátíð Mondial du Théâtre. Hátíðin er haldin í Mónakó fjórða hvert ár á vegum AITA/IATA, International Association of Amateur Theatre, og Studio de Monaco og þykir mikill heiður að vera boðin þátttaka í henni. 24 leikhópum er boðið að taka þátt hverju sinni og er þetta í þriðja sinn sem íslenskur leikhópur er valinn til þess að sýna á hátíðinni, sem fagnaði 60 ára afmæli sínu að þessu sinni. Leikfélag Hafnarfjarðar frumsýndi Ubba kóng eftir Alfred Jarry...

Read More

Leikfélag Akureyrar æfir Kvenfólk

Leikfélag Akureyrar æfir nú í Samkomuhúsinu sýninguna Kvenfólk eftir Hund í óskilum. Í sýningunni fara þeir félagar í Hjörleifur Hjartarsson og Eiríkur Stephensen á hundavaði yfir kvennasöguna undir leikstjórn Ágústu Skúladóttur.  Sýningin verður frumsýnd þann 29. september og sýnd í október og nóvember í Samkomuhúsinu. Um Hund í Óskilum Hundur í óskilum er margrómaður og verðlaunaður dúett sem er leikhúsgestum að góðu kunnur fyrir leiksýningar sínar Sögu þjóðar sem hlaut Grímuverðlaunin árið 2012 og Öldina okkar sem gekk fyrir fullu húsi í Samkomuhúsinu og svo í Borgarleikhúsinu í kjölfarið. En Öldina okkar unnu þeir ennig með Agústu Skúladóttur. Um...

Read More

Leiklistarskólinn Opnar dyr; nýtt námskeið að hefjast

Leiklistarskólinn Opnar dyr hefur verið starfandi í rúm 9 ár og fjöldi manns hefur komið á námskeið og líst því yfir á eftir að námskeiðið hafi hjálpað þeim bæði persónulega og í starfi. „Stórkostleg upplifun & frábær skemmtun – Frábært að fá að gera eitthvað algjörlega nýtt, krefjandi og skapandi“ er meðal annars það sem nemendur hafa sagt um námskeiðið.  Ólöf Sverrisdóttir og Ólafur Guðmundsson leikarar og leiklistarkennarar stofnuðu skólann á sínum tíma en þau hafa bæði mikla reynslu af því að kenna. „Okkur fannst hreinlega vanta svona námskeið þar sem fullorðnir fengju tækifæri til að læra leiklist og...

Read More

Ubbi á leið til Mónakó

Allt er pakkað og klárt fyrir ferð Leikfélags Hafnarfjarðar á Mondial du Théâtre í Mónakó, en félagið sýnir þar Ubba kóng í næstu viku. Leikfélag Hafnarfjarðar frumsýndi Ubba kóng eftir Alfred Jarry í leikstjórn Ágústu Skúladóttur vorið 2015.  Farið var með verkið á leiklistarhátíð í Austurríki í fyrra og nú leggur Ubbi enn á ný upp í langferð. Mondial du Théâtre er haldin í Mónakó fjórða hvert ár á vegum AITA/IATA, International Association of Amateur Theatre, og Studio de Monaco.  24 leikhópum er boðið að taka þátt hverju sinni og sýnir hver leikhópur tvisvar sinnum.  Sýningar LH á Ubba...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert