Author: lensherra

Leikfélag Akureyrar býður til GRRRRRRLS danssmiðju

Leikfélag Akureyrar býður til dansvinnusmiðju fyrir stelpur á aldrinum 12-16 ára, leiðbeinandi er Ásrún Magnúsdóttir, danshöfundur. Aðspurð segir Ásrún: „Vinnusmiðjan er sprottin úr danssýningunni GRRRRRLS sem sló í gegn í Reykjavík síðasta vetur. Í sýningunni tók hópur unglingsstúlkna yfir sviðið og lét rödd sína heyrast og ljós sitt skína. Nú verður unnið með svipaðar aðferðir og voru notaðar í sýningunni.“ En hvernig fer svona vinnusmiðja fram? „Við ætlum að dansa saman, syngja saman, tala saman, hlusta á tónlist saman og bara hanga saman.“ svarar Ásrún og bætir við „við ætlum að reyna að svara spurningum einsog; Hvað þýðir samstaða...

Read More

Snertu mig ekki… „nýtt“ verk frumsýnt

Leikfélag Kópavogs frumsýnir „nýtt“ leikverk í Leikhúsinu föstudaginn 15. sept. kl. 20.00. „Nýtt“ er haft í gæsalöppum því tilurð verksins er óvenjuleg. Leikritið Snertu mig – ekki! var frumsýnd hjá Leikfélagi Kópavogs fyrir ári. Ýmsir sem sáu höfðu á orð að þá fýsti að vita meira um afdrif þremenninganna sem þar var sagt frá. Eins og fram kom í leikdómi Árna Hjartarsonar á Leiklistarvefnum: Áhorfendur klöppuðu […] aðstandendum lof í lófa … [Undirritaður] hefði þó alveg verið til í að sitja lengur og sjá meira af þessum ágætu hjónum í Kópavoginum og vinkonunni kæru og vandamálum þeirra. Leikhópurinn brást snöfurmannlega...

Read More

Leikfélag Akureyrar auglýsir eftir fósturverkefnum

Leikfélag Akureyrar auglýsir nú eftir verkefnum frá sviðslistafólki til að verða fósturverkefni Leikfélags Akureyrar. Þau sviðslistaverkefni sem verða fyrir valinu, munu verða hluti leikársins 2018-2019. Aðspurður segir Jón Páll Eyjólfsson leikhússtjóri LA að: “eitt af markmiðum LA er að rækta hæfileika ungs sviðslistafólks í frumsköpun, að vera gróðurhús fyrir hugmyndir, staður þar sem draumar rætast. Rödd ungs fólks er mikilvæg og skapa þarf tækifæri fyrir unga listamenn til að eiga stefnumót við áhorfendur”.  Hann sagði ennfremur að LA vilji að spurningum og rannsóknum borgaranna sé veittur skapandi vettvangur í leikhúsinu og að þeim markmiðum vilji leikfélagið ná með Gróðurhúsi LA. Umsóknir...

Read More

Fyrirlestur um eitthvað fallegt – gamanverk um kvíða

Leikhópurinn SmartíLab kynnir með stolti fleiri sýningar á verkinu Fyrirlestur um eitthvað fallegt – gamanverk um kvíða. Verkið var sýnt í Tjarnarbíó í vor við frábærar undirtektir áhorfenda. Fyrirlesturinn fjallar á gamansaman hátt um þetta alvarlega málefni, sem sífellt er að koma í ljós að plagar hátt hlutfall Íslendinga og heldur aftur af unga fólkinu. Þá hafa nýlegir atburðir og rannsóknir sýnt að geðsjúkdómar almennt, og kvíði sérstaklega, eru stórt samfélagsleg vandamál. Með leikritinu vill hópurinn leggja sitt af mörkum til málefnisins, opna á umræðuna, fjarlægja tabúið og fá fólk til að tala upphátt um vandamálið. Endurfrumsýning verður föstudaginn...

Read More

Leiklistarverkefni í Menntaskólanum á Egilsstöðum

Auglýsing frá Menntaskólanum á Egilsstöðum: Blessuð öll. Okkur vantar leikstjóra í verkefni austur á Egilsstaði nú seinna í haust og vetur. Verkefnið er tvíþætt: Annars vegar að kenna grunnáfanga í sviðslistum fyrir nemendur ME. Ca 15 – 20 nemendur. 50% staða í 7 vikur. Laun ca 450.000 í verktöku. Það tímabil er frá ca 20 október til ca 10 desember 2017. Síðan er uppsetning leikverks/söngleiks í samvinnu við Leiklistarfélag ME frá byrjun janúar, Þar sem stefnt er á sýningar í byrjun mars 2018. Laun ca 1.200.000 í verktöku. Húsnæði í boði. Nánari upplýsingar gefur. Árni Ólason Skm ME...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert