Leikfélag Akureyrar frumsýnir Kvenfólk
Leikfélag Akureyrar frumsýnir þann 29. september 323. sviðsetningu félagsins. Verkið er nýtt íslenskt sviðsverk eftir Hund í óskilum sem ber titilinn Kvenfólk. Dúettinn Hund í óskilum skipa þeir Hjörleifur Hjartarsson og Eiríkur Stephensen, en þeir eru bæði höfundar og flytjendur verksins, þeir eru þó ekki alveg einir á báti heldur njóta fulltingis kvennahljómsveitar í sýningunni. Í Kvenfólk fara þeir Hjörleifur og Eiríkur á hundavaði yfir kvennasöguna undir leikstjórn Ágústu Skúladóttur. Sýningin verður sýnd í október og nóvember í Samkomuhúsinu. Um Hund í Óskilum Hundur í óskilum er margrómaður og verðlaunaður dúett sem er leikhúsgestum að góðu kunnur fyrir leiksýningar sínar Sögu þjóðar sem hlaut Grímuverðlaunin árið 2012...
Read More


