Author: lensherra

Vertu svona kona

Leikfélag Selfoss æfir nú af fullum krafti leikritið Vertu svona kona í leikstjórn Guðfinnu Gunnarsdóttur. Í verkinu er viðfangsefnið konan í sögunni og sagan í konunni. Leikritið er sameiginleg sköpun hópsins og leikstjórans þar sem inn í fléttast textar eftir Margaret Atwood. Öll tónlist og hljóðmynd er í höndum Kristjönu Stefánsdóttur. Stefnt er að frumsýningu 3. nóvember og sýningar verða 8 talsins. Alls taka 12 leikarar þátt í sýningunni ásamt frábæru tækniteymi. Fyrir um það bil þremur vikum síðan kom hópurinn saman, deildi reynslusögum, lygasögum, ástarsögum og gamansögum. Það hefur svo verið í höndum Guðfinnu leikstjóra og Jónheiðar aðstoðarleikstjóra...

Read More

Ársritið 2016-17 er komið út

Ársrit Bandalags íslenskra leikfélaga leikárið 2016–2017 er nú komið út og birt hér á Leiklistarvefinum. Í ritinu eru að finna allar helstu upplýsingar um starfsemi Bandalags íslenskra leikfélaga og aðildarfélaga þess á síðastliðnu leikári. Að venju prýða ritið margar myndir héðan og þaðan úr starfinu. Hér má nálgast ársritið. Þeir sem vilja fá ársritið útprentað geta pantað það með því að senda póst á info@leiklist.is. Útprentað og gormað kostar ritið 4.000 kr. Pantanir þurfa að hafa borist fyrir 23. október...

Read More

Söngur og leikur í Hveragerði í 70 ár

Leikfélag Hveragerðis frumsýnir söngdagskrána Söngur og leikur í 70 ár, föstudaginn 13. október kl. 20.00 í Leikhúsinu Austurmörk 23, Hveragerði. Flutt verða lög úr leikritum sem leikfélagið hefur sýnt á undanförnum árum, t.d. Saumastofunni, Þið munið hann Jörund, Þrek og tár, Línu Langsokk, Dýrunum í Hálsaskógi og fleirum. Þriggja manna hljómsveit undir stjórn Guðmundar Eiríkssonar sér um undirleik. Söngvarar eru 15 – 20 með einsöng og kórsöng. Leikfélagið hefur fengið bíóstóla úr Austurbæjarbíói og sett í salinn þannig að nú er frábært að eiga í húsinu þægilega og skemmtilega kvöldstund og ekki skemmir fyrir að húsið hefur fengið vínveitingaleyfi....

Read More

Þú kemst þinn veg, leikrit um geðklofa

Þú kemst þinn veg verður sýnt á Akureyri í tilefni af alþjóða geðheilbrigðisdeginum. Leikverkið Þú kemst þinn veg byggir á sögu Garðars Sölva Helgasonar sem glímir við geðklofa en tekst á við erfiðleikana á einstakan og heillandi hátt með umbunakerfi sem hann hefur tileinkað sér. Verkið er í senn gefandi, frelsandi og fyndið, en auk þess veitir það einstaka innsýn í lífsbaráttu manns með geðsjúkdóm. Batann og bakslögin, líf á ofsahraða og líf einn dag í einu. Í leikverkinu fylgjumst við með persónunni Guðmanni halda fyrirlestur um Garðar Sölva besta vin sinn og umbunakerfið hans. Fyrirlesturinn tekur heldur óvænta...

Read More

„Mamma er dáin – komið strax – Inga“

Leikfélag Ölfuss æfir nú af krafti Blessað barnalán eftir Kjartan Ragnarsson í leikstjórn Gunnars Björns Guðmundssonar. Leikarar að þessu sinni eru: Helena Helgadóttir, Ásta Margrét Grétarsdóttir, Róbert Karl Ingimundarson, Aðalsteinn Jóhannesson, Ingólfur Arnarson, Erla Dan Jónsdóttir, Jóhanna Hafdís Leifsdóttir, Oddfreyja H. Oddfreysdóttir, Kristín Svanhildur Helgadóttir, Kolbrún Dóra Snorradóttir, Ragnhildur Ýr Gunnarsdóttir og Árný Leifsdóttir. Þetta er í fjórða skipti sem Gunnar Björn leikstýrir hjá LÖ en áður hefur hann sett upp verkin Blúndur og blásýra, Maður í mislitum sokkum og Himnaríki. Blessað barnalán fjallar um Þorgerði gömlu sem á fimm uppkomin börn en gamla konan þráir ekkert heitar  að...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert