Author: lensherra

Leikstjórn með ungu fólki

Námskeið í samstarfi Símenntunar Háskólans á Akureyri og Listaháskóla Íslands. Fyrir hverja: Námskeiðið nýtist kennurum, listafólki og þeim sem vinna að leiklist með börnum og ungmennum. Í námskeiðinu verður veitt innsýn í starf leikstjórans í gegnum verklegar æfingar og hópvinnu. Nemendur fá tækifæri til þess að sviðsetja stuttar senur undir leiðsögn atvinnuleikstjóra. Sérstök áhersla verður lögð á aðferðir sem hæfa vinnu með börnum og ungu fólki. Kennari: Bjarni Snæbjörnsson. Bjarni Snæbjörnsson er menntaður leikari (LHÍ 2007) og er með MA gráðu í leiklistarkennslu frá Listaháskóla Íslands (2015). Hann hefur verið fastráðinn leiklistarkennari í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ síðastliðin ár þar sem hann...

Read More

Opinn samlestur á Rocky Horror

Í dag, fimmtudaginn 18. janúar, verður opinn samlestur á söngleiknum Rocky Horror á Stóra sviði Borgarleikhússins og munu leikarar lesa verkið ásamt því að syngja lögin við píanóundirleik. Samlesturinn hefst kl. 13 og eru gestir velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Sýningin verður frumsýnd föstudaginn 16. mars. Eins og áður hefur komið fram þá fer Páll Óskar Hjálmtýsson með hlutverk Frank N Furter, en aðrir leikarar eru Arnar Dan Kristjánsson, Björn Stefánsson, Brynhildur Guðjónsdóttir, Haraldur Ari Stefánsson, Katla Margrét Þorgeirsdóttir, Vala Kristín Eiríksdóttir, Valur Freyr Einarsson og Þórunn Arna Kristjánsdóttir. Þá fer söngvarinn Valdimar Guðmundsson með hlutverk Eddie í sýningunni....

Read More

Sex í Hörgársveit

Leikfélag Hörgdæla hefur hafið æfingar á farsanum Sex í sveit eftir Marc Camelotti. Leikstjóri er Hörður Sigurðarson og er frumsýning áætluð 1. mars. Sex leikarar taka þátt í uppsetningunni. Eiginkonan Þórunn er óvænt í bústaðnum þegar eiginmaðurinn Benedikt á von á viðhaldinu yfir helgina og hann fær besta vininn Ragnar til að þykjast vera kærasti hennar til bjarga málum. Leikurinn æsist þegar Ragnar tekur feil á kærustunni Sóley og kokknum Sólveigu sem var ráðin til matseldar yfir helgina. Framhjáhald, misskilningur, afbrýðisemi og ísmolar ráða ríkjum í farsa eins og þeir gerast bestir. Sex í sveit er sívinsæll farsi í...

Read More

Glanni glæpur í Hveragerði

Leikfélag Hveragerðis frumsýnir leikritið Glanni Glæpur í Latabæ eftir Magnús Scheving og Sigurð Sigurjónsson í Leikhúsinu, Austurmörk 23 í Hveragerði laugardaginn 20. janúar nk. Söngtextar: Karl Ágúst Úlfsson. Tónlist: Máni Svavarsson. Leikstjóri: Guðmundur Lúðvík Þorvaldsson. Laugardagur 20. janúar  kl. 14.00 – frumsýning 2. sýning sunnudagur 21. janúar  kl: 14:00 3. sýning laugardagur 27. janúar kl: 14:00 4. sýning sunnudagur 28. janúar  kl: 14:00 5. sýning laugardagur 3. febrúar kl: 14:00 6. sýning sunnudagur 4. febrúar  kl: 14:00 Miðaverð kr. 3.000 fyrir fullorðna og kr.1.500 fyrir börn yngri en 12 ára. Miðapantanir í síma 863 85...

Read More

Heimafólk kitlar hláturtaugar Norðlendinga

Sýna 37 leikrit á 97 mínútum. Æfingar eru hafnar á gamanleiknum Sjeikspír eins og hann leggur sig hjá Leikfélagi Akureyrar. Að verkinu kemur bæði heimafólk og fólk sem hefur áður gert sig heimakomið á Akureyri. Vandræðaskáldin norðlensku Vilhjálmur Bergmann Bragason og Sesselía Ólafsdóttir setja sterkan svip á uppsetninguna, þar sem þau hafa samið nýja tónlist fyrir verkið. Auk þess þýddi Vilhjálmur verkið og aðlagaði en Sesselía fer með eitt þriggja hlutverka þess. Raunar er ef til vill réttara að segja að hún sé einn af leikurum þess, því hver leikari þarf auðvitað að bregða sér í fjölmörg hlutverk þegar...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert