Galdrakarlinn í OZ í Tjarnarbíó
Laugardaginn 6. janúar frumsýnir Leikhópurinn Lotta barnaleikritið Galdrakarlinn í OZ í Tjarnarbíó. Leikhópurinn Lotta er landsmönnum að góðu kunnur en síðastliðin ellefu sumur hefur hópurinn ferðast með útileiksýningar út um allt land. Á hverju ári setur hópurinn upp nýjar sýningar, sýningar sem allar hafa slegið í gegn og eru enn spilaðar af geislaplötum á fjöldamörgum heimilum. Núna hefur Lottan ákveðið að dusta rykið af þessum gömlu sýningum og endurvekja þær, 10 árum síðar og nú innandyra. Við byrjum því á byrjuninni, á Galdrakarlinum í Oz sem er fyrsta verkið sem sérstaklega var skrifað fyrir Lottu. Galdrakarlinn í Oz var frumsýndur...
Read More


