Author: lensherra

39 og 1/2 vika í Lyngbrekku

Leikdeild Skallagríms frumsýnir leikritið 39 og ½ vika eftir Hrefnu Friðriksdóttur þann 16. febrúar næstkomandi. Hrund Ólafsdóttir leikstýrir. Miðasala hefst 1. febrúar og kostar miðinn 3000 kr. Hægt er að panta miða í síma 8462293 eða á leikdeildskalla@gmail.com. Posi og veitingasala á staðnum. Félagið er á snapchat og þar er hægt að fylgjast aðeins með æfingum hjá hópnum, leitið að leikdeildskalla á snapchat. Svo er hægt að skoða facebook síðuna okkar: https://www.facebook.com/leikdeildskalla...

Read More

Maður í mislitum sokkum í Halanum

Halaleikhópurinn frumsýnir leikritið Maður í mislitum sokkum eftir Arnmund Backman í leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar föstudaginn 2. feb. nk. Leikritið fjallar um ekkju sem býr í eldriborgara blokk. Dag einn er hún kemur út úr Bónus situr ókunnur maður í farþegasætinu i bílnum hennar. Maðurinn veit ekki hvað hann heitir, hvar hann býr eða hvert hann er að fara en hann er í mislitum sokkum. Af ótta við almenningsálitið ákveður ekkjan að taka hann með sér heim. Vinkonur hennar og eiginmenn þeirra fléttast inn í málið með tilheyrandi vandræðagangi. Úr þessu tvinnast síðan kostuleg og bráðskemmtileg atburðarás með litríkum karakterum,...

Read More

Ahhh … Ástin er …

 … að halda jafnvægi Nei fokk … Ástin er að detta Frumsýning í Tjarnarbíói föstudaginn 9. febrúar kl. 20:30. Ljóðrænn, fyndinn og kynþokkafullur kabarett um vegi og vegleysur ástarinnar.  Með texta Elísabetar Jökulsdóttur að vopni, mun RaTaTam syngja, dansa og leika sér í gegnum margvíslega heima ástarglóðanna. Í textum Elísabetar er löngun manneskjunnar eftir ást í forgrunni.  Löngunin í að tilheyra, vera elskaður og fá að elska. Þrá og löngun líkamans í að vera uppfullur af fiðringi og spenningi fyrir annarri manneskju. Elísabet hefur þann einstaka hæfileika að fjalla um hluti sem við öll könnumst við á mannlegan og heiðarlegan...

Read More

Ólafur Egill leikstýrir Sjeikspír eins og hann leggur sig

Ólafur Egill Egilsson hefur verið ráðinn til að leikstýra verkinu Sjeikspír eins og hann leggur sig hjá Leikfélagi Akureyrar. Ólafur hefur getið sér gott orð sem leikstjóri, leikari og handritshöfundur frá því hann útskrifaðist frá leiklistardeild Listaháskóla Íslands vorið 2002. Nú síðast skrifaði Ólafur, ásamt Gísla Erni Garðarssyni, handrit söngleiksins Elly sem notið hefur fádæma vinsælda auk þess sem hann leikstýrði Kartöfluætunum eftir Tyrfing Tyrfingsson og eigin leikgerð á verkinu Brot úr hjónabandi en báðar uppsetningar hafa hlotið einróma lof gagnrýnenda og leikhúsgesta. Þetta verða ekki fyrstu kynni Akureyringa af Ólafi, þar sem hann lék þjófaforingjann Fagin í eftirminnilegri...

Read More

Fróði og allir hinir grislingarnir

Æfingar eru hafnar hjá Leikfélagi Kópavogs á leikritinu Fróði og allir hinir grislingarnir eftir Ole Lund Kirkegaard,  í þýðingu Aðalsteins Ásbergs Sigurðssonar með lögum eftir Valgeir Skagfjörð. Leikfélag Kópavogs frumsýndi leikritið árið 1989 í leikstjórn Valgeirs en nú leikstýrir Örn Alexandersson sýningunni en hann lék í uppfærslunni á sínum tíma. Stefnt er að því að frumsýna í byrjun...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert