Glæpir og góðverk á Selfossi
Um þessar mundir fagnar Leikfélag Selfoss 60 ára afmæli og stendur félagið fyrir afar glæsilegri dagskrá á afmælisárinu. Stífar æfingar standa nú yfir á aðalsýningu leikársins sem er fjölskyldugamanverkið Glæpir og góðverk í leikgerð Sigrúnar Valbergsdóttur, byggt á leikriti Anton Delmar. Verkið segir frá þremur hjartagóðum systrum sem erfa húsnæði eftir bróður sinn. Systurnar þrjár þrá aðeins það eitt að hjálpa náunganum með smá aðstoð frá almættinu, skiptir þá engu hver sá náungi er og koma þær sér þannig jafnan í spaugilegar aðstæður. Einn af þeim er Breki Brjánn Búason eða Breyskur, fyrrverandi fangi sem systurnar skjóta skjólshúsi yfir...
Read More


