Snúður og Snælda sýnir Rauðu klemmuna
Leikfélagið Snúður og Snælda er nú að hefja sitt 21. leikár. Það má því segja að leikfélagið sé búið að slíta barnsskónum. En á síðasta ári hélt það upp á 20 ára afmælið með sýningu á Nakinn maður og annar í kjólfötum eftir Dario Fo. Að þessu sinni býður félagið upp á leikritið Rauða klemman eftir Hafstein Hansson. Verkið gerist á lítilli veitingastofu þar sem óvæntan gest ber að garði sem reynir að auðgast á kostnað annarra. Afar kunnulegt stef. Frumsýnt verður í Iðnó n.k. sunnudag, 20. febrúar, kl. 14.00. Hér er á ferðinni gamanleikur þar sem alls konar...
Read More


