Year: 2011

Blessað barnalán í Hveragerði

Leikfélag Hveragerðis æfir nú af kappi leikritið Blessað barnalán eftir Kjartan Ragnarsson. Leikstjóri er Sigurður Blöndal sem enn á ný leggur Leikfélaginu  til krafta sína. Fyrsta leikritið sem hann leikstýrði fyrir 10 árum síðan var Týnda teskeiðin, líka eftir Kjartan. Hann leikstýrði einnig  Emil í Kattholti, Dýrunum í Hálsaskógi og Kardemommubænum hjá Leikfélaginu sem öll hafa náð metaðsókn. Leikarar eru 11 og með helstu hlutverk fara Hafdís Guðmundsdóttir, Aðalheiður Ásgeirsdóttir, Guðmundur Erlingsson og Viktoría Kristinsdóttir. Til gamans má geta þess að tvær dætur Viktoríu þær Þórey og Aðalheiður fara einnig með hlutverk í leiknum. Þórey sem er ung að...

Read More

Góðverk á Gjaldeyri

Halaleikhópurinn Góðverkin kalla Leikstjórar: Margét Sverrisdóttir og Oddur Bjarni Þorkelsson Leiðin til vítis er vörðuð góðum ásetningi segir einhversstaðar og því má snúa upp á leikritið Góðverkin kalla sem Halaleikhópurinn frumsýndi um liðna helgi. Leikritið sem er eftir þá Ármann Guðmundsson, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason, gerist í þorpinu Gjaldeyri við Ystunöf og bakgrunnurinn í verkinu er hörð samkeppni karlaklúbbanna Dívans og Lóðarís. Klúbbarnir keppast hvor við að yfirbjóða hinn í góðverkunum og fórnarlambið er sjúkrahúsið sem er að fyllast af allskyns nýtísku lækningatækjum sem enginn veit til hvers eru. Enginn hlustar á aumingja héraðslækninn sem aðeins vantar nýja...

Read More

Leikhúsnámskeið hjá Endurmenntun HÍ

Endurmenntun HÍ stendur fyrir þremur námskeiðum tengdum leiklist nú á vorönn. Hlín Agnardsdóttir, rithöfundur og leikstjóri, heldur tvö námskeið í leikritun, bæði grunn- og framhaldsnámskeið. Jón Viðar Jónsson leikhúsfræðingur, heldur námskeið sem hann kallar „úr heimi sviðslistanna“ þar sem hann fer í gegnum leiklistarsöguna í máli og myndum. LeikritunÁ þessu námskeiði gefst áhugasömum kostur á að kynnast nokkrum grundvallaratriðum leikhúss og leikritunar eins og persónusköpun, dramatískri framvindu og samtalstækni. Þátttakendur námskeiðsins skapa og skrifa leiktexta í tímum undir leiðsögn kennara. Stefnt er að því að þátttakendur skrifi um 10-15 mín. langt verk sem kynnt verður í lok námskeiðs.
Kennari: Hlín...

Read More

Ársrit BÍL 2009-10 komið út

Eftir allnokkra töf vegna innbrots er Ársrit Bandalagsins 2009–2010 loksins komið út. Reyndar er það fyrst og fremst aðgengilegt hér á netinu og er hægt að hala því niður sér að kostnaðarlausu. Þó er hægt að kaupa útprentuð eintök á 1500 kr. í þjónustumiðstöð Bandalagsins, Suðurlandsbraut 16 (eða panta og fá sent í póstkröfu á info@leiklist.is). Efni ritsins er hefðbundið, yfirlit á sýningar aðildarfélaga og aðra starfsemi, ársreikningar, fundargerðir o.þ.h., en einnig er umfjöllun um Stuttverkahátíðina Margt smátt 2009 á Seltjarnanesi. Ársritið má nálgast hér á PDF formi. Stærðin er 4.2...

Read More

Með fullri reisn í Hörgárdalnum

Leikfélag Hörgdæla hefur hafið æfingar á leikritinu Með fullri reisn eftir Terrance McNally. Leikritið er þýtt af Karli Ágústi Úlfssyni og leikstýrt af Jóni Gunnari Þórðarssyni og hefur hann ásamt leikurum  staðfært verkið heim í Hörgárdalinn. Um er að ræða bændur sem sjá sér þann kost vænstan í kreppunni að drýgja tekjurnar með því að halda konukvöld þar sem fötum mun fækka. En hversu langt verður gengið? Það mun allt  koma í ljós þegar leikritið verður frumsýnt í byrjun mars að Melum í Hörgárdal.   Verkið telur í kring um 20 leikara ásamt fjölda fólks sem kemur að því...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert