Frestur til að skrá sig á aðalfund er til 15. apríl
Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga verður haldinn í Bæjarleikhúsinu Mosfellsbæ dagana 30. apríl og 1. maí 2011. Frestur til að skrá sig á fundinn rennur út 15. apríl. Einþáttungahátíð verður haldin á sama stað föstudaginn 29. apríl og rennur frestur til að tilkynna þátttöku með leikverk einnig út 15. apríl. Dagskrá aðalfundar er í lögum Bandalagsins. Samhliða aðalfundi fer fram sýning á leikskrám og veggspjöldum leikársins 2009-2010 og val Þjóðleikhússins á Athyglisverðustu áhugasýningu leikársins verður að venju kynnt á hátíðakvöldverðinum. Dagskrá:Föstudagur 29. apríl: 14.00 Einþáttungahátíð sett í Bæjarleikhúsinu19.00 Kvöldverður í Bæjarleikhúsinu20.00 Einþáttungahátíð fram haldið 23.00 Lok Laugardagur...
Read More


