Year: 2011

Gaukssaga sýnd í Félagsheimilinu Árnesi

Sagan um Gauk Trandilsson í Stöng var til, hana átti að rita eftir Njálu í Möðruvallabók, en því miður er sagan nú glötuð. Annað hvort brann hún í handritabrunanum mikla í Köbenhavn eða bókin sökk með handritaskipi því er fórst í hafi á þrettándu öld. En nú hefur Vilborg Halldórsdóttir leikkona- og leikstjóri bætt úr þessu, skrifað leikverk um ævi og ástir Gauks sem leikdeild Ungmennaféalgs Gnúpverja sýnir nú í leikstjórn hennar í félagsheimilinu Árnesi.   Gauk Trandilsson leikur Þórður Freyr Gestsson og Þuríði Arngeirsdóttur húsfreyju á Steinastöðum leikur Edda Pálsdóttir. Tónlistarstjórn er í höndum Þórdísar Heiðu Kristjánsdóttur tónlistarmiðlara,...

Read More

Einn koss enn og ég segi ekki orð við Jónatan sýnt í Miðfirði

Leikfélag ungmennafélagsins Grettis á Laugarbakka í Miðfirði frumsýndi í lok mars farsann Einn koss enn og ég segi ekki orð við Jónatan eftir Marc Camoletti í þýðingu Sigurðar Atlasonar. Leikstjóri sýningarinnar er Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir. Páskasýning verður laugardag fyrir páska 23. apríl í félagsheimilinu Ásbyrgi á Laugarbakka.   Farsinn fjallar um erkipiparsveininn Jónatan.  Hann á þrjár konur sem allar eru flugfreyjur og vita þær ekki hver af annarri. Allt gengur þetta vel þar til flugfélögin fá nýjar, hljóðfráar þotur sem eru mikið fljótari í förum, en þá riðlast allt skipulag í lífi Jónatans. Ekki bætir úr skák að félagi...

Read More

Fúsi froskagleypir í Hafnarfirði

Leikfélag Hafnarfjarðar frumsýndi 2. apríl barnaleikritið Fúsa Froskagleypi eftir Ole Lund Kirkegaard í Gaflaraleikhúsinu. Verkið er bráðfjörugt barna og fjölskylduleikrit með skemmtilegri tónlist Jóhanns Moravek undir leikstjórn Bjarkar Jakobsdóttur. Leikritið  var frumsýnt hjá félaginu fyrir 25 árum í Bæjarbíó við fádæma vinsældir. Yfir 20 leikarar og tónlistarmenn taka þátt í sýningunnni sem afar litrík og hressileg. Söguþráðurinn fjallar á gamansaman hátt um samskipti Fúsa Froskagleypis við krakka og bæjarbúa í Hafnarfirði og hvernig heimsókn Bardínó Sirkussins til bæjarins breytir miklu í lífi allra. Hér má sjá umfjöllun um sýninguna og viðtöl við þátttakendur á gaflari.is Hægt er að panta...

Read More

Bjart með köflum frumsýnt 8. apríl

Þjóðleikhúsið frumsýnir þann 8. apríl, Bjart með köflum, nýtt leikrit með söngvum eftir Ólaf Hauk Símonarson. Ólafur Haukur hefur skrifað mörg geysivinsæl leikrit sem sýnd hafa verið í Þjóðleikhúsinu á síðustu áratugum, meðal annars Gauragang, Þrek og tár, Hafið, Græna landið og Bílaverkstæði Badda, sem voru sett á svið undir stjórn Þórhalls Sigurðssonar. Þeir félagar færa okkur nú glænýtt og kraftmikið leikrit með sívinsælli tónlist frá ofanverðum sjöunda áratugnum. Árið 1968 er ungur piltur úr Reykjavík, Jakob, sendur í sveit að bænum Gili þar sem nútíminn virðist enn ekki hafa haldið innreið sína, og fjölskyldan stritar við að yrkja...

Read More

Perluportið – óperuskemmtun fyrir alla fjölskylduna

Fjórir heimilisleysingjar gramsa í ruslatunnum í óhrjálegu porti. Hverjum hefði dottið í hug að þar leyndust skínandi perlur óperubókmenntanna? Tónlist úr óperum á borð við Brúðkaup Fígarós, Gianni Schicchi, La traviata, Cosi fan tutte, Rakarann í Sevilla – og að sjálfsögðu Perlukafarana, öðlast nýtt líf í stórskemmtilegu sýningu úr smiðju Ágústu Skúladóttur (Ballið á Bessastöðum, Ástardrykkurinn, Klaufar og kóngsdætur) og félaga, sem frumsýnd verður í Íslensku óperunni föstudaginn 8. apríl næstkomandi. Fylgist með nokkrum af færustu söngvurum Íslands flytja ódauðleg meistaraverk í sprellifandi og sprenghlægilegum búningi! Hér er jafnframt um að ræða síðasta verkefni Íslensku óperunnar í húsnæði sínu...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert