Year: 2011

Svefnlausi brúðguminn aftur á Króknum eftir 41 ár

Liðsmenn Leikfélags Sauðárkróks æfa nú af kappi gamanleikinn Svefnlausa brúðgumann eftir Arnold og Bach í þýðingu Sverris Haraldssonar. Leikstjóri er Jakob S. Jónsson, sem einnig gerði nýja leikgerð af handriti og staðfærði, en alls koma á þriðja tug manna að sýningunni. Frumsýnt verður í félagsheimilinu Bifröst 1. maí næstkomandi en það er einmitt opnunardagur Sæluvikunnar 2011. Leikritið fjallar um nýgift hjón sem lenda óvæntri uppákomu í brúðkaupsferðinni. Málin flækjast svo stig af stigi eins og góðum farsa sæmir, en enginn hlýtur þó varanlegan skaða af. Yfirsmiður leikmyndar er Indriði Ragnar Grétarsson, lýsingu hannar Guðbrandur Ægir Ásbjörnsson en búningar eru...

Read More

Metaðsókn á Melum í Hörgárdal

Leikfélag Hörgdæla sýnir um þessar mundir leikritið Með fullri reisn fyrir fullu húsi kvöld eftir kvöld. Þegar hafa verið sýndar 18 sýningar en áætlaðar eru 30 sýningar. Uppselt er á þær allar og nokkur hundruð manns eru á biðlista. Það stefnir í að áhorfendafjöldi verði hátt í 3.000 manns. Síðasta sýning verður 7. maí, en það verður þrítugasta sýning. Leikarar í sýningunni eru flestallir bændur í Hörgársveit og þegar komið er fram í maí verður að hætta sýningum þar sem sauðburður verður kominn í fullan gang. Þeim sem ekki komast á sýninguna er bent á að á vef Hörgársveitar...

Read More

Frábær leiksýning frá Færeyjum sýnd í Gaflaraleikhúsinu

Leikhópurinn Royndin úr Nólsoy í Færeyjum sýndi leikritið Havgird í leikstjórn Ágústu Skúladóttur á leiklistarhátíð NEATA á Akureyri í ágúst 2010. Verkið er frumsamið og handritið skrifaði Ágústa, að einhverju leyti í samstarfi við leikhópinn. Efni sýningar er áhugavert og stendur okkur nærri, bæði á Íslandi og í Færeyjum. Hafið. Nánar tiltekið, hvað verður um þá sem týnast á hafi úti? Sigríður Lára Sigurjónsdóttir lýsir hér upplifun sinn af sýningunni a sýningunni. Í handritinu er að finna gott samspil margra áhrifaríkra þátta. Grín, jafnvel með uppistandsívafi á stöku stað, áhrifamikinn harm og dulúð. Umhverfismál skjóta líka upp kollinum. Í...

Read More

Síðustu sýningar hjá Leikfélagi Selfoss

Nú fer hver að verða síðastur að sjá Hið dullarfulla hvarf Hollvinafélagsins hjá Leikfélagi Selfoss. Aðeins eru eftir tvær sýningar, fimmtudaginn 14. apríl og föstudaginn 15. apríl. Um er að ræða gamansamt spunaverk sem unnið var í samvinnu leikhóps og leikstjóra, en leikstjóri er Gunnar Björn Guðmundsson.  Verkið fjallar um Hollvinafélag sunnlenskra þjóðsagna sem heldur af stað í ferðalag á slóðir sunnlenskra þjóðsagna. Undarlegir atburðir fara að gerast og einn af öðrum byrja meðlimir félagsins að hverfa með dularfullum hætti....

Read More

Skráningu í Leiklistarskóla Bandalagsins lýkur 15. apríl

Enn eru laus pláss á námskeiðin í Leiklistarskóla Bandalagsins sem haldinn verður að Húnavöllum í A-Húnasvatnssýslu dagana 11.-19. júní. Námskeiðin sem boðið verður upp á eru leikstjórn II sem Sigrún Valbergsdóttir kennir, leiklist II sem Ágústa Skúladóttir kennir og leiklist fyrir reynda áhugaleikara sem Steinunn Knútsdóttir kennir. Frestur til að skrá sig er til 15. apríl. Nánari upplýsingar um námskeiðin má sjá hér....

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert