Draumurinn sýndur í Borgarbyggð
Draumurinn gleðileikur með söng og dansi byggður á verki Shakespeares Draumi á Jónsmessunótt frumsýndur í Borgarbyggð föstudaginn 8.júlí kl.20:00 í Valfelli. Listasmiðjan bak við eyrað frumsýnir verkið í samstarfi við Tónlistarskóla Borgarbyggðar, Dansskóla Evu Karenar og sveitarfélagið Borgarbyggð. Það er Ása Hlín Svavarsdóttir leikstjóri og mastersnemi í við Listaháskóla íslands sem gerir leikgerðina og setur verkið á svið. Þátttakendur í sýningunni eru á aldrinum 8-16 ára og sjá þeir um flesta þætti sýningarinnar, leik, söng, hljóðfæraleik og dans. Listasmiðjan fékk veglegan styrk frá Menningarráði Vesturlands á vormánuðum sem gerði hópnum kleift að leggja útí uppsetninguna. Eins og í frumverki...
Read More


