Kona einsömul frumsýnt í Gaflaraleikhúsinu
Á kvennréttindadaginn, þann 19. júní næstkomandi, verður einleikurinn Kona Einsömul eftir leiklistarfrömuðinn Dario Fo og konu hans Franca Rame í þýðingu Aldísar Davíðsdóttur frumsýndur. Aldís fer einnig með einleik undir leikstjórn Guðjóns Þorsteins Pálmarsonar. Verkið tekur á réttindum kvenna á gamansaman hátt þar sem gert er grín af yfirgangssemi karlmanna og því hvernig konur eiga til að láta kúga sig. Einleikurinn fjallar um konuna Maríu og hvernig líf hennar breytist skyndilega þegar hún eignast nágrannakonu sem flytur í íbúðina á móti henni. Á milli glugga deilir hún með henni hversu æðislegt líf hennar er en brátt kemur í ljós...
Read More


