Góðir hálsar á Snæfellsnesi
Góðir hálsar er leiksýning eftir Kára Viðarsson þar sem rakin er saga Axlar-Bjarnar. Sýningin er súrrealísk syndaaflausn með karíókíívafi þar sem áhorfendur fá tækifæri til að sjá mannlegu hliðina á manni sem hingað til hefur verið talinn geðsjúkur raðmorðingi. Leiksýningin verður sú fyrsta í nýju leikhúsi sem nú rís í gamalli fiskvinnslu í Rifi á Snæfellsnesi. Leikhúsið ber heitið Frystiklefinn og verður aðstaðan formlega opnuð í nóvember næstkomandi. Sýningin og uppsetning leikhússins er samofið verkefni sem hlaut frumkvöðlastyrk Evrópu unga fólksins á þessu ári. Höfundur: Kári Viðarsson Leikarar: Alexander Roberts, Ingi Hrafn Hilmarsson, Kári Viðarsson og Snædís Ingadóttir Leikstjórar: Kári...
Read More


