Fúsi froskagleypir snýr aftur
Leikfélag Hafnarfjarðar hefur hafið á ný sýningar á barnaleikritinu Fúsa Froskagleypi eftir Ole Lund Kirkegaard í Gaflaraleikhúsinu. Sýningin sló í gegn síðasta vetur og þurfti að hætta sýningum fyrir fullu húsi í vor. Verkið er bráðfjörugt barna og fjölskylduleikrit með skemmtilegri tónlist Jóhanns Moravek undir leikstjórn Bjarkar Jakobsdóttur. Leikritið fjallar á gamansaman hátt um samskipti Fúsa froskagleypis við krakkana og bæjarbúana í Hafnarfirði og hvernig heimsókn Bardínó Sirkussins til bæjarins breytir miklu í lífi allra. Leikfélag Hafnarfjarðar fagnar nú í ár 75 ára afmæli sínu og var Fúsi froskagleypir fyrsta sýning félagsins í nýju aðsetri félagsins í Gaflaraleikhúsinu. Miðaverð...
Read More


