Year: 2011

Nemendaleikhús LHÍ sýnir Á botninum

Föstudaginn 23. september frumsýndi Nemendaleikhús Listaháskóla Íslands Á botninum eftir Maxim Gorkí, í leikstjórn Rúnars Guðbrandssonar. Verkið er fyrsta uppfærsla vetrarins hjá Nemendaleikhúsinu en í útskriftarhópnum eru 10 verðandi leikarar. Sýningar fara fram í Smiðjunni, leikhúsi Listaháskóla Íslands við Sölvhólsgötu 13. Leikritið Na-dné, – Á botninum eftir Maxim Gorkí var frumflutt í Listaleikhúsinu í Moskvu 18. Desember 1902 í leikstjórn Konstantíns Stanislavskís sem lék líka hlutverk Satíns. Ári síðar var það frumsýnt í Berlín og gekk þar um langa hríð fyrir fullu húsi. Fyrsta Norðurlandasýningin mun hafa verið í Fahlström Teater í Noregi 1903. Verkið hefur síðan verið leikið...

Read More

Listaverkið frumsýnt 29. september

Þjóðleikhúsið frumsýnir á fimmtudaginn Listaverkið eftir Yazmina Reza en mörgum leikhúsunnendum er í fersku minni sýning Þjóðleikhússins á Listaverkinu árið 1997 með þeim Hilmi Snæ Guðnasyni, Ingvari E. Sigurðssyni og Baltasar Kormáki. Í þessari endurfrumsýningu verksins sameina þeir á ný krafta sína á leiksviði undir leikstjórn Guðjóns Pedersens og snúa aftur í sömu hlutverkum. Listaverkið er eitt allravinsælasta leikrit síðustu áratuga. Verkið var frumflutt í París árið 1994 og hlaut hin eftirsóttu Molière-verðlaun. Síðan þá hefur það verið sýnt við miklar vinsældir víðsvegar um heiminn. Listaverkið er bráðfyndinn gamanleikur með heimspekilegum undirtóni um þrjá góða vini og alvarlega uppákomu...

Read More

Eldfærin aftur á svið um helgina

Gói og Þröstur snúa aftur á Litla svið Borgarleikhússins um nú um helgina í Eldfærunum – fyrsta ævintýrinu af mörgum þeir félagar kynna ungum leikhúsgestum á komandi árum. Guðjón Davíð Karlsson fer með hlutverk dátans og Þröstur Leó Gunnarsson leikur allt annað í verkinu. Guðjón Davíð Karlsson fer með hlutverk dátans og Þröstur Leó Gunnarsson leikur allt annað í verkinu. Hún hlaut afbragðs viðtökur og dóma á síðasta ári og tilnefningu til Grímuverðlaunna sem barnasýning ársins. Gói og Þröstur opna dyr leikhússins upp á gátt fyrir öllum landsmönnum, ungum sem öldnum og ferðast um töfraheim ævintýranna. Á ferðalaginu nýta...

Read More

Hassið í Halanum

Halaleikhópurinn hefur ráðið leikstjórana Margréti Sverrisdóttur og Odd Bjarna Þorkelsson til að leikstýra leikritinu Hassið hennar mömmu eftir Dario Fo, jafnframt því að uppfæra og staðfæra verkið. Æfingar munu hefjast í nóvember og fyrirhugað er að frumsýna kringum mánaðarmótin janúar / febrúar 2012. Hassið hennar mömmu var frumsýnt hjá Leikfélagi Reykjavíkur 1982  í Iðnó og síðan flutt í Austurbæjarbíó og sýnt þar á miðnætursýningum og gekk þar að ýmsum hugstola eins og greint var fá í Vísi 3. jan. 1983. Þetta er farsi, afi og mamma Luigi eru farin að rækta og reykja hass og hann sér að það er...

Read More

Með fullri reisn á ný

Leikfélag Hörgdæla hefur ávkeðið að taka aftur upp sýningar á Með fullri reisn þar sem hætta þurfti sýningum fyrir fullu húsi og með hundruð manna á biðlista sl. vor. Alls var leikritið sýnt 30 sinnum og sáu það 2.800 manns en nú verður 10 sýningum bætt við og hefjast þær 20. október. Forsala á sýninguna er hafin og því um að gera að tryggja sér miða hið snarasta því ekki verða fleiri sýningar en þessar 10. Leikritið er eftir Terrence McNally og þýtt af Karli Ágústi Úlfssyni. Leikstjóri er Jón Gunnar Þórðarson og hefur hann, ásamt leikhópnum staðfært verkið...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert