Year: 2011

Leikfélagi Peðið sýnir óperuna Bjarmaland – rísandi land

Í tengslum við októberhátíð á Gallery – Bar, Hverfisgötu 46, sýnir Leikfélagið Peðið óperuna Bjarmaland – rísandi land eftir Jón Benjamín Eiríksson og Andreu Gylfadóttur. Verkið er sett í skemmtilegan óperustíl með tónlist eftir Andreu Gylfadóttur, sem einnig leikstýrir verkinu. Sýningar verða laugardaginn 8. október kl. 20:00 og sunnudaginn 9. október kl. 16:30. Einnig verður sýnt á vegum leikfélagsins á hátíðinni örverkið Ægir, Ægir og Ægir – saga af þremur rasshausum eftir Björgúlf Egilsson í leikstjórn Lísu Pálsdóttur frumsyning þess er laugardaginn 8. Október kl. 18:00 Óperan Bjarmaland – rísandi land fjallar á spaugilegan hátt um nútíma íslendinga sem...

Read More

Nývirki hjá Freyvangsleikhúsinu

Haustverkefni Freyvangsleikhússins 2011 verður frumsýnt föstudaginn 7. október kl. 20:00 í Freyvangi. Að þessu sinni er um að ræða stuttverkasýninguna Nývirki þar sem frumflutt verða 9 verk eftir 8 höfunda í leikstjórn 5 félagsmanna í Freyvangsleikhúsinu. 16 leikarar fara með hlutverkin og a.m.k. 7 aðstoðarmenn sjá um búninga, leikmuni, lýsingu, hljóð, sviðsmynd, miðasölu, afgreiðslu o.s.frv. Óhætt er að segja að verkin komi hvert úr sinni áttinni og umfjöllunarefni þeirra eru ólík, allt frá skoðun á samskiptum kynjanna og eðli ástarinnar yfir í vangaveltur um blekkinguna, kúgun, yfirvald, fordóma, sannleikann og jafnvel tilveruna sjálfa. Nývirki er talsvert frábrugðin þeim sýningum...

Read More

Evrópski trúðurinn – Námskeið í Gaflaraleikhúsinu

Þetta er námskeið sem rannsakar  gleði og léttleika trúðsins. Það byggir á evrópskri trúðahefð sem notar rauða nefið (minnstu grímu í heimi). Námskeiðið býður þér upp á tækifæri til að draga fram þinn eigin trúð og gefur þér möguleika  á að kynnast veröld  þar sem trúðurinn þinn notar ýmsar aðferðir og tækni úr leikhúsinu á auðveldan hátt.  Þetta er jákvæð veröld þar trúðurinn segir alltaf já og mistök eru gjöf. Leiðbeinandi er Virginia Gillard. Virginia Gillard er áströlsk/bresk leikkona sem býr og starfar núna á Íslandi. Hún lærði trúðleik hjá Philippe Gaulier í París og London og hjá Pierre...

Read More

Allt í plati á Króknum

Haustverkefni Leikfélags Sauðárkróks er barnaleikritið Allt Ì plati eftir Þröst Guðbjartsson. Leikarar eru 12 og sumir að stíga sín fyrstu skref á leiksviðinu. Leikstjóri er Íris Baldvinsdóttir. Stefnt er á frumsýningu í lok október. Í Allt í plati er farið inn í ævintýraheima þekktra barnaleikrita og er það Lína Langsokkur sem leiðir leikinn og kynnir til sögunnar persónur úr Kardemommubænum, Dýrunum Ì Hálsaskógi og þá Karíus og Baktus. Leikfélag Sauðárkróks sýndi styttri leikgerð af verkinu þann 17. júní 2003 þrisvar fyrir fullu húsi.  ...

Read More

Námskeið í leiktækni

Leikfélag Kópavogs stendur fyrir námskeiði í leiktækni fyrir vana leikara dagana 8. 9. og 11. október. Leiðbeinandi er Rúnar Guðbrandsson. Námskeiðið hefst laugardaginn 8. okt. kl. 10.00. Enn eru nokkur laus pláss. Námskeiðið kostar 3.000 kr. fyrir utanfélagsmenn en er ókeypis fyrir félaga í LK. Þeir sem vilja taka þátt sendi tölvupóst á lk@kopleik.is....

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert