Year: 2011

Lokasýning Zombíljóða til styrktar Fjölskylduhjálp Íslands

Lokasýning á Zombíljóðunum verður á Litla sviðinu föstudaginn 14. október. Það kostar ekkert inn á sýninguna en tekið verður á móti frjálsum framlögum til Fjölskylduhjálpar Íslands. Zombíljóðin eru nýtt verk úr smiðju Borgarleikhússins og Mindgroup. Á undan komu Þú ert hér og Góðir Íslendingar. Þremenningarnir sem stóðu að þeim verkum eru Jón Atli Jónasson, Jón Páll Eyjólfsson og Hallur Ingólfsson. Í þessari sýningu hafa þeir fengið liðsstyrk Halldóru Geirharðsdóttur sem skrifar og flytur verkið með þeim. Aldrei áður hefur manneskjan fengið jafn mikla vitneskju um harm annara en sjáum við í raun og veru hvort annað? Finnum við minna...

Read More

Stafræn ljósa- og leikmyndahönnun

DigiDeLight er verkefni á vegum NEATA sem verður í gangi frá nóvember 2011 til ágúst 2012. Auglýst er eftir þátttakendum frá öllum NEATA-löndunum, leikhópum sem vilja tileinka sér nýtingu starfænnar tækni í hönnun lýsinga og leikmynda. Hvert land má tilnefna einn leikhóp í verkefnið. Verkefnið endar á ráðstefnu sem verður haldin í Sønderborg í Danmörku dagana 31. júlí til 5. ágúst samhliða NEATA-leiklistarhátíðinni 2012. Vinsamlegast sækið um til Bandalags ísl. leikfélaga fyrir 21. október nk. á netfangið info@leiklist.is. Ekki eru gerðar sérstakar kröfur til umsækjenda aðrar en þær að þeir hafi áhuga á og séu tilbúnir til að tileinka...

Read More

Tvö leikfélög á stuttverkahátíðinni í Færeyjum

Laugardaginn 15. október verður haldin stuttverkahátíð í Nólsoy í Færeyjum og munu tvö íslensk leikfélög taka þátt í henn, Hugleikur og Leiklistarfélag Seltjarnarness. Upphaflega stóð til að á hátíðinni yrðu auk færeyskra og íslenskra sýninga, sýningar frá Noregi en því miður sá enginn hópur þaðan sért fært að koma. Hátíðin verður í Røyndinni, leikhúsi þeirra Nólseyinga, stendur allan laugardaginn og endar á veislu þar um kvöldið. Alls verða 14 stutverk sýnd á hátíðinni. Hugleikur sýnir Ljóð fyrir 9 kjóla eftir Sigríði Láru Sigurjónsdóttur, í leikstjórn höfundar, og Að vera eða ekki vera eftir Árna Friðriksson, einnig í leikstjórn höfundar....

Read More

Himnaríki í Þorlákshöfn

Leikfélag Ölfuss frumsýnir leikritið Himnaríki – geðklofinn gamanleik, eftir Árna Ibsen þann 14. október í Versölum, Þorlákshöfn.  Árni Ibsen var tilnefndur til Norrænu leikskáldaverðlaunanna 1996 fyrir þetta verk og hefur það verið sýnt í mörgum löndum Evrópu. Leikstjóri er Gunnar Björn Guðmundsson og með hlutverk fara Aðalsteinn Jóhannsson, Árný Leifsdóttir, Helena Helgadóttir, Ottó Rafn Halldórsson, Róbert Karl Ingimundarson og Þrúður Sigurðar. Leikritið gerist í sumarbústað þar sem þrjú pör koma saman til að eiga skemmtilega helgi. Ýmiss konar mál koma upp og ástarflækjur gera vart við sig. Leikritið er leikið á tveimur sviðum samtímis og gerir það verkið afar...

Read More

Hlini kóngsson – Sögustund í Kúlunni

Undanfarin þrjú ár hefur Þjóðleikhúsið boðið börnum í elstu deildum leikskóla með kennurum sínum í heimsókn í leikhúsið til að fræðast á skemmtilegan hátt um leikhúsið og kynnast töfraheimi þess. Börnin taka þátt í sögustund með leikhúsívafi, en nú er spunnið og leikið út frá gamla ævintýrinu um Hlina kóngsson. Sögustundin hefur notið mikilla vinsælda hjá leikskólum og á hverju hausti hafa komið vel á fimmta þúsund leikskólabörn frá allflestum leikskólum á höfuðborgarsvæðinu í heimsókn í Þjóðleikhúsið. Í haust hafa verið sýndar á þriðja tug sýninga af Hlina kóngsyni fyrir leikskólabörn í Kúlunni við frábærar undirtektir barnanna. Núna geta...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert