Hugleikur frumsýnir Útsýni
Laugardaginn 19. janúar frumsýnir Hugleikur leikritið Útsýni eftir Júlíu Hannam í Möguleikhúsinu kl. 20. Um er að ræða nýtt íslenskt leikverk sem er fyrsta leikrit höfundar í fullri lengd, en Júlía hefur skrifað sjö einþáttunga sem settir hafa verið á svið hjá Hugleik. Þeirra á meðal er Í öruggum heimi, sem valin var besta sýningin […]
Þjóðleikhúsið frumsýnir á Ísafirði
Leikritið norway.today verður frumsýnt í Edinborgarhúsinu á Ísafirði þann 17. janúar nk. en þar er á ferðinni margverðlaunað verk sem vakið hefur athygli og áhuga ungs fólks á undanförnum árum. Tvær sýningar verða á verkinu, sýning fyrir nemendur Menntaskólans á Ísafirði kl. 10:45 en síðan verður hátíðarsýning fyrir almenning kl. 20.
Annáll Kómedíuleikhússins 2007
Það er gamall og góður íslenskur siður að líta um öxl við áramót og kikka á hvað maður hafi nú verið að brasa á árinu sem er að líða. Árið 2007 hefur sannarlega verið mjög fjörugt og Kómískt hjá Kómedíuleikhúsinu. Meðal verkefna ársins eru 4 nýjar leiksýningar, Act alone leiklistarhátíðin var haldin í fjórða sinn, […]
Leikfélag Hveragerðis frumsýnir Aladdin
Þann 12. janúar n.k. Leikfélag Hveragerðis frumsýnir barnaleikritið Aladdin. Leikgerð og leikstjórn er í höndum Hafsteins Þórs Auðunssonar en hann er jafnframt í stjórn leikfélagsins. Æfingar hófust í byrjun september og fóru rólega af stað. Það hefur gengið mikið á í leikfélaginu við hönnun leikmyndar enda var öllu snúið við til að koma sýningunni fyrir […]
Hugleikur boðar til samlesturs
Þá líður að því að vinnan við seinni stóru uppfærslu Hugleiks á leikárinu, 39½ viku eftir Hrefnu Friðriksdóttur, fari af stað. Leikstjórn verður í höndum Ástu Gísladóttur, Júlíu Hannam og Sigurðar H. Pálssonar.
Leikfélag Selfoss sýnir Með táning í tölvunni
Föstudaginn 11. janúar frumsýnir Leikfélag Selfoss gamanleikritið Með táning í tölvunni eftir Ray Cooney. Leikstjóri er Jón Stefán Kristjánsson sem einnig þýddi verkið. Þetta er bráðskemmtilegur og hress farsi sem mun kitla hláturtaugarnar svo um munar, sjálfstætt framhald af Með vífið í lúkunum sem leikfélagið setti upp árið 1999 en það er sú sýningin sem […]
Fool 4 love í Austurbæ
Leikhópurinn Silfurtunglið frumsýndi fyrir skemmstu leikritið Fool 4 love eftir bandaríska leikskáldið Sam Shepard í leikstjórn Jóns Gunnars Þórðarsonar. Tónlistina í verkinu samdi og flytur KK. Fool 4 love er sýnt í Austurbæ
Aðsóknarmet slegið á Akureyri
Hin geysivinsæla sýning á Óvitum mun víkja af sviði Leikfélags Akureyrar þann 6. janúar til að rýma til fyrir nýrri frumsýningu á Fló á skinni. Uppselt hefur verið á allar sýningar verksins en tvær síðustu aukasýningarnar eru komnar í sölu, þann 28. desember og 5. janúar. Þegar þessar sýningar hafa verið sýndar verður aðsóknarmet fallið […]
Jesus Christ Superstar jólasýning Borgarleikhússins
Þann 28. desember verður hin sígilda rokkópera frá 1970, Jesus Christ Superstar, frumsýnd á Stóra sviði Borgarleikhússins. Leikstjóri er Björn Hlynur Haraldsson en með hlutverk þeirra Jesúsar og Júdasar fara tveir af öflugustu rokksöngvurum landsins, Krummi Björgvins og Jens Ólafsson.
Jólagleði LH frestað til 4. janúar
Við hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar höfum ákveðið að fresta jólagleði félagsins til föstudagsins 4. janúar. Tekið verður vel á móti meðlimum félagsins og annarra leikfélaga og munum við eiga notalega kvöldstund saman á nýju ári.
Ívanov frumsýnt 26. desember
Jólasýning Þjóðleikhússins er aðlögun leikstjórans Baltasars Kormáks á Ívanov eftir Anton Tsjekhov. Verkið verður frumsýnt á á Stóra sviðinu þann 26. desember nk. og hefst sýningin kl. 20.
Óhöppum fjölgar – allra síðasta aukasýning
Vegna fjölda áskorana verður efnt til aukasýninga milli jóla og nýárs á leikritinu Óhapp! eftir Bjarna Jónsson. Leikritið var fyrsta verkefni leikárs Þjóðleikhússins í haust og fékk afbragðs góða dóma og góðar viðtökur hjá áhorfendum. Verkið tekur á íslenskum veruleika með nýstárlegum hætti en viðfangsefni þess er sjónvarps- og fjölskylduumhverfi nútíma Íslendinga. Margir hafa líkt […]
Aukasýning á Tröllaperu
Vegna góðrar aðsóknar verður haldin aukasýning á leikritinu Tröllaperu á Grand Rokk á fimmtudaginn klukkan 21. Sýningin hefur hlotið mjög góðar viðtökur og þykir bregða skemmtilegu ljósi á hina íslensku jólasveina og fjölskyldu þeirra. Sótt er í íslenska sagnahefð í leikritinu, en þar segir frá matarboði á heimili Grýlu og Leppalúða kvöldið áður en fyrsti […]
Jólin hennar Jóru
Stoppleikhópurinn hefur hafið sýningar á jólaleikritinu Jólin hennar Jóru eftir Eggert Kaaber og Katrínu Þorkelsdóttur. Verkið var frumsýnt í desember í fyrra við miklar vinsældir en sýningar urðu þá 25.
Nýr leikari í Skilaboðaskjóðunni
Leikurum í ævintýrasöngleiknum Skilaboðaskjóðunni hefur bæst liðsauki en hæfileikapilturinn Árni Beinteinn Árnason mun framvegis leika hlutverk Putta litla á móti öðrum ungum leikara, Hrafni Bogdan Haraldssyni, sem hefur staðið sig frábærlega í sýningum vetrarins.
Leitin að jólunum í Þjóðleikhúsinu
Uppselt er á aðventuleikritið Leitina að jólunum í Þjóðleikhúsinu en sýningar þess eru að verða fastur liður í jólaundirbúningi margra. Þetta er í þriðja sinn sem verkið er sett upp í Þjóðleikhúsinu en það hefur notið mikilla vinsælda og hlaut meðal annars Grímuverðlaunin sem barnasýning ársins 2006.
Þegar Trölli stal jólunum
Sunnudaginn 9. desember klukkan 14:00 frumsýnir Leikfélag Mosfellssveitar í Bæjarleikhúsinu leikritið Þegar Trölli stal jólunum. Það er unglingahópur leikfélagsins, krakkar á aldrinum 13-16 ára, sem stendur að uppsetningunni, en leikstjórar eru Sigrún Harðardóttir og Agnes Þorkelsdóttir Wild.
Aftansöngur jóla hjá Hugleik
Leikfélagið Hugleikur heldur árlega jólaskemmtun sína í Þjóðleikhúskjallaranum sunnudaginn 9. desember og þriðjudaginn 11. desember. Dagskráin hefur yfirskriftina "Aftansöngur jóla", enda verður sungið um aftaninn, auk þess sem aftansöngur kemur við sögu í tveimur leikþáttum sem sýndir verða.
Leikhús.is
Leikhús.is
Opin söngprufa, karlmenn 18-30 ára athugið
Opin söngprufa fyrir nýjan söngleik, Ástin er diskó, lífið er pönk, fer fram í húsakynnum Reykjavík Studios að Nýbýlavegi 8 (Dalbrekku megin) fimmtudaginn 6. desember nk. kl. 19. Leitað er að ungum karlmönnum (18-30 ára) sem geta leikið og sungið.
Tröllapera á Grand rokk
Leikfélagið Peðið setur upp nýja jólaleikritið Tröllaperu á Grand rokk. Frumsýnt verður 1. desember klukkan 16. Leikritið er eftir Jón Benjamín Eiríksson og leikstjóri er Guðjón Sigvaldason. Peðið er áhugaleikfélag en hefur innan sinna vébanda menntaða leikara og leikstjóra auk þaulvanra tónlistarmanna. Leikverkin eru fyndin og skemmtileg og uppfull af skemmtilegum lögum.
Halaleikhópurinn æfir Gaukshreiðrið
Æfingar eru hafnar hjá Halaleikhópnum í Hátúni 12, á leikritinu Gaukshreiðrinu, eftir Dale Wasserman byggt á skáldsögu Ken Kesey (1962) í þýðingu Sonju B. Jónsdóttur. Leikstjóri er Guðjón Sigvaldason.
Danir í heimsókn hjá Leikfélagi Húsavíkur
Í október sl. kom danskt vina leikfélag, Bagsværd Amatør Scene í heimsókn til Leikfélags Húsavíkur. Bagsværd Amatør Scene og Leikfélag Húsavíkur hafa verið vinaleikfélög til margra ára og heimsótt hvort annað í gegnum árin. Í ár kom BAS með sýninguna Jøklen Brænder sem byggir á íslenskri þjóðsögu en handritið skrifaði Grete Thorulf. Anne Bille leikstýrði […]
Hauststarf Leikfélags Rangæinga
Á haustdögum hófst vetrarstarf hjá Leikfélagi Rangæinga. Verið er að hlúa ungliðunum og farið var af stað með starf með þeim. Í gangi hefur verið leikþáttur um Gunnar á Hlíðarenda, og var hann sýndur á Héraðsvöku Rangæinga, í sögusetrinu á Hvolsvelli nú nýverið og víðar.
Lápur, Skrápur og jólakskapið í Skemmtihúsinu
Þann 1. desember næstkomandi verður frumsýtt glænýtt, íslenskt jólaleikrit með söngvum í Skemmtihúsinu við Laufásveg. Leikritið ber nafnið Lápur, Skrápur og jólaskapið. Höfundur verksins er Snæbjörn Ragnarsson en hann skrifar meðal annars Ævintýri Stígs og Snæfríðar í Stundinni okkar. Snæbjörn semur einnig tónlistina í verkinu ásamt Arngrími Arnarsyni. Leikstjórn er í höndum Önnu Bergljótar Thorarensen.
Stúfur heimsækir Leikfélag Akureyrar
Fjölskyldusýningin Þú ert nú meiri jólasveinninn verður frumsýnd í Rýminu hjá LA sunnudaginn 2. desember klukkan 14:30. Sýningin er samstarf Smilblik og LA. Hér birtist leikarinn, tenórinn, trúðurinn, heimsmaðurinn og eineltisbarnið Stúfur eins og við höfum aldrei séð hann áður; geislandi af hæfileikum, ljúfur, hrjúfur, spriklandi og sprellfjörugur.
Siðmenningin og villimennskan
Fyrsti samlesturinn á leikritinu Vígaguðinn eftir franska leikskáldið Yasminu Reza fór fram í Þjóðleikhúsinu á dögunum. Verkið verður frumsýnt á Smíðaverkstæðinu í janúar í leikstjórn Melkorku Teklu Ólafsdóttur. Leikrit þetta er nýjasta verk Reza sem er eitt þekktasta leikskáld samtímans. Mörgum er minnistætt leikrit hennar, Listaverkið, sem sló í gegn í uppfærslu Þjóðleikhússins árið 1997. […]
Leikið í Litháen
Leikfélag Selfoss brá á haustdögum undir sig betri fætinum og fór með sýninguna Hnerrinn, eftir Anton Chekov á leiklistarhátíð í Roskisis í Litháen. Formaður félagsins, Guðfinna Gunnarsdóttir, var í leikhópnum og ritaði ferðasögu sem hér er birt með góðfúslegu leyfi Suðurgluggans.
Brúðulistahátíð í Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg
Á menningarnótt sl. stóð Leikminjasafn Íslands fyrir opinni brúðulistahátíð og sýningu á íslenskum leikbrúðum í Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg. Viðburðurinn vakti mikla athygli og komu um 2000 manns á sýninguna þennan dag. Nú verður sýningin opnuð að nýju þrjá næstu laugardaga, 17. nóv., 24. nóv. og 1. des. Eins og á menningarnótt verða lifandi leikbrúðusýningar á […]
Nýtt íslenskt jólaleikrit frumsýnt á Ísafirði
Kómedíuleikhúsið á Ísafirði frumsýnir nýtt íslenskt jólaleikrit laugardaginn 17. nóvember í Tjöruhúsinu. Leikurinn heitir Jólasveinar Grýlusynir og er einleikur einsog flest verk Kómedíuleikhússins. Höfundar eru þau Elfar Loga Hannesson og Soffía Vagnsdóttur. Hér er á ferðinni leikur um gömlu íslensku jólasveinanna og ýmsum spurningum reynt að svara um þessa skrítnu sveina. Hvers vegna er Stúfur […]
María, asninn og gjaldkerarnir í Borgarleikhúsinu
Þriðjudaginn 20. nóvember frumsýna krakkarnir í leikhópnum Borgarbörn, jólaleikritið María, asninn og gjaldkerarnir á Nýja sviði Borgarleikhússins. Þetta er söngleikur þar sem öll hlutverk er skipuð börnum og unglingum úr söng- og leiklistarskólanum Sönglist sem starfræktur er í samstarfi við Borgarleikhúsið. Í fyrra setti sami hópur upp jólasýninguna Rétta leiðin við frábærar undirtektir.
Íslandsklukkan frumsýnd á Húsavík
Þann 17. nóvember n.k. frumsýnir Leikfélag Húsavíkur, Íslandsklukkuna eftir Halldór Laxness, í leikstjórn Arnórs Benónýssonar. Tónlist er eftir Guðna Bragason og hann er einnig tónlistarstjóri sýningarinnar. Byggt er á leikgerð Bríetar Héðinsdóttur sem hún gerði fyrir Leiklistarskólann árið 1980. Hér er um að ræða eina af bókmenntaperlum þjóðarinnar sem ekki má falla í gleymskunnar dá.
Íslensk sýning óskast til Riga
Norður-evrópska áhugaleikhúsráðið, NEATA, stendur fyrir leiklistarhátíðum á tveggja ára fresti og skiptast aðildarlöndin á að halda hana. Næsta sumar er komið að Lettlandi og verður hátíðin haldin í Riga dagana 5. til 10. ágúst. Til hennar er boðið sýningum frá aðildarlöndum NEATA: Danmörku, Eistlandi, Færeyjum, Finnlandi, Íslandi, Litháen, Noregi, Svíþjóð og Lettlandi.
Konan áður frumsýnt
Leikritið Konan áður hefst á stórri spurningu þegar fjölskyldufaðirinn Frank mætir fortíð sinni í dyragættinni. Fyrir utan stendur kona, komin til að krefja hann um gamalt loforð því hún er konan sem hann sagðist alltaf ætla að elska. Þjóðleikhúsið frumsýnir verkið á Smíðaverkstæðinu þann 16. nóvember nk. í leikstjórn Hafliða Arngrímssonar.
Leikfélag Selfoss hefur æfingar á nýjum gamanleik
Félagar í Leikfélagi Selfoss undirbúa nú af krafti afmælissýningu félagsins, en félagið hefur hafið æfingar á gamanleikritinu Með táning í tölvunni eða Caught in the net eins og það heitir á frummálinu. Verkið er eftir Ray Cooney, en þýðing er í höndum Jóns Stefáns Kristjánssonar, sem einnig mun leikstýra því. Verkið er framhald af leikritinu […]
Frelsarinn kemur 22. nóvember!
Leikhúslistamaðurinn Kristján Ingimarsson er höfundur sýningarinnar Frelsarinn sem sýnd verður á Íslandi í lok nóvember. Sýningar verða á Stóra sviði Þjóðleikhússins 22. nóvember og hjá Leikfélagi Akureyrar 24-25. nóvember. Leikhópur Kristjáns, Neander, hefur sýnt sýningu þessa við glimrandi undirtektir í Danmörku að undanförnu.
Opinn dagur í Listaháskóla Íslands
Föstudaginn 9. nóvember n.k. verður opinn dagur í öllum deildum Listaháskóla Íslands og er áhugasömum boðið að koma í skólann og kynnast starfsemi hans. Kynningar fara fram í húsakynnum skólans á eftirfarandi stöðum: Sölvhólsgötu 13 Leiklistardeild og tónlistardeild kl. 14-18 Laugarnesvegi 91 Myndlistardeild og kennaranám kl. 11-18 Skipholt 1 Hönnunar- og arkitektúrdeild […]
Þetta mánaðarlega hjá Hugleik
Fyrsta leikdagskrá leikfélagsins Hugleiks í vetur verður flutt í Þjóðleikhúskjallaranum sunnudaginn 11. nóvember og þriðjudaginn 13. nóvember. Að þessu sinni verða á boðstólum sex ný leikverk eftir félagsmenn, í leikstjórn nemenda af leikstjórnarnámskeiðum sem félagið hefur staðið fyrir í haust undir leiðsögn Sigrúnar Valbergsdóttur.
Leg rennur sitt skeið
Það fer hver að vera síðastur að sjá Leg, söngleik Hugleiks Dagssonar og tríósins Flís, í Þjóðleikhúsinu. Sýningum lýkur þann 17. nóvember nk. en uppselt er á næstu tvær sýningar. Örfá sæti eru laus á síðustu sýninguna og hefur verið brugðið á það ráð að efna til aukasýningar kl. 16 þann sama dag.
Ég bið að heilsa
Jónasardagskrá á Ísafirði Kómedíuleikhúsið, í samstarfi við Þröst Jóhannesson tónlistarmann, frumsýnir ljóðaleikinn Ég bið að heilsa miðvikudaginn 7. nóvember á veitingastaðnum Við Pollinn á Ísafirði. Leikurinn er settur upp í tilefni af 200 ára fæðingarafmælis Jónasar Hallgrímssonar þann 16. nóvember nk.
