Dubbeldusch frumsýnt á fimmtudag

Nýtt íslenskt leikrit, Dubbeldusch, eftir Björn Hlyn Haraldsson verður frumsýnt hjá LA á fimmtudag, 13. mars. Hér er á ferðinni ljúfsárt verk um mann sem stóð frammi fyrir erfiðu vali fyrir þrjátíu árum en nú bankar fortíðin upp á. Björn Hlynur leikstýrir verkinu sjálfur en Hilmar Jónsson leikur aðalhlutverkið en hann hefur ekki leikið að […]

Baðstofunni boðið til Wiesbaden

Leiksýningu Þjóðleikhússins á Baðstofunni hefur verið boðið á leikritatvíæringinn í Wiesbaden í Þýskalandi í sumar. Þar fer fram ein þekktasta leiklistarhátíð Evrópu, en hún er helguð nýjum leikritum. Baðstofan er þriðja leikrit Hugleiks Dagssonar en verkið var frumsýnt í leikstjórn Stefáns Jónssonar í Kassanum þann 9. febrúar sl.

Saga Bandalagsins á Rás 1

Á laugardaginn verður fluttur á rás 1 útvarpsþáttur um útgáfu Sögu Bandalagsins sem áformað er að komi út í vor. Þátturinn er á dagskrá á laugardaginn, 8. mars, klukkan 15.20 og verður endurfluttur föstudagskvöldið 14. mars. Þáttagerð annaðist fyrrverandi starfsmaður Bandalagsins, Sigríður Lára Sigurjónsdóttir. Í þættinum er m.a. rætt við Bjarna Guðmarsson, söguritara, og Þorgeir […]

Leiklistarskóli Bandalagsins 2008

Við kynnum með stolti námskeiðin sem Leiklistarskóli Bandalags íslenskra leikfélaga ráðgerir að halda að Húsabakka í Svarfaðardal dagana 7. til 15. júní 2008. Að þessu sinni verður boðið upp á Leiklist II sem hefðbundið er að gera í kjölfar Leiklistar I. Kennari er Ágústa Skúladóttir en námskeiðin hennar hafa alltaf verið gríðarlega vinsæl og vel […]

Tveir tvöfaldir á Blönduósi

Næstkomandi föstudagskvöld frumsýnir Leikfélag Blönduóss gamanleikinn „Tveir tvöfaldir“ eftir Ray Cooney í þýðingu Árna Ibsen. Leikstjóri er Ingrid Jónsdóttir og þetta er í annað skipti sem hún leikstýrir á Blönduósi. Leikarar eru átta talsins en að sýningunni koma í kring um tuttugu manns.  

Verðlaun fyrir Svartan hatt

Leikskáld  framtíðarinnar áttu sviðið síðasta laugardagskvöld þegar úrslit  hinnar árlegu  örleikritasamkeppni Þjóðleikhússins og Listaháskóla Íslands fyrir  framhaldsskólanema fór fram. Fimm verk voru valin til þátttöku í úrslitunum en  fjöldi örleikrita barst vítt og breitt af landinu. Leiklistarnemar á öðru ári í LHÍ  fluttu verkin með tilþrifum en leikskáldin sem komust í úrslit voru Árni  Arason, […]

Útsýni, síðasta sýning í kvöld

Í kvöld er síðasta sýning á leikritinu Útsýni eftir Júlíu Hannam í Möguleikhúsinu kl. 20. Um er að ræða nýtt íslenskt leikverk sem er fyrsta leikrit höfundar í fullri lengd, en Júlía hefur skrifað sjö einþáttunga sem settir hafa verið á svið hjá Hugleik. Þeirra á meðal er Í öruggum heimi, sem valin var besta […]

Pétur og úlfurinn snúa aftur

Hin sívinsæla brúðusýning Bernds Ogrodnik um Pétur og úlfinn er á leiðinni aftur á fjalirnar í Þjóðleikhúsinu. Verkið byggir á tónlist og söguþræði rússneska tónskáldsins Sergei Prokofief en Bernd gerir brúður og stýrir þeim í þessari ægifögru og stórskemmtilegu sýningu sem sló í gegn hjá áhorfendum á öllum aldri í vor. Sýnt verður í Kúlunni, […]

Örleikritasamkeppnin Svartur hattur haldin

Úrslit hinnar árlegu örleikritasamkeppni Þjóðleikhússins og Listaháskóla Íslands fyrir framhaldsskólanema fara fram á stóra sviði Þjóðleikhússins næstkomandi laugardagskvöld, 1. mars kl. 20.00. Aðgangur er ókeypis og opinn öllum.

Alþjóðlega leiklistarhátíðin Lókal haldin í fyrsta sinn

Leiklistarhátíðin Lókal verður haldin dagana 5. –  9. mars nk.  Markmiðið með hátíðinni er að kynna Íslendingum samtímaleikhús frá Evrópu og Bandaríkjunum og tefla um leið fram nýjum verkum íslensks leikhúsfólks.  Í fyrstu atrennu verður boðið upp á alls sjö leiksýningar.

Æfingar í fullum gangi á Dubbeldusch hjá LA

Hjá LA standa nú yfir æfingar á nýju íslensku leikriti, Dubbeldusch, eftir Björn Hlyn Haraldsson. Hér er á ferðinni ljúfsárt verk um mann sem stóð frammi fyrir erfiðu vali fyrir þrjátíu árum en nú bankar fortíðin upp á. Sýningin verður frumsýnd í Rýminu á Akureyri 13. mars. Björn Hlynur leikstýrir verkinu sjálfur en Hilmar Jónsson […]

Pétur Gautur í víking að nýju

Sýning Þjóðleikhússins á Pétri Gaut eftir Henrik Ibsen, í leikstjórn og leikgerð Baltasars Kormáks, verður einn af hápunktum menningarhátíðarinnar Iceland on the Edge í Brussel nú í lok febrúar. Hátíðin verður sett þriðjudaginn 26. febrúar og stendur til 15. júní en sýningar á Pétri Gaut verða 29. febrúar og 1. mars.

Jörundur í Freyvangi

Freyvangsleikhúsið í Eyjafjarðarsveit frumsýnir söng- og gleðileikinn Þið munið hann Jörund eftir Jónas Árnason, föstudaginn 22. febrúar. Allir þekkja ævintýrið um Jörund sem kom hingað til Íslands og gerðist þar yfirvald nánast upp á sitt eindæmi. Tónlist verksins hefur verið gerð ódauðleg í gegnum tíðina, Þrjú á palli spiluðu og sungu undir sýningunni í fyrstu […]

Tveggja þjónn á Siglufirði

Leikfélag Siglufjarðar frumsýnir á morgun, föstudaginn 22. febrúar, ærslafulla gamanleikinn Tveggja þjónn eftir Carlo Goldoni í leikstjórn Elvars Loga Hannessonar. Hér er á ferðinni bráðfjörugur ítalskur leikur sem fjallar um þjóninn Eldibrand sem lendir í því að þurfa að þjóna tveimur herrum samtímis.  

Frumsýning í Aratungu

Leikdeild Ungmennafélags Biskupstungna frumsýnir 22. febrúar í Aratungu gamanleikinn Leynimel 13. eftir Þrídrang. Alls taka 13 leikarar og fjölmennt lið aðstoðarmanna þátt í sýningunni. Leikstjóri er Gunnar Björn Guðmundsson.  

Líkaminn í Borgarleikhúsinu

Fimmtudaginn 21. febrúar gefst áhugasömum kostur á að sjá nokkar sýningar ungs fólks sem allar tengjast líkamanum með einum eða öðrum hætti. Sýningarnar eru afrakstur samstarfsverkefnis Borgarleikhússins, LHÍ og Hins Hússins. Verkin fjalla öll að einhverju leyti um líkamann.

Kommúnan frumsýnd í Borgarleikhúsinu

Leikritið Kommúnan, eftir Gísla Örn Garðarsson, byggt á kvikmynd Lukas Moodyssons, Tillsammans, verður frumsýnt í Borgarleikhúsinu næstkomandi fimmtudag, þann 21. febrúar. Kommúnan er gamanleikur með dökkum undirtón, nostalgískt leikrit um vandamálin og hamingjuna sem felst í því að vera manneskja umkringdur öðrum manneskjum. Kommúnan er samstarfsverkefni Vesturports og Leikfélags Reykjavíkur.

Sumarskóli NUTU 2008

Nordisk Ungdoms Teater Udvalg, NUTU, rekur sumrskóla yrir norræna nemendur á aldrinum 16-25 ára. Hann verður á þessu ári starfræktur í Finnlandi, nánar tiltekið í Finns alþýðuskólanum í Esbo, dagana 24. júní til 5. júlí. Hvert Norðurlandanna á 10 pláss í skólann. Frestur til að sækja um þátttöku rennur út þann 21. apríl.  

Snúður og Snælda frumsýna Flutningana

Sunnudaginn 24. febrúar frumsýnir leikfélagið Snúður og Snælda leikritið Flutningarnir eftir Bjarna Ingvarsson en hann er jafnframt leikstjóri verksins. Leikritið er um leikhóp áhugamanna á landsbyggðinni, sem verður að flytja geymsluaðstöðu sína úr frystihúsi staðarins þar sem það er farið á hausinn og nýjir eigendur ljá ekki máls á því að leikfélagið fái áfram að […]

Sólarferð á svið

Þjóðleikhúsið frumsýnir leikritið Sólarferð eftir Guðmund Steinsson nk. föstudag, þann 15. febrúar í leikstjórn Benedikts Erlingssonar. Verkið er sýnt á Stóra sviðinu. Það er í sjálfu sér viðburður í hvert sinn sem íslenskt leikrit er sett upp að nýju, enda harla fátítt, og getur á sinn hátt skoðast sem vísbending um að höfundurinn eigi líf […]

UMFR æfir Þið munið hann Jörund

Ungmennafélag Reykdæla í Borgarfirði fagnar 100 ára afmæli sínu í apríl næstkomandi. Stærsta verkefni félagsins á afmælisári, auk útgáfu afmælisrits, er uppfærsla leikritsins Þið munið hann Jörund, eftir Jónas Árnason. Ævintýrið um Jörund hundadagakonung er bráðskemmtilegt söng- og gamanleikverk. Það var fyrst fært upp í Iðnó árið 1970 og hefur síðan verið viðfangsefni margra áhugaleikfélaga […]

Óþelló, Desdemóna og Jagó á Lókal

Leikritinu Óþelló, Desdemóna og Jagó sem frumsýnt var 30. janúar á litla sviði Borgarleikhússins hefur verið boðin þáttaka á Lókal, alþjóðlegri leiklistarhátíð sem fram fer í Reykjavík í byrjun mars. Sýningin er samvinnuverkefni Draumasmiðjunnar, Leikfélags Reykjavíkur og Íslenska dansflokksins. Óvenjuleg leikgerð Gunnars I. Gunnsteinssonar sem byggir á leikritinu Óþelló eftir Shakespeare hefur vakið athygli og […]

Baðstofan sýnd í Kassanum

Þjóðleikhúsið frumsýnir leikritið Baðstofan eftir Hugleik Dagsson nk. laugardag, þann 9. febrúar. Verkið er sýnt í Kassanum á Lindargötu 7. Hugleikur heldur þar áfram að kanna ástand íslensku þjóðarinnar og möguleika leikhússins í félagi við Stefán Jónsson leikstjóra, Ilmi Stefánsdóttur leikmyndahöfund og hljómsveitina Flís. Nú horfir Hugleikur um öxl en Baðstofan fullkomnar þannig þríleik höfundarins […]

Opið Þjóðleikhús á Vetrarhátíð

Dagana 7.-9. febrúar er Vetrarhátíð í Reykjavík og Þjóðleikhúsið lætur ekki sitt eftir liggja. Í tilefni Vetrarhátíðar bjóðum við upp á notalegar stundir, fríar sýningar og almennt fjör á galopnum degi. Kynnið ykkur dagskrána og takið frá tíma í leikhúsinu. Næstkomandi laugardag verður opið hús í aðalbyggingu Þjóðleikhússins við Hverfisgötu þar sem fjölbreytt skemmtun verður […]

Alsæla frumsýnt í Borgarleikhúsinu

Unglingaleikritið Alsæla í leikstjórn Bjarkar Jakobsdóttur verður frumsýnt kl. 20:00 þann 9. febrúar næstkomandi á Litla sviði Borgarleikhússins. Verkið er sprottið upp af umræðum og hugsunum leikhópsins og fært í búning af leikstjóranum. Sýningin inniheldur fjölda vinsælla laga og dansatriða ásamt auðvitað meitluðum texta. Leikritið er fært í mjög sjónrænan búning og lýst í dansi […]

Halaleikhópurinn frumsýnir Gaukshreiðrið

Þann 9. febrúar nk. mun Halaleikhópurinn frumsýna Gaukshreiðrið „One Flew Over the Cuckoo's Nest“ eftir Dale Wasserman, byggt á skáldsögu Ken Kesey, í  þýðingu Sonju B. Jónsdóttur. Leikstjóri verksins er Guðjón Sigvaldason.

Kynning á Yasminu Reza á Smíðaverkstæðinu

Hvers vegna hlær fólk á leikriti sem heitir Vígaguðinn? er yfirskrift dagskrár sem Þjóðleikhúsið mun bjóða upp á á Smíðaverkstæðinu á Vetrarhátíð í Reykjavík þann 7. febrúar nk. Þar verður fjallað um frönsku skáldkonuna Yasminu Reza, eitt vinsælasta leikskáld samtímans, en leikrit hennar Vígaguðinn er sýnt í Þjóðleikhúsinu um þessar mundir. Boðið verður upp á […]

Beinagrindin í Borgarleikhúsinu 6. og 8. febrúar

Alliance française, Borgarleikhúsið og Vetrarhátíð í Reykjavík bjóða landsmönnum upp á japansk- franskan nýsirkus dagana 6. til 9. febrúar, en þá kemur sýningahópurinn Oki Haiku hingað til lands með gullfallega og stórglæsilega sýningu sem ber yfirskriftina Beinagrindin.

Fló á skinni frumsýnd hjá LA

Föstudaginn 8. febrúar verður einn vinsælasti farsi allra tíma, Fló á skinni, frumsýndur hjá LA í glænýrri leikgerð Gísla Rúnars Jónssonar. Fló á skinni hefur áður notið mikillar hylli á fjölum Leikfélags Reykjavíkur og muna margir eftir Gísla Halldórssyni og fleiri ástsælum leikurum í hlutverkum sínum í verkinu. Leikstjóri er María Sigurðardóttir en hún leikstýrði […]

Febrúar – Leikhúsmánuður unga fólksins!

Febrúar er leikhúsmánuður unga fólksins í Þjóðleikhúsinu og Borgarleikhúsinu. Að baki hugmyndinni býr sú sannfæring að leikhúsið eigi brýnt erindi við fólk á öllum aldri og einnig að það sé leikhúsunum nauðsynlegt að eiga samtal við ungt fólk og efla leikhúsaðsókn meðal yngri áhorfenda. Leikhúsin munu af þessu tilefni leggja áherslu á að kynna dagskrá […]

Fjórir hjólastólar og Hundur í óskilum

Rosalegt uppistand verður í Hafnarhúsinu þann 7. febrúar kl. 21:00 þegar gríngengið Hjólastólasveitin og hin landsþekkta hljómsveit Hundur í óskilum rúlla á svið og stíga á stokka. Farið verður með frumsamið og hárbeitt grínefni og flutt verða íslensk þjóðlög og erlendir slagarar á svo kostulegan hátt að seint gleymist. Kynnir er Ágústa Skúladóttir.

Skemmtikvöld hjá Leikfélagi Mosfellssveitar

Föstudaginn 1. febrúar verður frumsýnt skemmtikvöld hjá Leikfélagi Mosfellssveitar. Fram koma hinar stórskemmtilegu Helgafellssystur ásamt félögum úr LM, en þær gerðu garðinn frægan fyrir ári síðan með eftirminnilegri fjáröflunarsamkomu sinni. Handritshöfundur er María Guðmundsdóttir og leikstjóri Kjartan Þórarinsson.

Leikfélag Reykjavíkur frumsýnir Hetjur

Það verður valinn maður í hveru rúmi þegar verkið Hetjur eftir Gerald Sibleyras verður frumsýnt næstkomandi föstudag, þann 1. Febrúar á Nýja sviðinu í Borgarleikhúsinu. Verkið er grátbroslegt og fjallar um vinskap þriggja fyrrverandi hermanna úr fyrri heimsstyrjöld sem dvelja saman á elliheimili.

Leikfélag Rangæinga sýnir Svein sáluga

Laugardaginn 26. janúar frumsýndi Leikfélag Rangæinga leikritið um Svein sáluga Sveinsson í Spjör og samsveitunga hans eftir Önnu Kristínu Kristjánsdóttir og Unni Guttormsdóttur, í Njálsbúð í Landeyjum. Sýningin gekk vel í alla staði og gerðu áhorfendur góðan róm að henni.

Óþelló, Desdemóna og Jagó frumsýnt

Þann 30. janúar verður samvinnuverkefni Draumasmiðjunnar, Leikfélags Reykjavíkur og Íslenska dansflokksins frumsýnt á litla sviði Borgarleikhússins. Verkið heitir Óþelló, Desdemóna og Jagó og er nýstárleg leikgerð Gunnars I. Gunnsteinssonar á Óþelló eftir William Shakespeare, en Gunnar er jafnframt leikstjóri verksins.

Magnús Geir í Borgarleikhúsið

Magnús Geir Þórðarson hefur verið ráðinn í stöðu leikhússtjóra Borgarleikhússins. Stjórn Leikfélags Reykjavíkur var einróma í vali sínu á næsta leikhússtjóra. Inga Jóna Þórðardóttir, formaður stjórnar LR, tilkynnti um ráðninguna á fundi með starfsfólki Borgarleikhússins í hádeginu í dag. Ráðið er í stöðu Borgarleikhússtjóra til fjögurra ára í senn en Guðjón Pedersen, sem gegnt hefur […]

Æfingar hafnar hjá Leikfélagi Siglufjarðar

Fyrir skömmu hófust æfingar hjá Leikfélagi Siglufjarðar á uppsetningu leikársins. Fyrir valinu var bráðfjörgur ærsla- og gamanleikur eftir ítalska leikskáldið Carlo Goldoni. Leikurinn nefnist Tveggja þjónn og var fyrst sýndur hér á landi af Leikfélagi Reykjavíkur fyrir nokkrum áratugum í Iðnó þar sem Arnar Jónsson sló í gegn í aðalrullunni. Hinsvegar var leikurinn frumfluttur á […]

Nemendur Listaháskólans með sýningu í Tjarnarbíói

Föstudaginn 25. janúar kl. 20:00, mun hópur nemenda úr Listaháskóla Íslands sýna perfomans verkið There is a police inside our heads í Tjarnarbíói. Verkið er samvinnuverkefni 14 nemenda úr hönnunar-og arkítektúr-, myndlistar-, tónlistar- og leiklistardeildum Listaháskóla Íslands og varð til á einungis þremur vikum.

Afar skemmtileg afmælissýning

Leikfélag Selfoss sýnir um þessar mundir gamanleikinn Með táning í tölvunni eftir einn virtasta og vinsælasta farsahöfund heims í dag, Ray Cooney. Magnús J. Magnússon var á frumsýningunni þann 11. janúar og skemmti sér hið besta.

Vígaguðinn frumýnt á Smíðaverkstæðinu

Þjóðleikhúsið frumsýnir þann 25. janúar, leikritið Vígaguðinn eftir franska leikskáldið  Yasmina Reza. Leikstjóri er Melkorka Tekla Ólafsdóttir, þýðinguna gerði Kristján Þórður Hrafnsson og leikarar í sýningunni eru Baldur Trausti Hreinsson, Edda Björg Eyjólfsdóttir, Friðrik Friðriksson og Þórunn Lárusdóttir.