Dauði og jarðarber – Síðustu sýningar
Eftir ferðalag um allt land í sumar er Félag flóna komið á höfuðborgarsvæðið með grínharmleikinn Dauða og jarðarber. Leikritið er í leikstjórn Ágústu Skúladóttur (Klaufar og kóngsdætur barnasýning ársins 2004 -Gríman). Leikurinn fjallar um tvo sígaunabræður sem búið hafa hjá ömmu sinni alla ævi. Bræðurnir komast að því sér til mikillar skelfingar á afmælisdag ömmunnar að hún hefur geyspað golunni. Eftir ferðalag um allt land í sumar er Félag flóna komið á höfuðborgarsvæðið með grínharmleikinn Dauða og jarðarber. Leikritið er í leikstjórn Ágústu Skúladóttur (Klaufar og kóngsdætur barnasýning ársins 2004 -Gríman). Leikurinn fjallar um tvo sígaunabræður sem búið hafa hjá ömmu sinni alla ævi. Bræðurnir komast að því sér til mikillar skelfingar á afmælisdag ömmunnar að hún hefur geyspað golunni. Hæfileikar bræðranna hafa verið bældir niður af krafti af ömmu gömlu og hún staðið í vegi fyrir því að þeir geti látið drauma sína rætast. En nú er hún gamla amma dauð og bræðurnir þurfa ekki að búa á bænum lengur. Spurning um hvað tekur við? Á að halda búskap áfram að hætti ömmunar eða láta ferðaeðlið taka yfirhöndina og láta drauma sína rætast. Bræðrunum eru allir vegir færir eða hvað? Aðeins verða nokkrar sýningar í Möguleikhúsinu við Hlemm og verða þær sem hér segir: Miðvikudag 7. september Föstudag 9. september Laugardag 10. september Sýningar hefjast kl 21:00 Sýningin er um ein klukkustund. Miðapantanir eru í síma 695-4358 g...
Read More


