Velheppnuð fyrirlestrahelgi í Hafnarfirði
Nú um helgina stóð Leiklistarskóli Bandalagsins í fyrsta skipti fyrir fyrirlestrahelgi. Í þetta skiptið var umræðuefnið "Hinar þúsund þjalir leikstjórans" þar sem fjallað var um samvinnu leikstjórans við hina listrænu hönnuði leiksýningarinnar. Snillingarnir Snorri Freyr Hilmarsson leikmyndahönnuður, Þórunn Elísabet Sveinsdóttir búningahönnuður, Ásta Hafþórsdóttir leikgervahönnuður og Egill Ingibergsson ljósahönnuður leiddu þáttakendur í allan sannleika um hina óteljandi möguleika sem felast í leikhúsinu. Hin geðþekka leikhússkona Sigrún Valbergsdóttir stjórnaði síðan af röggsemi umræðum milli fyrirlesara og þáttakenda. Á sunnudag hélt fólk svo heim uppfullt af hugmyndum um hvernig ætti að framkalla töfra leiksviðsins Snorri Freyr reið á vaðið á laugardag þar sem hann fjallaði um vinnuna við leikmyndina. Hann...
Read More


