Author: lensherra

Leikfélag Ölfuss

Formaður: Erla Dan Jónsdóttir erladanj@gmail.com 8449590 Gjaldkeri: Magnþóra Kristjánsdóttir magnthora@gmail.com 6610501 Ritari: Helena Helgadóttir Meðstjórnandi: Óttar Parwes Sharifi Ingólfsson Meðstjórnandi: Hallgrímur Pétur Möller...

Read More

Japanskar gestasýningar í Þjóðleikhúsinu

Í ár eru liðin 50 ár frá því stjórnmálasamband var tekið upp á milli Japans og Íslands. Af því tilefni verða fjórar japanskar gestasýningar í Þjóðleikhúsinu, tvær í vor og tvær í haust.  Fyrsta sýningin verður danssýningin Genji í Kassanum 7. og 8. júní nk. en 25. júní er röðin komin að sýningu ACO Okinawa – Undir sjöstjörnu sem sýnd verður á Stóra sviðinu. Genji er nútímadansverk sem tengir saman ólík og sígild listform frá Japan, m.a. Noh-formið. Verkið byggir á kafla úr Genji Monogatari, þekktri sígildri japanskri skáldsögu frá 11. öld. Sagan segir frá lífi aðalsmannsins Hikaru Genji. Aoi no ue, eiginkona Hikaru Genji, þjáist af dulinni en heiftarlegri afbrýði í garð ástkonu eiginmanns síns. Afbrýðisemin heltekur líkama Aoi no ue með afar neikvæðum afleiðingum. Noh er sígilt japanskt sýningarform sem sameinar dans-, leik-, tón- og ljóðlist í eina listgrein. Fjarri tíma og rúmi, býður tómt Noh-sviðið gestum inn í heim ástríðna sem eru tjáðar með nútíma danshreyfingum. Shomyo, búddísk bæn, og Gagaku, forn japönsk hirðtónlist (hvor tveggja frá 9. öld) umlykur þessa tímalausu veröld. Ryohei Kondo og Sengiku Bando dansa í sýningunni og eru danshöfundar en Sengiku er jafnframt leikstjóri. Tvær sýningar verða í Kassanum í Þjóðleikhúsinu, dagana 7. og 8. júní nk. 25. júní nk. mun ACO Okinawa flytja íslenskum áhorfendum menningararfleifð frá Okinawa í sýningu sem er innblásin af frumkvöðlum þeirra á sviði ferðalaga og...

Read More

Leiklistarnámskeið á Akureyri

Undanfarin misseri hefur Leikfélag Akureyrar staðið fyrir námskeiðum fyrir börn og unglinga. Námskeiðin hafa verið afar vinsæl og uppselt á öll námskeið. Á leiklistarnámskeiðum læra nemendur að koma fram, öðlast sjálfstraust, læra undirstöðuatriði í sviðstækni, efla sköpun og einbeitingu og vinna skemmtileg verkefni í samvinnu við aðra nemendur. Síðast líðið sumar sóttu 80 nemendur námskeið á vegum LA. Ný námskeið 2006: Í sumar stendur LA aftur fyrir leiklistarnámskeiðum, en námskeiðin í fyrra slógu rækilega í gegn og komust færri að en vildu. Leiklistarnámskeið er sambland af skemmtun og alvöru, þar sem markmiðið er að efla einbeitingu, frumkvæði, skapandi hugsun og tilfinningalegt innsæi nemenda, auk þess að þroska með þeim hæfileikann til að vinna í náinni samvinnu með öðrum. Kennslan fer fram með æfingum og leikjum. Nemendur fá þjálfun í að koma fram fyrir framan aðra. Farið verður í spuna, leikhússport og æfðar stuttar senur eftir því sem efni standa til. Nemendur og kennari spinna sig saman gegnum ævintýri leikhússins. Kennari á námskeiðunum er Hildigunnur Þráinsdóttir, leikkona.  Verð: 9.000  Námskeiðin verða sem hér segir: 8 – 9 ára:  20.– 30. júni. Kennt þri, mið, fim og fös kl. 13 – 15 12 – 14 ára:  20.– 30. júni. Kennt þri, mið, fim og fös kl. 15.30  – 17.30 10 – 11  ára:  4.– 14. júlí. Kennt þri, mið, fim og fös kl. 13 – 15 Nýtt! Framhald fyrir krakka sem...

Read More

Síðustu sýningar á ALF í Kópavogi

Leikfélag Kópavogs auglýsir síðustu sýningar á ALF eða Andspyrnuhreyfingu ljóta fólksins. Leikstjóri er Oddur Bjarni Þorkelsson en hann er jafnframt höfundur verksins ásamt Guðjóni Þorsteini Pálmarssyni. Sýnt er í Hjáleigunni í Kópavogi. ALF er blóðugt háð og óhugguleg ádeila á taumlausa útlitsdýrkun. Þegar þessi misfríði en jafnskemmtilegi hópur fólks hóf samstarf sitt kom í ljós að ýmsum fannst pottur brotinn í samfélagi okkar. Allir höfðu tekið eftir einu og öðru sérkennilegu í umhverfinu en ekki hugsað nánar um það fyrr en þessi hópur kom saman. Samsæriskenningar spruttu upp og andspyrnuhreyfingin varð til. Endalaust er verið að hygla og hampa...

Read More

Frumsýning á Viltu finna milljón

Á morgun föstudag 19.maí frumsýnir Leikfélag Reykjavíkur á Nýja sviði Borgarleikhússins, gamanfarsann Viltu finna milljón? eftir Ray Cooney. Landslið grínara fer á kostum í þessum frábæra gamanleik í snilldarþýðingu Gísla Rúnars Jónssonar.   Leikarar: Eggert Þorleifsson, Helga Braga Jónsdóttir, Marta Nordal, Þórhallur Sigurðsson (Laddi), Bergur Þór Ingólfsson, Gunnar Hansson, Guðmundur Ólafsson og Theodór Júlíusson. Leikmynd: Sigurjón Jóhannsson. Búningar: Stefanía Adolfsdóttir. Hljóðhönnun: Jakob Tryggvason. Lýsing: Halldór Örn Óskarsson. Leikgerfi: Sigríður Rósa Bjarnadóttir. Tónlist: Sniglabandið. Þýðing og staðfærsla: Gísli Rúnar Jónsson. Leikstjórn: Þór Tulinius.   Verkið heitir á frummálinu Funny money og er eftir Ray Cooney. Leikritið hefur farið sigurför um Evrópu og Ameríku síðan það var frumsýnt í London 1994.  Ray Cooney er að góðu kunnur íslenskum áhorfendum en gleðileikurinn “Með vífið í lúkunum” í leikstjórn Þórs Tulinius, var sýnt tvö leikár í röð fyrir fullu húsi í Borgarleikhúsinu.   Hvað myndir þú gera ef þú fyndir tösku með 400 milljónum og vissir að enginn gæti farið til lögreglunnar? Verkið segir frá hjónunum Haraldi og Ingibjörgu, sem leikin eru af Eggerti Þorleifssyni og Helgu Brögu Jónsdóttur. Haraldur hefur unnið hjá skattinum á lúsarlaunum svo lengi sem elstu menn muna, einn daginn finnur hann fulla tösku af peningum, þetta er vanur maður sem sér að að féð er illa fengið en hann ákveður að þetta sé hans tækifæri til betra lífs og fer beint í að panta flug aðra leiðina út...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert