Námskeið í leiklist og söng
Söng- og leiklistarskólinn SÖNGLIST og BORGARLEIKHÚSIÐ standa fyrir námskeiðum í leiklist og söng fyrir börn og unglinga í sumar. SÖNGLIST hefur verið starfandi síðan 1998, þar af þrjú síðustu árin í samstarfi við BORGARLEIKHÚSIÐ, þar sem skólinn er til húsa. Eins og ávallt, munu einungis fagmenntaðir kennarar sjá um kennslu. Kennd verða undirstöðuatriði í einbeitingu, trausti, raddbeitingu og leikgleði. Unnið er markvisst að því að virkja sköpunarkraft nemenda og efla sjálfstraust. Kennslan í sumar byggist aðallega á leiklistaræfingum, en einnig verður farið yfir undirstöðuatriði í söngtækni og æfð lög. Í lok hvers námskeiðs er sýning á sviði BORGARLEIKHÚSSINS þar sem foreldrum og aðstandendum gefst kostur á að koma og sjá afrakstur námskeiðsins. Hægt er að velja um sex námskeið: 1. 19. júní – 23. júní 2. 26. júní – 30. júní 3. 03. júlí – 07. júlí 4. 10. júlí – 14. júlí 5. 17. júlí – 21. júlí 6. 24. júlí – 28. júlí Kennsla er frá kl. 10:00-16:00. Aldur þáttakenda er 8-10 ára og 11-13 ára. Skráning fer fram í miðasölu Borgarleikhússins í síma: 568-8000 og á www.borgarleikhus.is Sönglist. Gleði – uppbygging – fagmennska – framfarir. Sönglist. Bara hollt!...
Read More


