Tvö plass laus í skólann vegna forfalla!

Tvö pláss á sérnámskeið fyrir leikara voru að losna vegna forfalla í Leiklistarskóla Bandalags íslenskra leikfélaga sem settur verður nk. laugardag. Kennari er Rúnar Guðbrandsson. Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa reynslu í leikhúsi. Þeir ganga fyrir sem sótt hafa Leiklist I og II eða sambærileg námskeið eða hafa talsverða reynslu af sviðsleik.Námskeiðið snýst um […]

Út í kött! á Björtum dögum í Hafnarfirði

Lýðveldisleikhúsið sýnir Út í kött! nýjan dans og söngleik fyrir börn í Hafnarfjarðarleikhúsinu um helgina, alls þrjár sýningar og eru þær liður í hátíðinni Björtum dögum. Verkið er ævintýraleikur fyrir börn á öllum aldri og fjallar um tvo krakka og ferðalag þeirra um tölvu og ævintýraheima. Leikin atriði mynda skemmtilega umgjörð utan um söng- og […]

Við borgum ekki! Við borgum ekki! í Borgarleikhúsinu

Laugardaginn 6. júní frumsýnir Leikhópurinn Nýja Ísland farsann Við borgum ekki! Við borgum ekki! eftir Nóbelsskáldið Darío Fo á Nýja sviði Borgarleikhússins. Leikstjóri er Þröstur Leó Gunnarsson. Þetta er drepfyndinn og hárbeittur gamanleikur um það sem gerist þegar neyðin kennir nakinni konu að spinna lygavef.

Uppdeitaðir víkingar taka Þjóðleikhúsið

Það brutust út fagnaðarlæti norður í landi þegar það fréttist að Rokksöngleikurinn Vínland hafði verið valinn til sýningar í Þjóðleikhúsinu.  Menn ýmist urðu orðlausir eða brustu í grát eins og Óskarinn væri loksins í höfn. Af sjálfsögðu var umsvifalaust slegið upp fagnaðarpartíi og glaðst fram undir morgun eins og leikhópurinn gerir stundum. En núna nokkrum […]

Djúpið frumsýnt í Borgarleikhúsinu

Föstudaginn 5. júní verður einleikurinn Djúpið frumsýnt í Borgarleikhúsinu. Höfundur og leikstjóri verksins er Jón Atli Jónasson en leikari er Ingvar E. Sigurðsson. Djúpið er frásögn úr íslenskum veruleika sem lætur engan ósnortinn. Þetta er óður til allra þeirra fjölmörgu, íslensku sjómanna sem í gegnum aldirnar hafa haldið á djúpið. Bátur heldur úr höfn rétt […]

Elvis – Leiðin heim sýnt hjá Leikfélagi Fljótsdalshéraðs

Elvis – leiðin heim er barnaleikrit fyrir alla fjölskylduna eftir Sigurð Ingólfsson var frumsýnt í Bragganum á Egilsstöðum þann 30. maí sl. í leikstjórn höfundar. Tónlistin í verkinu er samin og stjórnað af Magnúsi Helgasyni, fyrir utan Fangablús sem er íslensk útgáfa af Jailhouse Rock með Elvis Presley í útsetningu Magnúsar Helgasonar.

Litli leikklúbburinn sýnir í Reykjavík um helgina

Alþýðlega leik- og söngskemmtuninn Við heimtum aukavinnu! sem hefur verið sýnd yfir 10 sinnum fyrir troðfullu Edinborgarhúsi á Ísafirði verður nú sýnd í Reykjavík. Sýnt verður í Gullhömrum í Grafarholti um Hvítasunnuhelgina. Miðasala er þegar hafinn og um að gera að vera snöggur að panta því aðeins verða þrjár sýningar í boði.

Ó, þú enn og aftur – Aukasýningar hjá Hugleik

Hugleikur hefur bætt við aukasýningum á sveitalífsleiknum Ó, þú aftur? vegna mikillar aðsóknar. Allra síðustu forvöð til að fylgjast með afdrifum saklausa sveitafólksins í höfuðborgarsollinum verða á Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins þriðjudaginn 2. og miðvikudaginn 3. júní.

Tilnefningar til Grímunnar 2009

grimanlogo

Leiklistarsamband Íslands boðar til fréttamannafundar á morgun, föstudaginn 29. maí, á stóra sviði Borgarleikhússins. Fundurinn hefst kl. 15. Tilkynnt verður um hvaða sýningar og listamenn hljóta tilnefningar til Grímunnar – Íslensku leiklistarverðlaunanna árið 2009. Forseti Íslands Hr. Ólafur Ragnar Grímsson, sem jafnframt er verndari Grímunnar, afhendir þeim rúmlega 100 sviðslistamönnum viðurkenningar er tilnefningar hljóta. Kynnar […]

Leikfélag Patreksfjarðar frumsýnir nýtt leikrit

Föstudaginn 29. maí frumsýnir Leikfélag Patreksfjarðar leikritið Ástir í meinum, fjársjóður í leynum – eða nauðsynleg genablöndun? Patreksfirskt ævintýri, í leikstjórn höfundar verksins, Dóru Jóhannsdóttur. Önnur sýning verður á laugardaginn 30. maí. Verkið er byggt á sögum sem Sjóræningjahúsið á Patreksfirði notar í sinni sýningu og fjallar um komu sjóræningja til Patreksfjarðar og samskipti þeirra […]

Sædýrum fagnað í Frakklandi

Leikhópur Þjóðleikhússins frumsýndi í gær Sædýrasafnið eftir Marie Darriuessecq í Orléans. Verk þetta, sem sérstaklega var skrifað fyrir Þjóðleikhúsið og sýnt í Kassanum í mars, verður sýnt sex sinnum þar ytra og er uppselt á allar sýningarnar. Sædýrasafnið er fyrsta leikrit frönsku skáldkonunnar Marie Darrieussecq en er unnin í samstarfi við fyrrgreint ríkisleikhús í Orléans […]

Aðalfundur Halaleikhópsins 2009

Fimmtudaginn 28. maí kl. 20.00 verður aðalfundur Halaleikhópins haldinn í Halanum Hátúni 12, 105 Reykjavík. Dagskrá aðalfundar verður samkvæmt lögum félagsins.

Síðustu sýningar á Ó, þú aftur?

Nú eru aðeins þrjár sýningar eftira af sýningu Hugleiks á Ó, þú aftur? eftir Ingibjörgu Hjartardóttur, Sigrúnu Óskarsdóttir og Unni Guttormsdóttur í leikstjórn Odds Bjarna Þorkelssonar á Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins. Þær eru miðvikudaginn 27. maí, fimmtudaginn 28. maí og föstudaginn 29. maí. Að hugleikskum sið leikur tónlist stórt hlutverk í sýningunni, en höfundar hennar eru Ljótu […]

Aukasýning á Kaffileikhúsi Halaleikhópsins

Líf og fjör hefur verið í Halanum undanfarnar vikur. Innanfélagsmenn hafa tekið höndum saman og æft stíft, bæði stuttverk og tónlist. Nokkrar húsmæður tóku sig til og gerðu helling af brauðtertum, skúffukökum og kleinum. Sem rann ljúft í gesti Kaffileikhússins 21. maí sl. Þá var uppselt og fólk varð frá að hverfa á fimmtudaginn svo […]

Leikritunarsjóðurinn Prologos auglýsir eftir umsóknum

Leikritunarsjóðurinn Prologos auglýsir eftir umsóknum vegna þriðju úthlutunar úr sjóðnum. Umsóknarfrestur er til 1. júní, en úthlutað verður í júnímánuði. Markmið Leikritunarsjóðsins Prologos er að hlúa að leikritun á Íslandi og efla höfundastarf við Þjóðleikhúsið, sem og að stuðla að framþróun og eflingu leiklistarinnar. Prologos veitir árlega allt að sex höfundum styrk til að vinna […]

Leikhópurinn Lotta frumsýnir Rauðhettu

Laugardaginn 23. maí klukkan 14:00 frumsýnir Leikhópurinn Lotta splunkunýtt barna- og fjölskylduleikrit eftir Snæbjörn Ragnarsson. Leikritið heitir Rauðhetta og í því er fléttað saman þremur af þekktustu Grimms ævintýrunum, Rauðhettu, Hans og Grétu og Grísunum þremur. Snæbjörn semur einnig tónlist og söngtexta ásamt Baldri Ragnarsyni og Gunnari Ben. Þetta er útisýning og fer frumsýningin fram […]

Hel á Listahátíð í Reykjavík 23. og 24. maí

Ný íslensk ópera verður frumflutt í Íslensku óperunni á Listahátíð í Reykjavík um komandi helgi. Hér er um að ræða óperuna Hel eftir Sigurð Sævarsson tónskáld, sem byggð er á samnefndri sögu eftir Sigurð Nordal, en textinn í verkinu er saminn af leikhópnum sem setur hana upp, Hr. Níelsi. Óperan verður frumflutt laugardagskvöldið 23. maí […]

Fúlar á móti, síðustu sýningar í Óperunni

Sýning Leikfélags Akureyrar Fúlar á móti hefur gengið fyrir fullu húsi í Íslensku óperunni undanfarið. Edda Björgvins, Helga Braga og Björk Jakobs eru Fúlar á móti og þetta er í fyrsta sinn sem þessar vinsælustu uppistandsleikkonur þjóðarinnar leika saman í sýningu. Þær skauta af sinni alkunnu snilld í gegnum síðara skeiðið og gera óspart grín […]

Út í kött! – Dans og söngleikur fyrir börn

Lýðveldisleikhúsið frumsýnir nýtt íslenskt leikverk fyrir börn þann 26. maí n.k. í Gerðubergi. Þetta er dans og söngleikur sem ber nafnið Út í kött! og fjallar um tvo krakka og ferðalag þeirra um tölvu og ævintýraheima. Þessi ævintýraleikur er fyrir börn á aldrinum fjögurra til tólf ára en fullorðnir ættu líka að hafa gaman að […]

Hugarflug hjá Leikfélagi Selfoss

Vor í Árborg stendur nú fyrir dyrum og þá blómstrar menningarlífið sem aldrei fyrr í sveitarfélaginu. Leikfélag Selfoss lætur ekki sitt eftir liggja í dagskránni og bíður upp á hið sívinsæla Hugarflug í tengslum við hátíðina og verður það sýnt 23. maí kl. 17:00 og 24. maí kl. 14:00 í Litla leikhúsinu við Sigtún. Að […]

Fyrir og eftir syndafallið

Ó, þú aftur? er ný og endurgerð uppfærsla á leikritinu Ó, þú eftir Ingibjörgu Hjartardóttur, Sigrúnu Óskarsdóttur og Unni Guttormsdóttur. Leikritið var frumsýnt af Hugleik á Galdraloftinu vorið 1987 og nú, rúmlega tuttugu árum síðar, er komið að því að færa þetta velumtalaða leikrit (og költverk) upp á nýjan leik á Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins. Megintilefnið er […]

Halaleikhópurinn með Kaffileikhús á Uppstigningardag

Á uppstigningardag, 21. mai kl. 17.00, verður kaffileikhús hjá Halaleikhópnum í Halanum Hátúni 12 (norðanverðu við hliðina á þar sem Góði Hirðirinn var). Sýnd verða þrjú stuttverk eftir Benoný Ægisson, Jónínu Leósdóttir og Ármann Guðmundsson. Leikstjóri er Gunnar „Gunsó“ Gunnarsson. Milli atriða verða leika hljómsveitir auk þess sem uppistandararnir í Hjólastólasveitinni troða upp. Aðeins verður […]

Brunað í gegnum Bólu-Hjálmar í Leikhúsinu

Stoppleikhópurinn sýnir nk. mánudag 18. maí í Leikhúsinu Funalind 2 í Kópavogi, nýtt íslenskt leikrit byggt á lífi og ljóðum Bólu-Hjálmars. Sýningin hefst kl.20.00. Verkið nefnist Brunað í gegnum Bólu-Hjálmar en það var frumsýnt í maí sl. í Iðnó. Hefur það síðan verið á leikferð um landið þar sem sýningar fóru fram bæði í grunnskólum […]

Og hvað svo?! í Flensborgarskóla

Spunaverkið Og hvað svo?! í leikstjórn Eyrúnar Óskar Jónsdóttur er sýnt um þessar mundir hjá leiklist Flensborgarskólans í Hafnarfirði. Þar er fjallað á lifandi og frumlegan hátt um um atburði síðastliðnu mánuða, hvernig þeir blöstu við þeim og hvaða framtíð þau sjá fyrir sér fyrir. Sýningin er með óhefðbudnum hætti, en þetta er svo kölluð […]

Leiklistarvefurinn uppfærður

Leiklistarvefurinn var uppfærður í dag og þó notendur sjái þess sennilega lítil ytri merki er ástæða til að benda á nokkra hluti. Nú er t.d. hægt að tengja einstakar síður á Facebook með einföldum hætti. Neðst í hverri frétt eða grein er að finna táknmynd fyrir Facebook. Með því að smella á hana geta Facebook […]

Hugleikur frumsýnir Ó, þú aftur á Smíðaverkstæðinu

Hugleikur frumsýnir Ó, þú aftur eftir Ingibjörgu Hjartardóttur, Sigrúnu Óskarsdóttir og Unni Guttormsdóttur í leikstjórn Odds Bjarna Þorkelssonar á Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins föstudaginn 15. maí kl. 20. Að hugleikskum sið leikur tónlist stórt hlutverk í sýningunni, en höfundar hennar eru Ljótu hálfvitarnir Þorgeir Tryggvason, Eggert Hilmarsson, Sævar Sigurgeirsson og Oddur Bjarni Þorkelsson.

Aðalfundur Leikfélagsins Sýnir

Aðalfundur Leikfélagsins Sýnir verður haldinn að Eyjarslóð 9, Reykjavík, sunnudaginn 24. maí nk. kl. 20.00.  Á dagskrá verða hefðbundin aðalfundarstörf og umræður um komandi sumarstarf.

SPLIINNG! – Sálarstyrkjandi dagskrá með kryppu í Iðnó

Um síðustu helgi frumsýndi Leikhópurinn Þíbilja sýninguna SPLIINNG! – Sálarstyrkjandi dagskrá með kryppu í Iðnó. SPLIINNG! er sýning sem fær áhorfandann til að sjá broslegu hliðarnar á þjóðfélagsástandinu. Blanda af söng, sögum úr samtímanum og sprenghlægilegum uppákomum. Upplýsandi og mannbætandi samverustund með kre … uhh… með kryppu. Hugmyndavinnu og handrit unnu Þór Tulinius, Guðmundur Ólafsson […]

Söngvaseiður frumsýndur á föstudag

Borgarleikhúsið frumsýnir Söngvaseið föstudaginn 8. maí nk. Söngvaseiður er einn þekktasti söngleikur allra tíma enda haldast þar í hendur hrífandi tónlist og hjartnæm saga. Verkið var frumflutt í New York árið 1959 og hefur tvisvar verið sett upp í atvinnuleikhúsi hér á landi. Tónlistin er löngu orðin sígild og nægir þar að nefna lög eins […]

Viðurkenningar á afmælishátíð LS

Þegar Leikfélag Sauðárkróks (LS) var endurreist árið 1941 var fyrsta leiksýningin, Nýársnóttin eftir Indriða Einarsson, sýnd á Sæluviku vorið 1942 í félagsheimilinu Bifröst. Um síðustu helgi, á Sæluviku 67 árum síðar, fengu þrjár konur sem tóku þátt í þessari sýningu smá virðingarvott frá stjórn LS. Þetta voru heiðurskonurnar Hanna Pétursdóttir, Anna Pálína Guðmundsdóttir og Gunnhildur […]

Sýningum lokið á Sjóræningjaprinsessunni

Nú er sýningum á fjölskylduleikritinu Sjóræningjaprinsessunni hjá Leikfélagi Selfoss lokið. Sýningin fékk frábærar viðtökur og lof gagnrýnenda sem og leikhúsgesta og er með allra vinsælustu sýningum leikfélagsins. Alls sáu um 1800 manns sýninguna en sýndar voru 22 sýningar í heildina. Uppselt var á nánast allar sýningar svo oft á tíðum komust færri að en vildu. […]

Aukasýningar á Sauðárkróki

Uppselt er á sjö fyrstu sýningar afmælisverks Leikfélags Sauðárkróks, Frá okkar fyrstu kynnum. Því hefur verið ákveðið að setja á tvær aukasýningar um næstu helgi, en samanlagt verða þá fjórar sýningar á laugardag og sunnudag. Miðasala er í hjá Herdísi í Kompunni Aðalgötu 4, og í síma 849-9434.

Nýtt íslenskt leikrit hjá Leikfélagi Mosfellssveitar

Laugardaginn 2. maí var leikritið Chez Magga frumsýnt hjá Leikfélagi Mosfellssveitar. Þetta er nýtt íslenskt gamanleikrit eftir Maríu Guðmundsdóttur í leikstjórn Guðnýjar Maríu Jónsdóttur, en alls taka þátt í uppsetningunni 19 leikarar og tónlistarmenn. Á sýningunni eru leikhúsgestir boðnir velkomnir á ekta franskt kaffihús þar sem ýmsar skemmtilegar uppákomur eiga sér stað.

Ályktun frá aðalfundi Bandalagsins

Aðalfundur Bandalags Íslenskra leikfélaga, haldinn að Hlíð í Ölfusi 1. maí 2009 samþykkti svohljóðandi ályktun. Öflug og fjölbreytt starfsemi íslenskra áhugaleikfélaga er sú grasrót sem leiklistarlíf þjóðarinnar sækir næringu sína í. Mikilvægi starfseminnar fyrir blómlega menningu um landið allt verður ekki dregið í efa. Fólk á öllum aldri og úr öllum stéttum og stöðum þjóðfélagsins […]

Vínland valin athyglisverðasta áhugaleiksýningin

Sýning Freyvangsleikhússins á söngleiknum Vínland eftir Helga Þórsson var valin athyglisverðasta áhugaleiksýning leikársins 2008-2009 af dómnefnd Þjóðleikhússins. Þetta er í sextánda sinn sem athyglisverðasta áhugaleiksýning er valin en sú sýningin er jafnan sýnd í Þjóðleikhúsinu á vordögum. Þetta er jafnframt í þriðja sinn sem Freyvangsleikhúsið fer með sýningu í Þjóðleikhúsið.

Ökutímar í Borgarleikhúsinu

Sýningar á verðlaunaleikritinu Ökutímar hefjast í Borgarleikhúsinu 2. maí næstkomandi en uppsetning verksins fékk afbragðs viðtökur hjá Leikfélagi Akureyrar á síðasta ári. Ökutímar er margslungið leikrit sem segir þroskasögu ungrar stúlku, Lillu. Fjölskylda hennar er allt annað en venjuleg. Mamma og amma keppast við að leggja henni lífsreglurnar. En er Peck bara góður frændi þegar […]

Opnar prufur fyrir kvikmyndina Gauragangur

Zik Zak kvikmyndir og Gunnar B. Guðmundsson, leikstjóri Astrópíu, leita að fólki frá 14 ára og uppúr í aðal- og aukahlutverk fyrir nýja kvikmynd byggða á metsölu bók Ólafs Hauks Símonarsonar. Kvikmyndin verður tekin upp í haust. Prufur í Reykjavík verða sunnudaginn 10. maí – Reykjavík á Kaffi Oliver frá kl. 11-20.

Dauði í kreppunni

Hörður S. Dan. skellti sér nýskeð á sýningu í Jaðarleikhúsinu á verk sem heitir Dauði í kreppunni. Þetta er nýtt verk eftir hann Guðna Líndal Benediktsson sem einnig er leikstjóri verksins. Þetta hafði Hörður að segja um upplifunina:

Menningarlandið 2009 á Stykkishólmi 11. og 12. maí

Frá árinu 2001 hafa menntamálaráðuneyti og samgönguráðuneyti, síðar iðnaðarráðuneyti, gert menningarsamninga við sjö samtök sveitarfélaga á Íslandi. Landið allt, utan höfuðborgarsvæðisins, er tengt saman með menningarsamningum um markvissan stuðning ríkissjóðs við menningarstarf og menningartengda ferðaþjónustu gegn mótframlagi sveitarfélaga og einkaaðila í héraði.

Allt á Rúi og Stúi í Leikhúsinu

Leikfélag Kópavogs frumsýnir barnaleikritið Rúa og Stúa fimmtudaginn 30.apríl kl. 18.00 í Leikhúsinu við Funalind. Rúi og Stúi eru sérkennilegir uppfinningamenn sem hafa fundið upp vél sem getur búið til eða lagað hvað sem er.Bæjarbúar eru afar ánægðir með vélina eins og gefur að skilja en blikur eru á lofti þegar vélin bilar og bæjarstjórinn […]