Author: lensherra

Leiklistarskóli BÍL 2022

Leiklistarskóli BÍL verður haldinn að Reykjum í Hrútafirði dagana 18. – 26. júní í sumar. Að þessu sinni verður boðið upp á 3 námskeið; Leiklist I, kennari Ólafur Ásgeirsson, Leikstjórn II, kennari Jenný Lára Arnþórsdóttir og Sérnámskeið fyrir leikara undir stjórn Ágústu Skúladóttur. Opnað verður fyrir skráningar 10. mars. Nánari námskeiðslýsingar verða birtar hér innan...

Read More

Ferðamaður deyr

Leikfélag Hafnarfjarðar frumsýnir laugardaginn 22. janúar nýtt gamanleikrit eftir höfundasmiðju leikfélagsins í leikstjórn Ólafs Þórðarsonar. Í kjallara í Reykjavík er hópur fólks í miðjum klíðum að standsetja íbúð fyrir útleigu til ferðamanna. Af óviðráðanlegum ástæðum neyðast þau skyndilega til að hýsa ferðamann í hálfköruðu húsnæðinu, sem leiðir af sér atburðarás sem ekkert þeirra hefði nokkurn tíma órað fyrir. Sýningar verða í Leikhúsinu, Funalind 2 í Kópavogi og sýnt verður á eftirtöldum dögum: Laugardagur 22. janúar kl. 20.00 (frumsýning, uppselt) Sunnudagur 23. janúar kl. 20.00 Þriðjudagur 25. janúar kl. 20.00 Fimmtudagur 27. janúar kl. 20.00 Laugardagur 29. janúar kl. 20.00...

Read More

Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins 2022

Þrátt fyrir óvissu vegna Covid, stefnir Þjóðleikhúsið á val á Athyglisverðustu áhugaleiksýningu ársins næsta vor. Þjóðleikhúsið hefir verið í samstarfi við Bandalagið í tæpa þrjá áratugi með vali á leiksýningu úr smiðju áhugaleikfélaganna sem sérstaka athygli vekur. Í kjölfarið hefur viðkomandi félagi verið  boðið að sýna í Þjóðleikhúsinu. Covid hefur komið í veg fyrir valið síðastliðin tvö ár en að óbreyttu er stefnt á að velja sýningu á vori komanda. Að þessu sinni verður hægt að sækja um fyrir sýningar sem frumsýndar voru leikárin 2020-21 og 2021-22 fram til loka umsóknarfrests sem er 20. apríl 2022. Sótt er um á...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert