Tilbrigði við stef í Iðnó
Þú situr ein(n) á kaffihúsi á aðfangadag, ætlar að taka lífinu með ró og safna kröftum áður en hátíðina ber að garði. Inn af götunni gengur sú manneskja sem þú áttir síst von á og vildir ekki undir neinum kringumstæðum hitta. Hvað gerir þú? Hvað gerir hún? Hvernig mun fortíðin ykkar hafa áhrif á þennan […]
Lokasýning á Ástardrykknum á laugardaginn
Uppfærsla Íslensku óperunnar á Ástardrykknum eftir Donizetti hlaut afbragðsgóðan dóm í heilsíðuumfjöllun í einu virtasta óperutímariti heims, Opera Now, í janúar/febrúar-heftinu árið 2010. Gagnrýnandinn Ingrid Gäfvert kom hingað til lands á frumsýninguna og segir í upphafi greinar sinnar: „Kannski eru erfiðir tímar á Íslandi en opnunarsýning vetrarins hjá þjóðaróperunni var einstaklega skemmtilegur viðburður.“
Sindra silfurfiski boðið á Bibu barnaleikhúshátíðina

Þjóðleikhúsið hefur fengið boð um að sýna barnaleikritið Sindra silfurfisk eftir Áslaugu Jónsdóttur á barnaleikhúshátíðinni Bibu, sem haldinn verður í Lundi í Svíþjóð dagana 5.–8. maí í vor. Hátíðin er haldin annað hvert ár og þarna kemur saman barnaleikhúsfólk víða að úr veröldinni til þess að sjá það besta sem hið fjölbreytta sænska barnaleikhús hefur […]
Plastpokablús
Leikfélag KópavogsUmbúðalaustLeikstjóri: Vigdís Jakobsdóttir Ekkert íslenskt leikfélag leggur eins mikið upp úr vinnubrögðum „Devised theatre“ og Leikfélag Kópavogs. Í fréttatilkynningum um nýjustu sýningu félagsins kemur fram að það sé beinlínis stefna að árlega sé sett á svið amk ein sýning sem unnin er á þennan hátt; sköpuð frá grunni af leikhóp, leikstjóra og hjálparkokkum, með […]
Styttist í frumsýningu hjá Halaleikhópnum
Halaleikhópurinn vinnur þessa dagana hörðum höndum að uppsetningu á leikverkinu „Sjöundá – Svartfugl Gunnars Gunnarssonar“ sem á að frumsýna föstudaginn 5. febrúar klukkan 20.00. Um er að ræða nýja leikgerð eftir þau Ágústu Skúladóttur leikstjóra og Þorgeir Tryggvason í samvinnu við leikhópinn. Verkið fjallar um eitt þekktasta sakamál Íslandssögunnar, morðin á Sjöundá og réttarhöldin yfir […]
Bólu-Hjálmar í Þjóðleikhúsinu
Stoppleikhópurinn sýnir miðvikudaginn 27. og fimmtudaginn 28. janúar nk. kl. 20.00 í Þjóðleikhúsinu verðlaunaleiksýninguna Bólu-Hjálmar en leikritið er byggt á lífi og ljóðum Bólu-Hjálmars. Sýningin hlaut Grímuverðlaunin sem Barna- og unglingaleiksýning ársins 2009. Verkið var frumsýnt 22. maí 2008 í Iðnó og hefur síðan verið á leikferð um landið þar sem sýningar hafa farið fram […]
Hárbeitt leikhús um íslenska þjóð
Föstudaginn 22. janúar kl. 20 verður frumsýnt á Nýja sviðinu nýtt íslensk leikverk Góðir Íslendingar eftir þá Hall Ingólfsson, Jón Pál Eyjólfsson og Jón Atla Jónasson. Verkið er hárbeitt ádeilda á íslenskt samfélag og hvernig við glímum við afleiðingar efnahagshrunsins sem á okkur dundi. Í Góðir Íslendingar er verið að skoða sjálfsmynd íslensku þjóðarinnar sem […]
Emil í Kattholti er mættur í Hveragerði
Leikfélag Hveragerðis hefur hafist handa við uppsetningu á hinni geysivinsælu sögu um Emil í Kattholti eftir Astrid Lingren. Strákskrattann og fjörkálfinn Emil ættu flestir að þekkja enda mörg uppátækin sem hann hefur framið og hefur Týtuberja-Mæja verið iðin við að dreifa fregnum af fjölskyldunni í Kattholti til nærliggjandi bæja. Skrautleg saga sem gleður hjörtu allra. […]
Nemendaleikhús LHÍ frumsýnir Bráðum hata ég þig
Nemendaleikhús Listaháskóla Íslands frumsýnir nýtt íslenskt verk, Bráðum hata ég þig, eftir Sigtrygg Magnason þann 21. janúar n.k. í Smiðjunni, Sölvhólsgötu. Leikstjóri er Una Þorleifsdóttir. Bráðum hata ég þig er annað verkefni vetrarins en fyrsta sýning Nemendaleikhússins, Eftirlitsmaðurinn eftir Gogol, var sýnd fyrir fullu húsi í haust en uppselt var á allar sýningar.
Heilsugæslan á Norðurlandi
Kómedíuleikhúsið fer í leikferð um Norðurland núna í vikunni. Sýnt verður á fjórum stöðum og hefst leikurinn á Aureyri, þaðan verður farið á Sauðárkrók svo á Dalvík og loks á Húsavík. Hápólitíski gamanleikurinn Heilsugæslan hefur nú verið sýndur um 30 sinnum víða um landið. Viðtökur hafa verið góðar og er stefnan sett á að sýna […]
Norður-Evrópsk leiklistarhátíð á Akureyri 10.–15. ágúst 2010
Auglýst eftir íslenskum leiksýningum Bandalag íslenskra leikfélaga skipuleggur leiklistarhátíð áhugaleikhópa í samvinnu við Norður-Evrópska áhugaleikhúsráðið, NEATA, Norræna menningarsjóðinn, Menntamálaráðuneytið, Akureyrarbæ og Menningarhúsið Hof. Bandalagið býður einni leiksýningu frá hverju landi; Danmörku, Eistlandi, Færeyjum, Finnlandi, Lettlandi, Litháen, Noregi, Svíþjóð og einu Mið-Evrópulandi ásamt tveimur til þremur íslenskum sýningum.
Faust frumsýnt í Borgarleikhúsinu
Föstudaginn 15. janúar kl. 20 verður frumsýnt á Stóra sviðinu ný leikgerð á hinu sígilda verki Faust en fá verk hafa oftar verið endurskrifuð. Í hinni nýju leikgerð fer höfundahópurinn sínum höndum um þessa sígildu sögu og setja hana í ferskan búning líkt og þau eru þekkt fyrir. Leikrýmið er óvenjulegt því fyrir utan að […]
Endurómun í Borgarleikhúsinu
Dagana 13. og 14. janúar kynnir Borgarleikhúsið nýjan leikhúsmann til sögunnar, Leif Þór Þorvaldsson sem útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands úr Fræði og framkvæmd síðast liðið vor. Útskriftarverk Leifs, Endurómun, kemur á fjalir Borgarleikhússins þann 13. og 14. janúar á Litla sviðinu. Athugið aðeins þessar tvær sýningar. Leikhúsáhugafólki gefst hér einstakt tækifæri á að sjá þetta […]
Leikfélag Kópavogs frumsýnir Umbúðalaust
Ellefu persónur. Ellefu hindranir. Óteljandi möguleikar. Óræðar persónur á óljósum stað eru knúnar til að taka málin í sínar hendur þegar óvænt atvik ber að garði. Saman og hvert í sínu lagi komast þau að því að þáttaskil marka ekki endilega sögulok – og þráðurinn sem þau fylgdu í byrjun er ekki endilega haldreipið sem […]
Hugleikur frumsýnir Hannyrðir og hagleiksmenn
Laugardaginn 16. janúar kl. 20.00 frumsýnir leikfélagið Hugleikur fyrstu leiksýninginu sína á nýju ári. Nefnist hún Hannyrðir og hagleiksmenn og er sýnd í húsnæði Hugleiks á Eyjarslóð 9. Höfundur er Sigurður H. Pálsson, en leikstjórn er í höndum Guðmundar Erlingssonar. Athygli skal vakin á því að einungis eru fyrirhugaðar fimm sýningar á Hannyrðum og hagleiksmönnum.
Tvær aukasýningar á Ástardrykknum í Óperunni
Tveimur aukasýningum á Ástardrykknum hefur verið bætt við í janúar, föstudaginn 15. janúar og laugardaginn 23. janúar kl. 20. Eru þetta allra síðustu sýningar á þessari vinsælu og skemmtilegu sýningu, sem slegið hefur í gegn jafnt hjá áhorfendum sem gagnrýnendum. Í aðalhlutverkum eru Dísella Lárusdóttir, Garðar Thór Cortes, Bjarni Thor Kristinsson, Hallveig Rúnarsdóttir og Ágúst […]
Annáll Kómedíuleikhússins 2009
,,Nú árið er liðið í…” Jedúddý mía, hvað tíminn líður hratt, enn eitt árið að baki og óhætt að segja að það hafi verið sögulegt á landi voru. Árið hjá hinu Kómíska atvinnuleikhúsi á Ísafirði hefur líka verið viðburðaríkt fullt af ævintýrum og óvæntum uppákomum. Ekki var setið auðum höndum frekar en venjulega enda Kómedíuleikarinn […]
Munaðarlaus frumsýnt í Norræna húsinu
Leikhópurinn Munaðarleysingjar frumsýnir nýtt verk eftir Dennis Kelly, eitt heitasta leikskáld Bretlandseyja föstudaginn 8. janúar í sal Norræna hússins. Verkið heitir Orphans en á íslensku nefnist það Munaðarlaus. Leikstjóri sýningarinnar er Vignir Rafn Valþórsson sem jafnframt þýðir verkið. Leikhópurinn samanstendur af ungum leikurum, Hannesi Óla Ágústssyni, Stefáni Benedikt Vilhelmssyni og Tinnu Lind Gunnarsdóttur, sem ákváðu […]
Gott kvöld tilnefnt til leikskáldaverðlauna Norðurlanda
Valnefnd á vegum Leiklistarsambands Íslands hefur tilnefnt barnaleikritið Gott kvöld eftir Áslaugu Jónsdóttur til leikskáldaverðlauna Norðurlanda 2010. Tilkynnt var hver hlaut tilnefninguna í Kúlunni, barnaleiksviði Þjóðleikhússins að Lindargötu 7, þriðjudaginn 29. desember. Í valnefndinni sátu Silja Aðalsteinsdóttir, útgáfustjóri, Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson, rithöfundur og tónlistarmaður og Jórunn Sigurðardóttir, dagskrárgerðarmaður. Alls bárust 7 tilnefningar um barnaleikverk. Þess […]
Leikritunarsjóðurinn Prologos auglýsir eftir umsóknum
Leikritunarsjóðurinn Prologos auglýsir eftir umsóknum vegna fimmtu úthlutunar úr sjóðnum. Umsóknarfrestur er til og með 11. janúar 2010, en úthlutað verður í febrúar. Leikritunarsjóðurinn Prologos hefur nú starfað við Þjóðleikhúsið í eitt og hálft ár og er honum ætlað að efla íslenska leikritun og hvetja til nýsköpunar í leikhúsinu. Óhætt er að segja að sjóðurinn […]
Antígóna í Útvarpsleikhúsinu þriðja í jólum
Á þriðja dag jóla, sunnudaginn 27. desember kl. 14, verður harmleikurinn Antígóna eftir Sófókles fluttur í nýrri uppfærslu Útvarpsleikhússins á Rás 1, í samvinnu við Listaháskóla Íslands. Leikstjóri er Sigurður Skúlason og um hljóðstjórn sá Georg Magnússon. Með hlutverk Antígónu fer Sólveig Arnarsdóttir og Kreon, konung Þebu, leikur Jóhann Sigurðarsson. Leikritið er talið vera skrifað […]
Síðustu sýningar á Grandlendingasögu
Leikfélagið Peðið minnir á að síðustu sýningar á Grandlendingasögu verða sunnudaginn 20. desember klukkan 15 og 18. Höfundur er Jón Benjamín Einarsson og leikstjóri Guðjón Sigvaldason. Sýnt er á efri hæð Grand Rokk Smiðjustíg 6. Miðapantanir á staðnum, eða í síma 893 7353. Miðaverð 1000 krónur.
Söngleikurinn OLIVER! frumsýndur á annan í jólum
OLIVER! er einn vinsælasti söngleikur allra tíma og byggir hann á sígildri skáldsögu Charles Dickens um munaðarlausa drenginn Oliver Twist – sem dirfðist að biðja um meira að borða! Eins og áratuga hefð er fyrir í Þjóðleikhúsinu er frumsýning á annan í jólum og er í engu til sparað að gera uppfærsluna að glæsilegri fjölskyldusýningu. […]
NEATA VI Application Form
The Icelandic Amateur Theater Association (BIL) will organise the VI Official NEATA Festival 2010 in co-operation with the Nordic Culture Fond, the Icelandic Ministry of Culture, Akureyri Town Government, The Cultural House HOF in Akureyri and the North European Amateur Theatre Alliance (NEATA).
Jólasveinar Grýlusynir í Arnardal
Kómedíuleikhúsið sýnir jólaleikritið sívinsæla Jólasveinar Grýlusynir í Arnardal helgina 19. og 20. desember. Sýnt verður bæði laugardag og sunnudag og hefjast sýningarnar kl.14. Miðasala er hafin í síma: 860 6062 einnig er hægt að panta miða með því að senda tölvupóst á arnardalur@arnardalur.is Miðaverð er það sama og í fyrra eða aðeins 1.900.kr.
Deleríum búbonis í Útvarpsleikhúsinu
Sunnudaginn 13. desember kl. 14. verður jóla- og bílnúmerarevía bræðranna frá Múla, þeirra Jónasar og Jóns Árnasonar, endurflutt í Útvarpsleikhúsinu á Rás 1. Delerium Búbónis gerist á aðventunni í Reykjavík á sjötta áratugnum á heimili Ægis Ó. Ægis forstjóra Gleðilegra jóla hf. og eiginkonu hans, frú Pálínu Ægis listunnanda og meningarfrömuðs.
Jólahrun Hugleiks
Jólahrun – jóladagskrá Hugleiks árið 2009 verður sýnd sunnudaginn 13. desember og mánudaginn 14. desember kl. 20.00 bæði kvöld. Sýnt verður í húsnæði leikfélagsins að Eyjarslóð 9. Tekið verður á móti frjálsum framlögum við innganginn, auk þess sem kaffi og piparkökur verða seldar í fjáröflunarskyni.
Síðustu aukasýningar á Heilsugæslunni um helgina
Tvær auka-aukasýningar á Heilsugæslunni verða á Café Catalinu í Kópavogi um helgina. Leikurinn hefur verið sýndur þrívegis á Catalinu og nú eru síðustu aukasýningar. Fyrri sýningin er föstudaginn 11. desember og sú seinni daginn eftir, laugardaginn 12. desember, báðar sýningarnar hefjast kl. 21.30. Takið eftir þetta eru síðustu sýningar á Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu í bili. […]
Síðasta sýning á Aðventu í Gerðubergi
„Þegar hátíð fer í hönd, búa menn sig undir hana, hver á sína vísu.“ Þannig hefst saga Gunnars Gunnarssonar, Aðventa. Bókin kom út árið 1939 og er hún sú saga Gunnars sem víðast og oftast hefur verið gefin út. Hér er sagt frá svaðilförum vinnumannsins Benedikts sem fer til fjalla í vetraríki aðventunnar að leita […]
Peðið sýnir Grandlendingasögu
Leikfélagið Peðið hefur tekið til sýninga Grandlendingasögu eftir Jón Benjamín Einarsson i leikstjórn Guðjóns Sigvaldasonar. Verkið fjallar í stuttu máli um hremmingar lítillar þjóðar og úrlausnir hennar til að koma sér út úr þeirri klípu sem þjóðin hefur komið sér í. Sagan gerist á ýmsum tímabilum í grandlensku sögunni og til eru kallaðir ýmsir litríkir […]
LA sýnir Lykilinn að jólunum
Leikfélag Akureyrar frumsýndi nýskeð fjölskylduleikritið Lykillinn að jólunum eftir Snæbjörn Ragnarsson í leikstjórn Kolbrúnar Bjartar Sigfúsdóttur. Snæbjörn semur jafnramt tónlistina ásamt Baldri Ragnarssyni. Lykillinn að jólunum verður sýnt í Rýminu allar helgar fram að jólum.
Harry og Heimir – 50 uppseldar sýningar
Harry og Heimir – með öðrum morðum var frumsýnt á Litla sviði Borgarleikhússins 12. september sl. Síðan þá hafa verið leiknar 50 sýningar fyrir fullu húsi og komast færri að en vilja nú fyrir jólin þar sem uppselt er langt fram í janúar. „Við vissum ekkert hvað við vorum að fara út í og áttum […]
Dagur rauða nefsins
Föstudaginn 4. desember verður bein útsending úr Borgarleikhúsinu frá söfnunarþætti í tilefni af degi rauða nefsins og verður þátturinn í opinni dagskrá Stöðvar 2. Dagskráin er sneisafull af spennandi atriðum og munu fjölmargir listamenn leggja góðu málefni lið með kímni sem opnar hug okkar fyrir fallegum skilaboðum. Listamenn Borgarleikhússins vera í broddifylkingar og mörg skemmtileg […]
Leiksýning á ensku í Hafnarfirði
Leikritið Devotion verður sýnt hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar í Gamla Lækjarskóla dagana 18. og 19. desember nk. Verkið er samstarf milli Fjölþjóðlega leikhópsins The Fiasco Division, Aldísar Davíðsdóttur og Árna Grétars Jóhannssonar.
Haustfundur Bandalags ísl. leikfélaga 13.–15. 11. 2009
Fjórir listamenn fá styrk úr Egner-sjóðnum
Á lokasýningu Kardemommubæjarins í Þjóðleikhúsinu s.l. sunnudagskvöld, sem vel að merkja var 98. sýningin, var fjórum listamönnum veittur styrkur úr Egner-sjóðnum og hlaut hver þeirra 250.000 kr. Þetta eru þau Selma Björnsdóttir, leikstjóri sýningarinnar, Baldur Trausti Hreinsson sem lék Bastían bæjarfógeta, Kjartan Guðjónsson sem fór með hlutverk ræningjans Jónatans og Þórhallur Sigurðsson sem hefur sett […]
Maríuhænan – Dansleikhús fyrir börn frá 9 mánaða aldri
Helgina 5. og 6. desember koma góðir gestir frá Noregi í heimsókn í Kúluna, barnaleikhús Þjóðleikhússins og sýna dansleikhús án orða fyrir allra yngstu leikhúsgestina, allt frá ungabörnum til fjögurra ára barna. Tvær sýningar eru hvorn daginn, kl. 13:30 og 15:00. Að auki eru forsýningar á miðvikudag og fimmtudag sem allir geta sótt.
Leiklistarnámskeið í Borgarnesi
Helgina 5. – 6. desember stendur leikdeild Ungmennafeálgsins Skallagríms fyrir leiklistarnámskeiði í Borgarnesi. Námskeiðið verður haldið í félagsmiðstöðinni Mími í Menntaskóla Borgarfjarðar, kennari er Rúnar Guðbrandsson. Námskeiðið er frá 9-17 laugardag og sunnudag og er hádegismatur innifalinn í verði. Þátttökugjald er 3.000 kr. og greiðist á staðnum.
Möguleikhúsið sýnir Aðventu í Gerðubergi
„Þegar hátíð fer í hönd, búa menn sig undir hana, hver á sína vísu.“ Þannig hefst saga Gunnars Gunnarssonar, Aðventa. Bókin kom út árið 1939 og er hún sú saga Gunnars sem víðast og oftast hefur verið gefin út. Hér er sagt frá svaðilförum vinnumannsins Benedikts sem fer til fjalla í vetraríki aðventunnar að leita […]
Heilsugæslan á Café Catalinu
Tvær aukasýningar á Heilsugæslunni verða á Café Catalinu í Kópavogi um helgina. Leikurinn var sýndur fyrir skömmu á Catalinu fyrir troðfullu húsi og því hefur verið bætt við aukasýningum. Fyrri aukasýningin er á föstudag 27. nóvember og svo önnur strax daginn eftir á laugardag 28. nóvember, báðar sýningarnar hefjast kl. 21.30. Miðasala er hafin á […]
