Neata Festival – Calendar of Events

VI Official NEATA Festival Akureyri, Iceland 2010 – Calendar of Events https://www.google.com/calendar/embed?height=600&wkst=2&bgcolor=%23FFFFFF&src=oqh6nrggan5ftf5jvvgt4665h0%40group.calendar.google.com&color=%231B887A&src=7nlt3pjepp5poji51sj4e8fea0%40group.calendar.google.com&color=%23A32929&src=hq9g88a381ou0a4ahhldngtsf8%40group.calendar.google.com&color=%23AB8B00&ctz=Atlantic%2FReykjavik“ style=“ border-width:0 “ width=“800″ height=“600″ frameborder=“0″ scrolling=“no&dates=20100810%2F20100815″>

Leikfélag Keflavíkur frumsýnir barnaleikrit

Næstkomandi föstudag, þann 12. mars klukkan 18.00, frumsýnir Leikfélag Keflavíkur leikritið Mér er alveg sama þó einhver sé að hlægja að mér eftir Guðrúnu Ásmundsdóttur. Leikritið segir frá tröllastelpunni Lónu sem er að byrja í skóla með mannabörnum en á ekki sjö dagana sæla þar sem hún lendir í því að vera lögð í einelti.

Síðustu sýningar á Ufsagrýlum

Nú eru aðeins tvær sýningar eftir á Ufsagrýlum eftir Sjón í leikstjórn Rúnars Guðbrandssonar. Það er Lab Loki í samvinnu við Hafnarfjarðarleikhúsið sem setur verkið upp í Hafnarfjarðarleikhúsinu. Síðustu tvær sýningarnar verða laugardaginn 13. mars. og fimmtudaginn 18. mars. kl. 20.00.

Þjóðleikhúsið frumsýnir Fíusól

Þjóðleikhúsið frumsýnir á laugardaginn í Kúlunni nýtt leikrit eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur um hina átta ára gömlu gleðisprengju – Fíusól. Það er ekki ofmælt að það sé mikill áhugi á leiksýningunni um Fíusól og nú þegar er orðið uppselt á allar sýningar fram í miðjan maí! Ástæðan fyrir þessum mikla spenningi liggur vitanlega í því […]

Sýningar á NEATA-hátíðinni á Akureyri 10.-15. ágúst

Þá liggur fyrir hvaða sýningar verða sýndar á NEATA-hátíðinni á Akureyri 10.–15. ágúst nk. Dómnefnd valdi sýninguna Umbúðalaust hjá Leikfélagi Kópavogs, sem opnunarsýningu hátíðarinnar og sýningar Birting hjá Leikfélagi Selfoss og Vínland hjá Freyvangsleikhúsinu þar að auki, en þrjá íslenskar sýningar verða á hátíðinni þar sem Eistland sá sér ekki fært að senda fulltrúa.

Leiklistarskóli Bandalagsins 2010

Árið 2010 markar tímamót í sögu Leiklistarskóla Bandalags íslenskra leikfélaga. Frá upphafi hefur skólinn átt aðsetur sitt að Húsabakkaskóla í Svarfaðardal en núna á þessu fjórtánda starfsári verður skólinn fluttur um set og settur að Húnavallaskóla í Húnavatnshreppi. Eins og kunnugt er þá hefur það lengi verið markmið Bandalagsins að reyna að tryggja betur aðgengi […]

Rose Bruford College með inntökupróf

Einn af fremstu leiklistar- og leikhússkólum í Evrópu, Rose Bruford College of Theatre & Performance verður með inntökupróf og viðtöl fyrir allar deildir fara fram í Hinu Húsinu, Reykjavík, 20. og 21. mars, fyrir inngöngu í september 2010. Skólinn býður upp á faglegt nám á öllum hliðum leikhúss.

Söngleikur um Svein skotta

Æfingar eru hafnar á nýju íslensku leikverki, Síðasti dagur Sveins skotta, en verkið verður frumsýnt í Edinborgarhúsinu á Ísafirði fimmtudaginn 18. mars. Að verkinu standa Kómedíuleikhúsið á Ísafirði og Lýðveldisleikhúsið í Reykjavík en það er ljóðleikur eða söngdans um Svein Björnsson þjóf, nauðgara og galdramann sem var hengdur í Rauðuskörðum á Barðaströnd 1648. Sveinn þessi […]

Leikfélag Hveragerðis frumsýnir Emil í Kattholti

Laugardaginn 13. mars frumsýnir Leikfélag Hveragerðis leikritið um strákskrattann og ólátabelginn Emil í Kattholti eftir Astrid Lindgren, í þýðingu Vilborgar Dagbjartsdóttur. Leikstjórinn að þessu sinni er Sigurður Blöndal og þekkir hann vel til félagsins því hann leikstýrði meðal annars Kardimommubænum og Dýrunum í Hálsaskógi við góðan orðstír. Yfir 30 manns hafa lagt hönd á plóg til að láta […]

Aukasýningar á Sjöundá

Halaleikhópurinn frumsýndi 5. febrúar sl. Sjöundá – Svartfugl Gunnars Gunnarssonar, nýja leikgerð eftir leikstjórann Ágústu Skúladóttur, Þorgeir Tryggvason og leikhópinn. Sýningin hefur vakið mikla athygli og fengið góða dóma. Nú hefur verið ákveðið að bæta við aukasýningum laugardaginn 13. mars kl. 20.00 og sunnudaginn 14. mars kl. 17.00. Þegar er að verða fullt á fyrri […]

Styrkir til atvinnuleikhópa 2010

Tilkynnt var fyrir skemmstu hvaða atvinnuleikhópar fengju styrk til uppsetninga verka árið 2010. Alls sóttu 73 aðilar um styrki til 95 verkefna auk sjö umsókna um samstarfssamninga. Á fjárlögum 2010 eru alls 64,9 millj.kr. til starfsemi atvinnuleikhópa. Af þeirri upphæð eru 4,5 millj. kr. eyrnamerktar skrifstofu Sjálfstæðu leikhúsanna og því ekki til úthlutunar. Samtals er […]

Gullna hliðið í Lyngbrekku

Leikdeild Ungmennafélagsins Skallagríms í Borgarnesi frumsýnir Gullna hliðið í félagsheimilinu Lyngbrekku föstudaginn 5. mars kl. 20.30. Leikstjóri er Rúnar Guðbrandsson. Hátt í 30 manns koma að sýningunni með einum eða öðrum hætti. Gullna hliðið er eftir eitt af öndvegisskáldum Íslendinga, Davíð Stefánsson frá Fagraskógi og hans þekktasta leikrit, enda hefur Gullna hliðið unnið sér verðskuldaðan […]

Leikfélag Hörgdæla frumsýnir Lífið liggur við

Fimmtudaginn 4. mars frumsýnir Leikfélag Hörgdæla grafalvarlega skrifstofufarsann Lífið liggur við, eftir Hlín Agnarsdóttur, á Melum í Hörgárdal. Sýningin hefst kl. 20:30. Leikstjóri er Saga G. Jónsdóttir. Þetta er nýlegt leikrit og var fyrst sýnt hjá Stúdentaleikhúsinu árið 2007 í leikstjórn höfundar. Hér er á ferðinni gamanleikur, þó með alvarlegum undirtóni, sem gerist á Íslandi í […]

Söngleikurinn Ólafía frumsýndur á Breiðumýri

Leikdeild Eflingar frumsýnir nýtt leikverk, Ólafíu, á Breiðumýri föstudaginn 26. febrúar. Höfundur er heimamaðurinn Hörður Þór Benónýsson og leikstjóri Arnór Benónýsson. Sýningin inniheldur sautján frumsamin lög eftir Jaan Alavere sem jafnframt er tónlistarstjóri sýningarinnar. Alls koma tuttugu og þrír leikarar fram í sýningunni og þá sér fimm manna hljómsveit um tónlistarflutning. Þessi fjölmenni leikarahópur er […]

Hænuungarnir frumsýndir á laugardaginn í Kassanum

Þjóðleikhúsið frumsýnir á laugardaginn Hænuungana, nýtt leikrit eftir Braga Ólafsson í Kassanum, litla sviði Þjóðleikhússins. Frumsýning á nýju leikriti eftir Braga Ólafsson telst óneitanlega til tíðinda þar sem Bragi er einn af okkar bestu rithöfundum. Hænuungarnir eru annað leikrit Braga fyrir leiksvið. Hið fyrra, Belgíska Kongó var sýnt við miklar vinsældir í Borgarleikhúsinu fyrir fáum […]

Örverkið Febrúar frumsýnt í Útgerðinni

Áhugaleikhús atvinnumanna frumsýnir Febrúar, Örverk um áráttur, kenndir og kenjar, þann 25. febrúar kl. 12.30 (í hádeginu). Leikstjóri er Steinunn Knútsdóttir og leikarar Árni Pétur Guðjónsson og Hannes Óli Ágústsson. Frumsýningin sem fer fram í nýju Gjörningarými Hugmyndahúss háskólanna, Útgerðinni, Grandagarði 16 2. hæð, verður einnig send beint út í netleikhúsinu Herbergi 408. Aðgangur er ókeypis.

Drepfyndinn farsi hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar



Leikfélag Hafnarfjarðar frumsýndi 20. febrúar sl. hinn rómaða gamanleik Kjartans Ragnarssonar, Blessað Barnalán. Leikstjóri er Lárus Vilhjálmsson en hann hefur leikstýrt fjölda verka hjá leikfélaginu og er skemmst að minnast hinnar bráðskemmtilegu Ráðskonu Bakkabræðra. Blessað Barnalán er sýnt í leikhúsi félagsins í Gamla Lækjarskóla við lækinn í Hafnarfirði. Bent skal á að áhorfendafjöldi er takmarkaður vegna […]

Með blóð á vörum

Næstkomandi laugardag, hinn 20. febrúar, frumsýnir unglingadeild Leikfélags Kópavogs nýtt íslenskt leikrit, Blóðsystur, í Leikhúsinu við Funalind 2 í Kópavogi. Hópurinn, sem skipaður er átta upprennandi leikurum, hefur æft og þjálfað af kappi frá í haust undir styrkri stjórn Guðmundar Lúðvíks Þorvaldssonar.

LR með málþing um Jóhann Sigurjónsson

Leikfélag Reykjavíkur efnir til málþings undir yfirskriftinni Jóhann Sigurjónsson leikskáld – sígildur eða ekki? í Borgarleikhúsinu laugardaginn 20. febrúar og hefst það kl. 11:00 á Litla sviðinu með leiklestri á leikriti Jóhanns Rung læknir sem gefið var út í Danmörku 1905. Sveinn Einarsson leikstýrir þeim Hilmi Snæ Guðnasyni, Jakobi Þór Einarssyni og Láru Jóhönnu Jónsdóttur. […]

Listasmíð

Leikfélag SelfossBirtíngur eftir Voltaire í leikgerð HafnarfjarðarleikhússinsLeikstjóri: Ólafur Jens Sigurðsson „Bjart og fallegt“. Það fyrsta sem kom mér í hug þegar ég settist niður í leikhúsinu við Sigtún á Selfossi og beið eftir Birtíngi. Ljósmálað svið, litmildu munstri varpað á bakvegg, hvítir rampar á sviðsgólfinu og ljósklædd leikkona í hlutverki myndastyttu á stalli. Já og […]

Frá upphafi til enda… frumsýnt á Dalvík

Leiklistarhópur unglingadeildar Dalvíkurskóla frumsýnir nýtt leikverk, Frá upphafi til enda…, þann 19.febrúar næstkomandi í Ungó. Dalvíkurskóli og Leikfélag Dalvíkur eru nú enn og aftur í samstarfi í tengslum við leiklistarvinnu með unglingum í Dalvíkurbyggð. Er þetta í fimmta sinn sem samstarf af þessu tagi er tekið upp. LD leggur fram æfingarhúsnæði til afnota í 6 […]

Söngleikurinn Aladdín frumsýndur í Norðurpólnum

Leikfélag Menntaskólans við Sund frumsýnir nýjan og bráðskemmtilegan söngleik byggðan á hinni klassísku sögu um Aladdín, miðvikudaginn 17. febrúar í Norðurpólnum, Bygggörðum 5. Leikstjóri verksins sem og höfundur leikgerðar er Kolbrún Björt Sigfúsdóttir. Leikhópurinn samanstendur af ungum og upprennandi leikurum sem unnið hafa hörðum höndum í allan vetur við að gera þessa sýningu að veruleika. Sýningin […]

NEATA Festival 2010 in Iceland

    Photos from the festival are available HERE   The Icelandic Amateur Theatre Association is the festival host in co-operation with: Nordic Culture Fund Icelandic Ministry of Culture Akureyri Municipality Cultural House HOF in Akureyri North European Amateur Theatre Alliance (NEATA) We welcome amateur theatre groups from the NEATA countries and one group each […]

Umsóknarfrestur fyrir NEATA-hátíð á Akureyri er 15. febrúar

Click here for  English Þann 15. febrúar nk. rennur út frestur fyrir aðildarfélög Bandalagsins til að sækja um að koma með sýningu á Norður-Evrópsku leiklistarhátíðina á Akureyri 10.–15. ágúst 2010. Á hátíðinni verða sýndar 2-3 íslenskar sýningar og mun valnefnd velja þær úr hópi umsækjenda. Þema hátíðarinnar er Maður – Náttúra og einkunnarorðin eru Af […]

Undir hamrinum frumsýnt í Biskupstungum

Föstudagskvöldið 12. febrúar frumsýnir Leikdeild ungmennafélags Biskupstungna í Aratungu, leikritið Undir hamrinum eftir Hildi Þórðardóttur. Leikstjóri er Gunnar Björn Guðmundsson. Æfingar hafa staðið yfir síðan í byrjun janúar og nú er sem sagt komið að því.  Leikurinn gerist í kringum aldamótin 1900 og segir frá samskiptum prestsins og hans fólks á Hvammi og kotunganna á […]

Birtingur frumsýndur á Selfossi

Mikið líf, gleði og birta fyllir Litla leikhúsið við Sigtún þessa dagana en Leikfélag Selfoss er nú að komast á lokasprettinn með æfingar á Birtingi eftir Voltaire. Frumsýning verður föstudaginn 12. febrúar en æfingar hafa staðið yfir síðan í byrjun nóvember. Umfang sýningarinnar er mikið á flestum sviðum og gríðarleg vinna og óteljandi handtök að […]

Gerpla frumsýnd í Þjóðleikhúsinu

Saga fóstbræðranna Þorgeirs Hávarssonar og Þormóðar Kolbrúnarskálds hefur lifað með þjóðinni um aldir. Fóstbræðrasaga fjallar um þá Þorgeir og Þormóð og um miðja síðustu öld skrifaði Halldór Kiljan Laxness Gerplu og sagði þar sögu þeirra á nýjan hátt. Næstkomandi föstudag – um 1000 árum eftir að atburðirnir í sögunni eiga að hafa átt sér stað […]

Freyvangsleikhúsið frumsýnir Dýrin í Hálsaskógi

Laugardaginn 13. febrúar frumsýnir Freyvangsleikhúsið í Eyjafjarðarsveit hið stórskemmtilega og sígilda verk, Dýrin í Hálsaskógi og verður það á fjölum Freyvangsleikhússins fram á vordaga. Gert er ráð fyrir að sýningar standi fram á sauðburð, því nokkrum dögum fyrir frumsýningu er fullbókað á fyrstu þrjár sýningarnar og talsvert farið að bókast á næstu sýningar. Það er […]

Snúður og Snælda sýnir Nakinn mann og annan í kjólfötum

Sunnudaginn 21. febrúar kl. 14.00 frumsýnir leikfélagið Snúður og Snælda í Iðnó farsann Nakinn maður og annar í kjólfötum eftir Dario Fo. Leikstjóri Bjarni Ingvarsson. Leikritið gerist að næturlagi þar sem tveir götusóparar eru við vinnu sína. Þeir spjalla saman um hin ólíkustu efni frá hversdagslegu gríni til heimspekilegra atriða og trúarbragða. Ýmsir skrautlegir einstaklingar […]

Hamingjan verður ekki hertekin

HalaleikhópurinnSjöundá – Svartfugl Gunnars GunnarssonarLeikstjóri: Ágústa Skúladóttir Svartfugl eftir Gunnar Gunnarsson er mikið meistaraverk. Kannski felst snilldin við það helst í því að láta lesandann hafa samúð með þeim sem þó eru líklega sekir, og jafnvel hálfgerða andúð á fórnarlömbunum. Sagan er mjög dramatísk en frásögnin er eins og Ísland í gamla daga. Fábrotin og […]

Námskeið í leikhúslýsingu fyrir áhugaleikhús

Laugardagana 27. feb., 6.mars og 13. mars frá kl. 9:00 – 13:00 verður boðið upp á námskeið í leikhúslýsingu í Tækniskólanum, Skólavörðuholti. Námskeiðið er ætlað fólki á öllum aldri. Á námskeiðinu eru kennd helstu atriði við hönnun og uppsetningu lýsingar fyrir leiksýningar, tónleika, ráðstefnur o.fl. Fjallað er um eðlisfræði ljóss og litafræði, hugmyndafræði lýsingar, upphengingu […]

Lab Loki í samstarfi við Hafnarfjarðarleikhúsið sýnir Ufsagrýlur

Núna á föstudaginn 5. febrúar verður frumsýnt í Hafnarfjarðarleikhúsinu nýtt verk eftir skáldið Sjón (Sigurjón Birgir Sigurðsson). Þessa hefur verið beðið í nokkurn tíma að Sjón skrifi leikverk í fullri lengd, því ekki aðeins hefur Sjón verið fyrirferða mikill á ritvellinum heldur er óhætt að fullyrða  að hann sé einn áhrifamesti listamaður sinnar kynslóðar. Hann […]

Skoppa og Skrítla í Borgarleikhúsinu

Nýtt íslenskt barnaleikriti, Skoppa og Skrítla á tímaflakki, verður frumsýnt laugardaginn 6. febrúar í Borgarleikhúsinu. Þetta er þriðja leikrit þeirra vinkvenna sem fer á leiksvið  Fyrri tvær leiksýningarnar fengu fádæma aðsókn og voru báðar tilnefndar til Grímunnar, íslensku leiklistarverðlaunanna. Síðasta verkefni þeirra vinkvenna var kvikmynd sem sló rækilega í gegn á síðasta ári og sér […]

Aukasýningar á Umbúðalaust

Ákveðið hefur verið að hafa tvær aukasýningar á leiksýningunni Umbúðalaust sem Leikfélag Kópavogs hefur sýnt að undanförnu. Sýningarnar verða sunnudag 7. febrúar og mánudag 8. febrúar kl. 20.00. Leiksýningin Umbúðalaust sem er samin af leikhópnum og leikstjóranum Vigdísi Jakobsdóttur hefur fengið mjög góðar viðtökur og þykir fersk og óvenjuleg. Óræðar persónur á óljósum stað eru […]

Halaleikhópurinn frumsýnir Svartfugl

Föstudaginn 5. febrúar frumsýnir Halaleikhópurinn Svartfugl, verk byggt á samnefndu ritverki Gunnars Gunnarssonar. Um er að ræða nýja leikgerð eftir þau Ágústu Skúladóttur leikstjóra og Þorgeir Tryggvason í samvinnu við leikhópinn. Verkið fjallar um eitt þekktasta sakamál Íslandssögunnar, morðin á Sjöundá og réttarhöldin yfir Bjarna Bjarnasyni og Steinunni Sveinsdóttur. Þeim var gefið að sök að […]

Allra síðustu sýningar í Reykjavík á Munaðarlaus

Leikfélag Akureyrar hefur boðið leiksýningunni Munaðarlaus að vera Óvissusýning vetrarins hjá LA. Sýningin Munaðarlaus hefur heldur betur slegið í gegn á undanförnum vikum þar sem hún hefur verið sýnd í Norræna húsinu við glimrandi viðtökur og hefur verið fullt á nær allar sýningar. Leikhópurinn hefur ákveðið að nýta ferðina og sýna sýninguna einnig á Vopnafirði […]

Leiklestraröð LA – Einleikir

Leikfélag Akureyrar ýtir nú úr vör leiklestraröð, þar sem leikarar hjá LA munu leiklesa ýmis leikverk og er hugmyndin er að gera þetta að föstum lið, eitt kvöld í mánuði fram í júní. Leiklestrarnir munu hafa mismunandi yfirskrift eða þema og verða ýmist leiklesin heil verk eða kaflar úr verkum. Nemendur í Tónlistarskólanum á Akureyri […]

Nýtt leikskáld hjá Leikfélagi Reykjavíkur

Leikritunarsjóður LR eflir fjölbreytni og nýsköpun í íslenskri leikritun. Jón Gnarr leikari, skáld og þúsundþjalasmiður, hefur verið valinn leikskáld Borgarleikhússins árið 2010 úr stórum hópi umsækjanda. Jón mun starfa í Borgarleikhúsinu næsta ár þar sem hann mun sinna ritstörfum.

JANÚAR – Örverk um áráttur, kenndir og kenjar

Áhugaleikhús atvinnumanna frumsýnir JANÚAR, Örverk um áráttur, kenndir og kenjar 28. janúar kl.12.30. Frumsýningin sem fer fram í nýju Gjörningarými Hugmyndahúss háskólanna, ÚGERÐINNI, Grandagarði 16, 2. hæð, verður einnig send beint út í netleikhúsinu Herbergi 408. JANÚAR er fyrsta verkið í 12 verka röð, Örverk um áráttur, kenndir, sem hvert um sig tekur á áráttum, kenndum […]

Guð í vélinni

HugleikurHannyrðir og hagleiksmennLeikstjóri: Guðmundur Erlingsson Í ágætu húsnæði sínu (en illa merktu) við Eyjarslóðina í Reykjavík hefur Hugleikur nú boðið til sýningar á Hannyrðum og hagleiksmönnum eftir Sigurð H. Pálsson. Fyrir utan stórar uppfærslur einu sinni til tvisvar á vetri er leikfélagið Hugleikur frægt fyrir frumsamin stuttverk sín, einþáttunga og örleikrit, sem hafa verið sýnd […]