Author: lensherra

Skrímsli á Bíldudal

Kómedíuleikhúsið frumsýnir einleikinn Skrímsli í Baldurshaga á Bíldudal á sumardaginn fyrsta, 19. apríl. Mun þetta vera í annað sinn sem atvinnnuleikhús frumsýnir á Bíldudal, en áður hefur Kómedíuleikhúsið frumsýnt þar einleikinn um Mugg. Frá örófi alda hafa skrímsl af ýmsum toga reglulega sést í sjó og vötnum á Íslandi. Strax í Landnámu er getið sjávar- og vatnaskrímsla og frásögur af samskiptum þeirra við landsmenn frá fyrstu öldum Íslandsbyggðar fylla heilu ritsöfnin. Skepnur þessar eru af ýmsum toga, litlar og stórar, grimmar, ljúfar, illskeyttar og stundum jafnvel lífhættulegar. En hverjar eru þessar dularfullu verur, hvar er þær helst að finna...

Read More

Hjónabandsglæpir í Þjóðleikhúsinu

Þjóðleikhúsið frumsýnir nýtt leikrit eftir Eric-Emmanuel Schmitt, Hjónabandsglæpi, í Kassanum 18. apríl. n.k Hjónabandsglæpir er nýtt leikrit úr smiðju Eric-Emmanuel Schmitt, en leikrit hans Abel Snorko býr einn og Gesturinn hafa notið mikilla vinsælda meðal íslenskra áhorfenda. Í Hjónabandsglæpum tekst höfundur á óvæginn og óvæntan hátt við ástina, hjónabandið og samskipti kynjanna. Í verkinu blasa innviðir hjónabandsins við okkur og ýmsar skuggahliðar þess koma í ljós, en jafnframt tekst höfundurinn á áhugaverðan hátt við löngun mannsins til að láta ástarsamband vara.   Hilmir Snær Guðnason og Elva Ósk Ólafsdóttir fara með hlutverk Róberts og Elísabetar sem hafa búið saman...

Read More

Stúdentaleikhúsið sýnir í Kartöflugeymslunum

Stúdentaleikhúsið sýnir þessa dagana leikritið EXAMINASJÓN. Verkið er byggt á sagnabálknum The Bottom Inspectors, en það eru sögur sem birtast í hinu virta sorptímariti VIZ sem gefið er út á Bretlandseyjum. Verkið er sýnt í Kartöflugeymslunum í Átrúnsbrekku. Guðjóns Þorsteinn Pálmarsson, betur þekktur sem Denni, leikstýrir og um tónlistarstjórn sér Snæbjörn Ragnarsson, betur þekktur sem Bibbi. Þetta er í fjórða sinn sem þeir leiða hesta sína saman inn á leiksviðið og í annað sinn sem þeir vinna úr efnivið VIZ-sagnanna. Hin margrómaða sýning Allra Kvikinda Líki, sem sett var upp hjá Leikfélagi Kópavogs árið 2005 var einmitt unnin upp...

Read More

Gersemar gærdagsins í Kúlunni

Þjóðleikhúsið kynnir sérstæða franska gestasýningu Etabl´île í Kúlunni á mánudagskvöldið 16. apríl kl. 20.00. Aðeins er um þessa einu sýningu í Þjóðleikhúsinu að ræða og því fágætt tækifæri fyrir leikhúsáhugafólk en Turak hópurinn undir stjórn Michael Laubu hefur getið sér gott orð víða um heim. Hér er á ferðinni sérstæð leiksýning einskonar ævintýraferð um töfraveröld þar sem ómælisvídd ímyndunaraflsins ræður ríkjum í sýningu sem er mitt á milli þess að vera brúðuleikhús og leikhús hlutanna. Sumir hafa viljað kalla leikhús af þessu tagi “víðavangsleikhús”. Michel Laubu er einkar ötull tilraunamaður í leikhúsi en hann semur og leikstýrir verkum Turak...

Read More

Mjallhvít í Þjóðleikhúsinu

Laugardaginn 14. apríl n.k hefjast í Kúlunni í Þjóðleikhúsinu sýningar á brúðuleikritinu um Mjallhvíti í uppfærslu brúðuleikhússins 10 fingra sem Helga Arnalds stjórnar. Hér er á ferðinni sagan sígilda um Mjallhvíti og dvergana sjö eins og við þekkjum hana flest en í sýningunni leiðir sögukonan, Helga Arnalds börnin í gegnum hana á nokkuð óvenjulegan hátt með töfrabrögðum, myndskyggnum, brúðum, grímum og söng.  Helga Arnalds hlaut menntun sína í leikhúsháskólanum Instituto del Teatro í Barcelona og í leikhúsháskólanum DAMU í Prag. Hún stundar nú nám við Listaháskóla Íslands í myndlist. 10 fingur er eins manns ferðaleikhús sem var stofnað árið...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert