Author: lensherra

Einn koss enn í Þorlákshöfn

Leikfélag Ölfuss í Þorlákshöfn er komið á fulla ferð. Félagið frumsýnir næstkomandi sunnudagskvöld gamanleikinn Einn koss enn og ég segi ekki orð við Jónatan eftir Marc Camoletti í leikgerð Sigurðar Atlasonar. Leikritið fjallar um kvennamanninn Jónatan sem heldur við þrjár flugfreyjur sem vinna eftir föstum áætlunum sem ekki skarast. Þegar nýjar hljóðfráar þotur eru teknar í notkun fer skipulagið í vaskinn og leikurinn að æsast. Leikstjóri verksins er Hörður Sigurðarson. Sýnt er í Versölum í Þorlákshöfn. Leikfélag Ölfuss í Þorlákshöfn er komið á fulla ferð. Félagið frumsýnir næstkomandi sunnudagskvöld gamanleikinn Einn koss enn og ég segi ekki orð við...

Read More

Barnastjörnur óskast!

Leikfélag Akureyrar leitar að börnum á aldrinum 7–14 ára til að leika við hlið atvinnuleikara í fyrstu frumsýningu haustsins 2007. Þar er á ferðinni fjölskylduleikritið Óvitar eftir Guðrúnu  Helgadóttur í leikstjórn Sigurðar Sigurjónssonar. Jón  Ólafsson semur nýja tónlist fyrir sýninguna og stýrir hljómsveit. Skráning í áheyrnarprufurnar fer fram í leikhúsinu á Akureyri, föstudaginn 20. apríl milli kl. 14 og 15. Áheyrnarprufur fara svo fram 5. og 6. maí n.k.   Gríðarlegur leikhúsáhugi á Norðurlandi Ljóst er að mikill leikhúsáhugi er meðal ungra Eyfirðinga og nærsveitarmanna sem sést best á gríðarlegri þátttöku í leiklistarnámskeiðum sem boðið hefur verið upp á...

Read More

Kynning á Sædýrasafninu

Þjóðleikhúsið stendur fyrir kynningu á Sædýrasafninu, nýju leikriti eftir frönsku skáldkonuna Marie Darrieussecq, í Leikhúskjallaranum laugardaginn 21. apríl kl. 15:00. Dagskráin er einn af viðburðum í Viku bókarinnar og liður í frönsku menningarkynningunni Pourquoi Pas – Franskt vor á Íslandi.    Sædýrasafnið er nýtt leikrit sem hin þekkta franska skáldkona Marie Darrieussecq hefur skrifað sérstaklega fyrir Þjóðleikhúsið og verður sýnt árið 2008. Marie Darrieussecq sló í gegn með fyrstu skáldsögu sinni, Gyltingu, árið 1996. Skáldsagan varð metsölubók í Frakklandi og hefur verið þýdd á fjölda tungumála, og kom meðal annars út á íslensku. Darrieussecq hefur sent frá sér nokkar...

Read More

Síðustu sýningar á Eplum og eikum

Nú fer sýningum að ljúka á leikritinu Epli og eikur sem Hugleikur sýnir í Möguleikhúsinu. Höfundur er Þórunn Guðmundsdóttir, en leikstjóri Oddur Bjarni Þorkelsson. Síðustu sýningar eru: Miðvikudag 18. apríl Fimmtudag 19. apríl -Allra síðasta sýning Sýningar hefjast klukkan 20.00 og miðapantanir eru á hugleikur.is og í síma 551 2525. Miðaverð er kr. 1.500. En því fer fjarri að Hugleikur sé hættur í vetur.  Nú standa yfir sýningar á verkinu Bingó sem Hugleikur frumsýndi síðastliðinn laugardag í samvinnu við Leikfélag Kópavogs. Þá frumsýningu bar einmitt upp á 23 ára afmæli félagsins. Bingó er einnig síðasta sýningin sem Leikfélag Kópavogs...

Read More

Leikritasamkeppni á Menningarhátíð Grand Rokk

Leikfélagið Peðið hefur ákveðið að blása til leikritasamkeppni í tilefni Menningarhátíðar Grand Rokk. Skilafrestur á leikritum eða úrdráttum úr slíkum verður að skila fyrir 15.maí næstkomandi, undir leyninafni með réttur nafni og símanúmeri í lokuðu umslagi. Skila skal leikritunum á Grand Rokk Smiðjustíg 6, 101 Reykjavík. Dómnefnd skipuð Viðari Eggertssyni leikstjóra, Þorgeiri Tryggvasyni Hugleikara og Lísu Pálsdóttur formanni Peðsinsm mun velja eitt verk sem hlýtur vegleg verðlaun og ætlunin er að leikfélagið sýni vinningsverkið á Menningarhátíðinni að ári. Menningarhátíð Grand Rokk verður haldin dagana 31.maí – 03.júní 2007. Þetta er fimmta Menningarhátíðin og verðu hún jafn spennandi og áður....

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert