Þetta mánaðarlega hjá Hugleik
Fyrsta leikdagskrá leikfélagsins Hugleiks í vetur verður flutt í Þjóðleikhúskjallaranum sunnudaginn 11. nóvember og þriðjudaginn 13. nóvember. Að þessu sinni verða á boðstólum sex ný leikverk eftir félagsmenn, í leikstjórn nemenda af leikstjórnarnámskeiðum sem félagið hefur staðið fyrir í haust undir leiðsögn Sigrúnar Valbergsdóttur. Verkin sem sýnd verða eru: Bráðum e. Hrefnu Friðriksdóttur í leikstjórn Harðar Skúla Daníelssonar Einu sinni sem oftar e. Hrefnu Friðriksdóttur í leikstjórn Júlíu Hannam Englar í snjónum e. Unni Guttormsdóttur í leikstjórn Sigrúnar Óskarsdóttur Heilladísirnar e. Júlíu Hannam í leikstjórn Hjörvars Péturssonar Tímabært e. Hrefnu Friðriksdóttur í leikstjórn Sigríðar Birnu Valsdóttur Þetta er mitt...
Read More


