Author: lensherra

Íslensk sýning óskast til Riga

Norður-evrópska áhugaleikhúsráðið, NEATA, stendur fyrir leiklistarhátíðum á tveggja ára fresti og skiptast aðildarlöndin á að halda hana. Næsta sumar er komið að Lettlandi og verður hátíðin haldin í Riga dagana 5. til 10. ágúst. Til hennar er boðið sýningum frá aðildarlöndum NEATA: Danmörku, Eistlandi, Færeyjum, Finnlandi, Íslandi, Litháen, Noregi, Svíþjóð og Lettlandi.   Komudagur er þriðjudagur 5. ágúst og brottfarardagur er sunnudagur 10. ágúst. Lettar bjóða frítt uppihald fyrir 10 manns frá hverju landi en ferðir, tryggingar og uppihald þátttakenda umfram þessa tíu þurfa hóparnir að greiða sjálfir. Lengd leiksýninga má ekki fara yfir 90 mínútur. Leiksmiðjur og gagnrýni verða á sínum stað en nákvæm dagskrá er ekki tilbúin ennþá. Hér með er auglýst eftir íslenskri sýningu til að vera fulltrúi okkar á þessari hátíð. Sækja skal um til Bandalags íslenskra leikfélaga fyrir 15. febrúar 2008. Ekki verður útbúið sérstakt eyðublað, en í umsókn þarf að koma fram nafn félags, leiksýningar og leikstjóra. Myndbandsupptaka þarf að fylgja...

Read More

Konan áður frumsýnt

Leikritið Konan áður hefst á stórri spurningu þegar fjölskyldufaðirinn Frank mætir fortíð sinni í dyragættinni. Fyrir utan stendur kona, komin til að krefja hann um gamalt loforð því hún er konan sem hann sagðist alltaf ætla að elska. Þjóðleikhúsið frumsýnir verkið á Smíðaverkstæðinu þann 16. nóvember nk. í leikstjórn Hafliða Arngrímssonar.   Leikritið Konan áður er marglaga sviðsverk, óvenjuleg ástarsaga, hlaðin þrúgandi spennu en þó krydduð með heilmiklum húmor – er annars hægt að taka þá manneskju alvarlega sem birtist svona á tröppunum eftir 24 ár. Þetta er samtímaverk um venjulegt fólk í harla óvenjulegum aðstæðum. Gömul loforð geta...

Read More

Leikfélag Selfoss hefur æfingar á nýjum gamanleik

Félagar í Leikfélagi Selfoss undirbúa nú af krafti afmælissýningu félagsins, en félagið hefur hafið æfingar á gamanleikritinu „Með táning í tölvunni“ eða „Caught in the net“ eins og það heitir á frummálinu. Verkið er eftir Ray Cooney, en þýðing er í höndum Jóns Stefáns Kristjánssonar, sem einnig mun leikstýra því. Verkið er framhald af leikritinu „Með vífið í lúkunum“ sem Leikfélagið setti upp árið 1999, einnig í leikstjórn Jóns Stefáns. Muna margir eftir þeirri sýningu en hún sló öll aðsóknarmet í litla leikhúsinu við Sigtún og er aðsóknarmesta sýning sem leikfélagið hefur sett upp þar. Um er að ræða...

Read More

Frelsarinn kemur 22. nóvember!

Leikhúslistamaðurinn Kristján Ingimarsson er höfundur sýningarinnar Frelsarinn sem sýnd verður á Íslandi í lok nóvember. Sýningar verða á Stóra sviði Þjóðleikhússins 22. nóvember og hjá Leikfélagi Akureyrar 24-25. nóvember. Leikhópur Kristjáns, Neander, hefur sýnt sýningu þessa við glimrandi undirtektir í Danmörku að undanförnu.  Kristján sýndi einleik sinn Mike Attack hér á landi sunnan og norðan heiða á síðasta leikári og snýr nú aftur með stórpólitískt dansk/íslenskt samstarfsverkefni.  Kristján leitar að þessu sinni í heilaga ritningu og spinnur myndræna og líkamlega krefjandi sýningu sem ögrar mörgum lögmálum, skráðum og óskráðum. Nú þegar landsmenn hafa fengið nýja biblíuþýðingu í hendurnar velta vafalaust...

Read More

Opinn dagur í Listaháskóla Íslands

Föstudaginn 9. nóvember n.k. verður opinn dagur í öllum deildum Listaháskóla Íslands og er áhugasömum boðið að koma í skólann og kynnast starfsemi hans. Kynningar fara fram í húsakynnum skólans á eftirfarandi stöðum: Sölvhólsgötu 13 – Leiklistardeild og tónlistardeild kl. 14-18 Laugarnesvegi 91 – Myndlistardeild og kennaranám kl. 11-18 Skipholt 1 – Hönnunar- og arkitektúrdeild kl. 11-18 Nánari upplýsingar er að finna á vef skólans www.lhi.is Allir...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert