Villidýr og Pólitík á Akureyri
Það eru þeir Radíusbræður, Davíð Þór og Steinn Ármann, sem leiða saman hesta sína á ný í íslensku útgáfunni af þessum víðfrægðu Ricky Gervais uppistandssýningum. Hafa þeir gert þessar sýningar að sínum eigin með hjálp leikstjórans Gunnars B. Guðmundssonar, sem leikstýrði síðasta Skaupi og kvikmyndinni Astrópíu. Sýningin var frumsýnd í Borgarleikhúsinu á vormánuðum og verður sýnd hjá Leikfélagi Akureyrar í Samkomuhúsinu fimmtudaginn 27. og föstudaginn 28. maí Sýningin byggir á tveimur vinsælustu uppistandssýningum Bretlands fyrr og síðar; Animals og Politics, en höfundur þeirra er snillingurinn Ricky Gervais. Hann sló sem kunnugt er rækilega í gegn sem höfundur og aðalleikari...
Read More


