Author: lensherra

Langar þig til Riga í sumar?

Norður-evrópska áhugaleikhúsráðið, NEATA, stendur fyrir leiklistarhátíðum á tveggja ára fresti og skiptast aðildarlöndin á að halda hana. Í sumar er komið að Lettlandi og verður hátíðin haldin í Riga dagana 5. til 10. ágúst. Til hennar er boðið sýningum frá aðildarlöndum NEATA: Danmörku, Eistlandi, Færeyjum, Finnlandi, Íslandi, Litháen, Noregi, Svíþjóð og Lettlandi. Leiksmiðjur og gagnrýni verða á sínum stað en nákvæm dagskrá er ekki tilbúin ennþá. Komudagur er þriðjudagur 5. ágúst og brottfarardagur er sunnudagur 10. ágúst. Íslenska sýningin á hátíðinni verður Bingó eftir Hrefnu Friðriksdóttur í leikstjórn Ágústu Skúladóttur í flutningi Hugleiks og Leikfélags Kópavogs. Einstaklingum býðst að...

Read More

Sýning Halaleikhópsins á Gaukshreiðrinu fer í Þjóðleikhúsið

Á aðalfundi Bandalags íslenskra leikfélaga í Skagafirði núna um helgina tilkynnti Tinna Gunnlaugsdóttir, Þjóðleikhússtjóri, hvaða leiksýning var valin athyglisverðasta áhugaleiksýningin árið 2008. Fyrir valinu varð uppsetning Halaleikhópsins á Gaukshreiðrinu eftir Ken Kesey og Dale Wasserman í leikstjórn Guðjóns Sigvaldasonar og verður hún því sýnd í Þjóðleikhúsinu í lok leikárs. Í umsögn dómnefndar sem skipuð var Tinnu og Vigdísi Jakobsdóttur segir m.a. Verkefnaval Halaleikhópsins ber vott um mikinn metnað, kjark og stórhug. Leikhópurinn, sem hefur það að markmiði að „iðka leiklist fyrir alla” fagnaði fimmtán ára afmæli sínu á þessu leikári. Rétt eins og Halaleikhópurinn hefur auðgað leiklistarflóru áhugaleikfélaga og...

Read More

Dauðasyndirnar frumsýnt í Borgarleikhúsinu

Þann 8. maí verður leikverkið Dauðasyndirnar frumsýnt á Litla sviði Borgarleikhússins. Dauðasyndirnar er trúðaleikur fyrir fullorðna sem byggir frjálslega á Guðdómlegum gleðileik Dantes. 4 trúðar, þau Barbara, Gjóla, Za-ra og Úlfar, segja frá hremmingum Dantes  sem þarf að fara um helvíti, og hreinsunareldinn til til þess að uppskera paradís. Á leiðinni nýtur hann traustrar leiðsagnar Virgils. Í meðförum trúðanna verður efnið að dásamlegri skemmtun með ríku innihaldi sem vekur fólk til umhugsunar um leið og það tárast af gleði. Leikstjóri er Rafael Bianciotto. Upphaflega átti verkið að bera titillinn Dauðasyndirnar 7, en titillinn var settur í uppnám af sjálfum páfa...

Read More

Starfsáætlun 2011-2012 


Starfsáætlun Bandalags íslenskra leikfélagaleikárið 2011-2012   Almenn starfsemi: 1. Rekstur þjónustumiðstöðvar, Leiklistarskóla, Leiklistarvefsins og annarra fastra liða í starfseminni. 2. Leita eftir hækkuðum framlögum úr opinberum sjóðum og frá einkaaðilum til starfsemi áhugaleikfélaganna og sameiginlegra verkefna. 3. Halda áfram samstarfi við Þjóðleikhúsið með Athyglisverðustu áhugaleiksýningu ársins. Sérverkefni ársins: 1. Taka þátt í Stuttverkahátíð í Færeyjum 15. október...

Read More

Starfsáætlun 2016-2017

Starfsáætlun Bandalags íslenskra leikfélaga leikárið 2016-2017 Almenn starfsemi 1. Rekstur þjónustumiðstöðvar, Leiklistarskóla, Leiklistarvefsins og annarra fastra liða í starfseminni. 2. Leita eftir hækkuðum framlögum úr opinberum sjóðum og frá einkaaðilum til starfsemi áhugaleikfélaganna og sameiginlegra verkefna. Sérverkefni ársins 1. Að haldið verði námskeið í stjórnun leikfélaga og markaðssetningu samhliða aðalfundi 2017. 2. Að halda afmælishátíð í tilefni af 20 ára afmæli Leiklistarskóla Bandalagsins vorið...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert