Spekingurinn Einar Áskell í Þjóðleikhúsinu
Þjóðleikhúsið frumsýnir, í samvinnu við Fígúru leikhús Bernds Ogrodniks, brúðuleiksýninguna Klókur ertu, Einar Áskell nk. laugardag, 30. ágúst. Gestaleikur þessi er verk brúðugerðarmannsins Bernds Ogrodniks sem byggir á heimsþekktum sögum Gunillu Bergström um þennan uppátækjasama snáða. Sýnt verður í Kúlunni, barnasviði Þjóðleikhússins á Lindargötu 7 og hefst sýningin kl. 15. Einar Áskell veit fátt skemmtilegra en þegar pabbi hans tekur sér tíma og leikur við hann. Það næst skemmtilegasta er að fá að leika sér með verkfærakassann, en það er stranglega bannað og stórhættulegt að leika sér með sögina! Nokkrar gamlar spýtur og verkfæri geta leitt ungan mann...
Read More


