Forleikur og ísbjörn á nýju leikári Kómedíuleikhússins
Leikár Kómedíuleikhússins er bæði ferskt og klassískt. Alls verða sex sýningar á fjölum leikhússins á nýju leikári þar á meðal frumsýnir Kómedíuleikhúsið nýjan Íslenskan einleik, Auðun og ísbjörninn, sem er byggður á samnefndum Íslendingaþætti sem er án efa sá besti og vandaðasti Íslendingaþátta. Í Auðun og ísbjörninn halda Elfar Logi og Soffía Vagnsdóttir áfram farsælu samstarfi sínu en áður hafa þau unnið að tveimur vinsælum Kómedíuleikjum. Tveir kunnir listamenn vinna einnig að sýningunni en það eru þau Hrólfur Vagnsson sem semur tónlist sérstaklega fyrir uppfærsluna og Marsibil G. Kristjánsdóttir sem gerir leikmynd og búninga. Bæði hafa þau áður unnið...
Read More


