Góði dátinn Svejk í Þjóðleikhúsið

Val Þjóðleikhússins á athyglisverðustu áhugaleiksýningu leikársins hefur nú farið fram í átjánda sinn. Alls sóttu þrettán leikfélög/hópar um með samtals sextán sýningar, og að vanda var það skemmtilegt verkefni að skoða sýningarnar sem sóttu um. Dómnefndina skipuðu að þessu sinni Stefán Hallur Stefánsson, leikari og leikstjóri, auk þjóðleikhússtjóra. Fyrir valinu í ár varð sýning Freyvangsleikhússins […]

Aukasýningar á Bót og betrun

Fimmhurðafarsinn Bót og betrun hjá Leikfélags Kópavogs hefur verið í fríi um skeið en snýr aftur nú í maí. Þrjár aukasýnignar verða miðvikudag, fimmtudag og sunnudag í þessari viku. Bót og betrun er hefðbundinn farsi með misskilningi og flækjum af öllu tagi og pínlegum aðstæðum eins og efnið ber með sér. Er því óhætt að […]

Tvær aukasýningar á Einkamál.is

Vegna góðrar aðsóknar hefur verið ákveðið að bæta við tveimur aukasýningum á uppfærslunni Einkamál.is eftir Árna Hjartarson í leikstjórn Huldu B. Hákonardóttur og Þorgeirs Tryggvasonar. Frá því Hugleikur frumsýndi verkið 15. apríl sl. hefur verið uppselt á allar sýningar og færri komist að en vildu. Aukasýningarnar verða laugardaginn 7. maí og sunnudaginn 8. maí kl. […]

Metaðsókn á Með táninginn í tölvunni

Uppsetning Leikfélags Hólmavíkur á hinum sprellfjöruga gamanleik  Með táning í tölvunni eftir Ray Cooney hefur fengið fádæma góða aðsókn. Það er heimamaðurinn Arnar S. Jónsson sem leikstýrir og fara sjö leikarar með hlutverk í sýningunni og eru flestir þeirra að stíga sín fyrstu skref með leikfélaginu. Auk þeirra tekur annar eins fjöldi þátt í verkefnum […]

Svefnlausi brúðguminn frumsýndur á Sauðárkróki

Á verkalýðsdaginn 1. maí frumsýnir Leikfélag Sauðárkróks gamanleikinn Svefnlausa brúðgumann eftir Arnold og Bach. Leikstjóri er Jakob S. Jónsson, sem einnig gerði nýja leikgerð af handriti og staðfærði þýðingu Sverris Haraldssonar. Sýningar verða í Félagsheimilinu Bifröst á Sauðárkróki.

Sindri silfurfiskur gerir víðreist

sindri1

Sunnudaginn 1. maí verður leikritið Sindri  silfurfiskur eftir Áslaugu Jónsdóttur í leikstjórn Þórhalls Sigurðssonar , sýnt í síðasta sinn í barnaleikhúsi Þjóðleikhússins, Kúlunni. Í sýningunni er beitt sérstakri ljósatækni til þess að skapa undraveröld hafsins og skrautlegir fiskar, stórir og smáir, synda fyrir augum áhorfandans. Þetta er undurfallegt ævintýri um að það sé allt í […]

Einþáttungahátíð í Bæjarleikhúsinu Mosfellsbæ 29. apríl

bil_island_logo

Föstudaginn 29. apríl heldur Bandalag íslenskra leikfélaga einþáttungahátíð í Bæjarleikhúsinu í Mosfellsbæ, í tengslum við aðalfund Bandalagsins sem haldinn verður um helgina. Sex leikfélög sýna þar alls 10 einþáttunga sem vel flestir eru íslenskir. Að sýningum loknum munu gagnrýnendur fjalla um sýningarnar. Aðgangur er ókeypis.

Hvaða sýning fer í Þjóðleikhúsið?

Alls sækja 13 leikfélög með 16 sýningar um að koma til greina sem Athygliverðasta áhugaleiksýningin 2010-2011 og verða þar með boðið að sýna verkið í Þjóðleikhúsinu í lok leikárs. Niðurstöður valnefndar verða tilkynntar á hátíðarkvöldverð aðalfundar Bandalagsins í Mosfellsbæ laugardaginn 30. apríl nk. Valnefndina skipa þau Melkorka Tekla Ólafsdóttir leiklistarráðunautur, Stefán Hallur Stefánsson leikari og […]

Starfsmannafélög bjóða á sýningu Leikfélags Sauðárkróks

Undanfarin ár hefur skapast hefð fyrir því að Starfsmannafélag Skagafjarðar og Starfsmannafélag Heilbrigðisstofnunarinnar Sauðárkróki bjóði félögum sínum á Sæluvikustykki Leikfélags Sauðárkróks. Býður Starfsmannafélag heilbrigðisstofnunarinnar einn miða en Starfsmannafélag Skagafjarðar býður sínu fólki tvo miða. Sýning Leikfélags Sauðárkróks í næstkomandi Sæluviku er gamanleikurinn Svefnlausi brúðguminn eftir Arnold og Bach, sem frumsýndur verður sunnudaginn fyrsta maí.

Leikfélag Sólheima og Verndarenglarnir

Æfingar á leikritinu Verndarenglarnir hjá Leikfélagi Sólheima eru nú í fullum gangi. Leikritið er samið sérstaklega fyrir Sólheima af Þórnýju Björk Jakobsdóttur sem leikstýrir einnig verkinu. Rauði þráðurinn í leikritinu er einelti og koma ýmsar furðuverur við sögu, svo sem álfar, tröll og huldufólk, ásamt verndarenglunum sem leikritið heitir eftir. Verkið verður frumsýnt á sumardaginn fyrsta, þann […]

Með táning í tölvunni frumsýnt á Hólmavík

Leikfélag Hólmavíkur frumsýnir gamanleikinn Með táning í tölvunni á miðvikudaginn kemur, þann 20. apríl kl. 20 í Félagsheimilinu á Hólmavík. Höfundur verksins er Ray Cooney, þýðinguna gerði Jón St. Kristjánsson og leikstjóri er Arnar S. Jónsson. Um er að ræða nútímalegt verk sem hefur allt til að bera sem prýðir góðan gamanleik.

Leikfélagið Peðið frumsýnir Hlátur

Á föstudaginn langa, 22. apríl kl.20.00, frumsýnir Leikfélagið Peðið nýjan íslenskan gamanleik sem hlotið hefur nafnið Hlátur. Handritið er eftir Kristinn Kristjánsson, Jón Benjamín Einarsson og Guðjón Sigvaldason í samvinnu við leikhópinn. Guðjón er jafnframt leikstjóri sýningarinnar. Sýnt verður í Gallerí Bar 46, við Hverfisgötu 46.

Góð Einkamál á Grandanum

HugleikurEinkamál.isLeikstjórar: Hulda Hákonardottir og Þorgeir Tryggvason  Hugleikur fumsýndi á föstudag  leikritið Einkamál.is  eftir Árna Hjartarson.  Það er skemmst frá að segja að Hugleikur sannar það enn einu sinni að leikfélagið er í fremstu röð þegar kemur að því að setja á svið ný íslensk leikverk. Verk Árna er í senn fyndið og harmrænt í eindfaldri […]

Aukasýning á Havgird í kvöld

Koluppselt var á tvær sýningar Leikfélagsins Royndin á Havgird – Sjótekinn í Gaflaraleikhúsinu um helgina. Af því tilefni verður aukasýning mánudaginn 18. apríl klukkan 21.00. Leikritið er eftir Ágústu Skúladóttur, Katrínu Þorvaldsdóttur og leikhópinn en Ágústa er jafnframt leikstjóri.

Hugleikur sýnir Einkamál.is

Hugleikur frumsýndi nýtt íslenskt leikrit eftir Árna Hjartarson sem nefnist Einkamál.is föstudaginn 15. apríl í húsnæði leikfélagsins að Eyjarslóð 9. Leikstjórar eru Hulda B. Hákonardóttir og Þorgeir Tryggvason. Ólíkt mörgum Hugleikshöfundum sækir Árni Hjartarson sér jafnan efnivið í samtímamál, jafnvel þjóðfélagsleg álitamál, og á það stundum til að vera forspár. Af því tilefni er rétt […]

Umsóknarfrestur í Bandalagsskólann framlengdur til 4. maí

skolalogo200

Frestur til að sækja um pláss í Leiklistarskóla Bandalagsins að Húnavöllum í Húnavatnssýslu dagana 11.-19. júní hefur verið framlengdur til 4. maí eða fram yfir aðalfund Bandalagsins. Enn eru laus pláss á öll námskeiðin en þau eru Leikstjórn II, Leiklist ll og Leiklist fyrir reynda áhugaleikara. Nánar má lesa um námskeiðin hér.

Svefnlausi brúðguminn aftur á Króknum eftir 41 ár

Liðsmenn Leikfélags Sauðárkróks æfa nú af kappi gamanleikinn Svefnlausa brúðgumann eftir Arnold og Bach í þýðingu Sverris Haraldssonar. Leikstjóri er Jakob S. Jónsson, sem einnig gerði nýja leikgerð af handriti og staðfærði, en alls koma á þriðja tug manna að sýningunni. Frumsýnt verður í félagsheimilinu Bifröst 1. maí næstkomandi en það er einmitt opnunardagur Sæluvikunnar […]

Metaðsókn á Melum í Hörgárdal

Leikfélag Hörgdæla sýnir um þessar mundir leikritið Með fullri reisn fyrir fullu húsi kvöld eftir kvöld. Þegar hafa verið sýndar 18 sýningar en áætlaðar eru 30 sýningar. Uppselt er á þær allar og nokkur hundruð manns eru á biðlista. Það stefnir í að áhorfendafjöldi verði hátt í 3.000 manns. Síðasta sýning verður 7. maí, en […]

Frábær leiksýning frá Færeyjum sýnd í Gaflaraleikhúsinu

Leikhópurinn Royndin úr Nólsoy í Færeyjum sýndi leikritið Havgird í leikstjórn Ágústu Skúladóttur á leiklistarhátíð NEATA á Akureyri í ágúst 2010. Verkið er frumsamið og handritið skrifaði Ágústa, að einhverju leyti í samstarfi við leikhópinn. Efni sýningar er áhugavert og stendur okkur nærri, bæði á Íslandi og í Færeyjum. Hafið. Nánar tiltekið, hvað verður um […]

Síðustu sýningar hjá Leikfélagi Selfoss

Nú fer hver að verða síðastur að sjá Hið dullarfulla hvarf Hollvinafélagsins hjá Leikfélagi Selfoss. Aðeins eru eftir tvær sýningar, fimmtudaginn 14. apríl og föstudaginn 15. apríl. Um er að ræða gamansamt spunaverk sem unnið var í samvinnu leikhóps og leikstjóra, en leikstjóri er Gunnar Björn Guðmundsson.  Verkið fjallar um Hollvinafélag sunnlenskra þjóðsagna sem heldur […]

Skráningu í Leiklistarskóla Bandalagsins lýkur 15. apríl

skolalogo200

Enn eru laus pláss á námskeiðin í Leiklistarskóla Bandalagsins sem haldinn verður að Húnavöllum í A-Húnasvatnssýslu dagana 11.-19. júní. Námskeiðin sem boðið verður upp á eru leikstjórn II sem Sigrún Valbergsdóttir kennir, leiklist II sem Ágústa Skúladóttir kennir og leiklist fyrir reynda áhugaleikara sem Steinunn Knútsdóttir kennir. Frestur til að skrá sig er til 15. […]

Frestur til að skrá sig á aðalfund er til 15. apríl

bil_island_logo

Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga verður haldinn í Bæjarleikhúsinu Mosfellsbæ dagana 30. apríl og 1. maí 2011. Frestur til að skrá sig á fundinn rennur út 15. apríl. Einþáttungahátíð verður haldin á sama stað föstudaginn 29. apríl og rennur frestur til að tilkynna þátttöku með leikverk einnig út 15. apríl. Dagskrá aðalfundar er í lögum Bandalagsins. […]

Í útlegð hjá ömmu

Leikfélag DalvíkurHeima hjá ömmuLeikstjóri: Aðalsteinn Bergdal Leikfélag Dalvíkur er eitt af þessum kraftmiklu áhugaleikfélögum sem við höfum hér norðanlands. 25. mars s.l. frumsýndi Leikfélag Dalvíkur Heima hjá ömmu eftir Neil Simon í leikstjórn Aðalsteins Bergdals. Verkið lýsir óvenjulegu heimilishaldi hjá aldraðri þýskri konu og tveimur sonarsonum hennar í New York árið 1942, en hún neyðist […]

Uppi hvað! – Hjólastólasveitin í Gaflaraleikhúsinu

Miðvikudagskvöldið 13. apríl  kl. 20.00 mun uppistandsgengið Hjólastólasveitin enn og aftur tröllríða Gaflaraleikhúsinu og flytja frumsamið grínefni. Fjórir fjörugir uppistandarar – þrír í hjólastólum og einn á skrikkjandi fótum! Gestaleikari kvöldsins er hinn heimsfrægi íslenski uppistandari Ari Eldjárn.

Á svið! sýnt í Ólafsvík

Leikfélag Ólafsvíkur frumsýnir föstudaginn 8. apríl, kl. 20.00 leikverkið Á svið! eftir Rick Abbot  í leikstjórn Gunnsteins Sigurðssonar. Sýnt verður í Félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík. 2. sýning verður sunnudaginn 10. apríl kl. 20.30 og þriðja og lokasýningin föstudaginn 15. apríl kl. 20.00

Einkamál Árna Hjartarsonar brátt opinberuð

Einkamál.is er nýjasta leikrit Árna Hjartarsonar. Dramatískur fjölskyldugamaleikur um samtímafjölskyldu í heimatilbúnum vanda sem Hugleikur æfir nú í húsnæði félagsins við Eyjarslóð. Ólíkt mörgum Hugleikshöfundum sækir Árni sér jafnan efnivið í samtímamál, jafnvel þjóðfélagsleg álitamál, og á það stundum til að vera forspár. Af því tilefni er rétt að taka fram að leikritið er skrifað […]

Gaukssaga sýnd í Félagsheimilinu Árnesi

Sagan um Gauk Trandilsson í Stöng var til, hana átti að rita eftir Njálu í Möðruvallabók, en því miður er sagan nú glötuð. Annað hvort brann hún í handritabrunanum mikla í Köbenhavn eða bókin sökk með handritaskipi því er fórst í hafi á þrettándu öld. En nú hefur Vilborg Halldórsdóttir leikkona- og leikstjóri bætt úr […]

Einn koss enn og ég segi ekki orð við Jónatan sýnt í Miðfirði

Leikfélag ungmennafélagsins Grettis á Laugarbakka í Miðfirði frumsýndi í lok mars farsann Einn koss enn og ég segi ekki orð við Jónatan eftir Marc Camoletti í þýðingu Sigurðar Atlasonar. Leikstjóri sýningarinnar er Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir. Páskasýning verður laugardag fyrir páska 23. apríl í félagsheimilinu Ásbyrgi á Laugarbakka.

Fúsi froskagleypir í Hafnarfirði

Leikfélag Hafnarfjarðar frumsýndi 2. apríl barnaleikritið Fúsa Froskagleypi eftir Ole Lund Kirkegaard í Gaflaraleikhúsinu. Verkið er bráðfjörugt barna og fjölskylduleikrit með skemmtilegri tónlist Jóhanns Moravek undir leikstjórn Bjarkar Jakobsdóttur. Leikritið  var frumsýnt hjá félaginu fyrir 25 árum í Bæjarbíó við fádæma vinsældir. Yfir 20 leikarar og tónlistarmenn taka þátt í sýningunnni sem afar litrík og […]

Bjart með köflum frumsýnt 8. apríl

Þjóðleikhúsið frumsýnir þann 8. apríl, Bjart með köflum, nýtt leikrit með söngvum eftir Ólaf Hauk Símonarson. Ólafur Haukur hefur skrifað mörg geysivinsæl leikrit sem sýnd hafa verið í Þjóðleikhúsinu á síðustu áratugum, meðal annars Gauragang, Þrek og tár, Hafið, Græna landið og Bílaverkstæði Badda, sem voru sett á svið undir stjórn Þórhalls Sigurðssonar. Þeir félagar […]

Perluportið – óperuskemmtun fyrir alla fjölskylduna

Fjórir heimilisleysingjar gramsa í ruslatunnum í óhrjálegu porti. Hverjum hefði dottið í hug að þar leyndust skínandi perlur óperubókmenntanna? Tónlist úr óperum á borð við Brúðkaup Fígarós, Gianni Schicchi, La traviata, Cosi fan tutte, Rakarann í Sevilla – og að sjálfsögðu Perlukafarana, öðlast nýtt líf í stórskemmtilegu sýningu úr smiðju Ágústu Skúladóttur (Ballið á Bessastöðum, […]

Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga 2011

Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga verður haldinn í Bæjarleikhúsinu Mosfellsbæ dagana 30. apríl og 1. maí 2011. Einþáttungahátíð verður haldin á sama stað föstudaginn 29. apríl. Dagskrá aðalfundar er í lögum Bandalagsins. Samhliða aðalfundi fer fram sýning á leikskrám og veggspjöldum leikársins 2009-2010. Val Þjóðleikhússins á Athyglisverðustu áhugasýningu leikársins verður að venju kynnt á hátíðakvöldverðinum.

Undir fullum seglum!

Leikfélag HörgdælaMeð fullri reisnLeikstjóri: Jón Gunnar Þórðarson Undanfarnar vikur hefur Leikfélag Hörgdæla sýnt gamanleikinn Með fullri reisn fyrir fullu húsi bæði föstudags- og laugardagskvöld og oftar en ekki bætt við miðnætursýningum til að anna eftirspurn eftir miðum á þessa frábæru skemmtun. Með fullri reisn er 10 ára gamalt sviðsverk bandaríska leikrita- og söngleikjaskáldsins Terrence McNally […]

Mannsins myrka hlið í Borgarfirði

Leiklistarfélag Nemendafélags Menntaskóla Borgarfjarðar frumsýndi sl. föstudag Mannsins myrku hlið sem er leikriti með söngvum, byggt á plötunni Dark side of the moon með Pink Floyd. Verkið er frumsamið af Bjarti Guðmundssyni, sem jafnframt er leikstjóri þess, og leikhópnum. Frumsýningin gekk framar öllum vonum og ætlaði þakið að rifna af húsinu þegar sýningunni lauk, áhorfendur stóðu […]

Leikhúsið í þjónustu mannúðar

Ávarp á alþjóðlega leiklistardeginum 27. mars 2011 Samkoman í dag, á alþjóðlegum degi leiklistarinnar, er sönn mynd af ótrúlegri getu leikhússins að virkja fólk og byggja brýr. Hafið þið einhvern tíman hugsað út í það hve öflugt tæki leikhúsið gæti verið til friðar og sátta? Ríkisstjórnir fjárfesta ógnarsummur í friðarsveitum á átakasvæðum, en fáir líta […]

Ávarp á Alþjóðlega leikhúsdeginum 27. mars 2011

Það er merkilegt að í hinni efnahagslegu kreppu sem ríkt hefur á Íslandi síðustu misseri, hefur listin blómstrað sem aldrei fyrr. Aðsóknarmet eru sett í leikhúsunum, gestafjöldi á tónleika og myndlistarsýningar eykst og fleiri bækur seljast en nokkru sinni fyrr. Það hefur sýnt sig að fólk forgangsraðar öðruvísi en áður og leitar í vaxandi mæli […]

Síðustu forvöð á Bót og betrun

Leikfélag Kópavogs hefur undanfarið sýnt fimmhurðafarsann Bót og betrun eftir Michael Cooney við rífandi góðar viðtökur. Aðeins þrjár sýningar eru nú eftir áður en sýningin fer í mánaðarlangt hlé. Uppselt er á sýningar fim. 24. og fös. 25. mars en enn eru lausir miðar sunnudaginn 27. mars. Sýnt er í Leikhúsinu að Funalind 2 í Kópavogi.

Leiklist – uppsetningar, sýningar og aðsókn 2009/2010

Samanlagður fjöldi gesta á leiksýningar leikhúsa, atvinnuleikhópa og áhugaleikfélaga innanlands var 416 þúsund á síðasta leikári. Það jafngildir því að hver landsmaður hafi séð eina leiksýningu á leikárinu. Áhorfendum á síðasta leikári fjölgaði um 61 þúsund frá því á leikárinu á undan, eða um 17 af hundraði. Á síðasta leikári voru færðar á fjalirnar 236 […]

Havgird í Gaflaraleikhúsinu 16. og 17. apríl

Havgird, færeyska sýningin sem Ágústa Skúladóttir leikstýrir og sló eftirminnilega í gegn á NEATA-hátíðinni síðastliðið sumar, er á leið til Íslands! Leikritið verður sýnt í Gaflaraleikhúsinu í Hafnarfirði 16. og 17. apríl. Sýningin er afar sjónræn þar sem meðal annars er notast við tónlist, trúðleik og brúðuleik til að skapa hversdagslegan töfraheim sem slunginn er […]

Heima hjá ömmu á Dalvík

Leikfélag Dalvíkur frumsýnir föstudaginn 25. mars næstkomandi leikverkið Heima hjá ömmu eftir bandaríska leikskáldið Neil Simon, sem á sínum tíma fékk bæði Pulitzer- og Tony verðlaunin fyrir verkið. Sýnt er í Ungó og eru áætlaðar eru 11 sýningar á verkinu. Leikstjóri er Aðalsteinn Bergdal.