Leikfélag Mosfellssveitar sýnir Hársprey

Föstudaginn 5. ágúst síðastliðinn var söngleikurinn Hársprey frumsýndur í Bæjarleikhúsinu hjá Leikfélagi Mosfellssveitar. Að söngleiknum koma 37 ungmenni á aldrinum 13-18 ára sem öll sameina krafta sína í leik, söng, dansi og búningagerð. Söngleikurinn er afrakstur námskeiða sem leikfélagið stóð fyrir í sumar, annars vegar leiklistarnámskeiðs og hins vegar búninganámskeiðs. Listrænir stjórnendur eru Agnes Wild, […]

Góðir hálsar á Snæfellsnesi

Góðir hálsar er leiksýning eftir Kára Viðarsson þar sem rakin er saga Axlar-Bjarnar. Sýningin er súrrealísk syndaaflausn með karíókíívafi þar sem áhorfendur fá tækifæri til að sjá mannlegu hliðina á manni sem hingað til hefur verið talinn geðsjúkur raðmorðingi. Leiksýningin verður sú fyrsta í nýju leikhúsi sem nú rís í gamalli fiskvinnslu í Rifi á Snæfellsnesi. […]

Leiklistarhátíðin Act alone 2011

Leiklistarhátíðin Act alone verður haldin áttunda árið í röð dagana 12. – 14. ágúst. Hátíðin fer að vanda fram á Ísafirði sem gárungarnir nefna Einleikjabæinn þegar hátíðin fer fram ár hvert. Eru það orð að sönnu því mikið fjör er í bænum Act alone helgina en auk þess hefur Kómedíuleikhúsið sem einmitt er staðsett í […]

Umsóknarfrestur fyrir stuttverkahátíð í Færeyjum 15. ágúst

Stuttverkahátíðin í Þórshöfn í Færeyjum verður haldin 15. október á þessu ári. Færeyjar, Ísland og Noregur taka þátt og er hverju landi úthlutað 75 minútna sýningartíma sem það ráðstafar að vild. Þó mega einstakar sýningar ekki fara yfir 15 mínútur að lengd. Ef eitthvert landanna fyllir ekki tímakvótann sinn, getur annað land nýtt sér hann. […]

Skjaldbakan á Hólmavík og Act alone hátíðinni

Þrjár sýningar verða á einleiknum Skjaldbakan á Hólmavík í júlí og ein á einleikjahátíðinni Act alone á Ísafirði í ágúst. Skjaldbakan er gamansamur einleikur leikinn af Smára Gunnarssyni og saminn í samstarfi við leikstjórann Árna Grétar Jóhannsson. Verkið er byggt á þeim stóratburði þegar risaskjaldbaka kom að landi á Hólmavík árið 1963. Verkið var frumsýnt […]

Leikárið 2010-11 hjá Bandalagi íslenskra leikfélaga

bil_island_logo

Nú liggja fyrir helstu tölur um starfsemi aðildarfélaga Bandalags íslenskra leikfélaga leikárið 2010-2011 og er ljóst að í meginatriðum eru þær mjög svipaðar og undanfarin ár. Á leikárinu voru 60 aðildarfélög að Bandalaginu en fjöldi félaga með starfsemi á árinu var 39 og í þeim félögum störfuðu 2.522 félagar.

Draumurinn sýndur í Borgarbyggð

Draumurinn gleðileikur  með söng og dansi byggður á verki Shakespeares Draumi á Jónsmessunótt frumsýndur í Borgarbyggð föstudaginn 8.júlí kl.20:00 í Valfelli. Listasmiðjan bak við eyrað frumsýnir verkið í samstarfi við Tónlistarskóla Borgarbyggðar, Dansskóla Evu Karenar og sveitarfélagið Borgarbyggð. Það er Ása Hlín Svavarsdóttir leikstjóri og mastersnemi í við Listaháskóla íslands sem gerir leikgerðina og setur […]

Í hers höndum frumsýnt á Reyðarfirði

  Leikfélag Reyðarfjarðar frumsýnir hinn glænýja gamanleik Í hers höndum í Félagslundi á Reyðarfirði 1. júlí næstkomandi. Höfundar eru Gunnar Ragnar Jónsson og Þórður Vilberg Guðmundsson og er þetta þeirra fyrsta verk. Aðeins verða tvær sýningar, sú síðari laugardaginn 2. júlí og hefjast báðar sýningar kl. 21.00. Þetta er annað árið í röð sem að […]

Hárið úr Hofi í Hörpu

Eftir 15 uppseldar sýningar á Hárinu í Menningarhúsinu heldur suður á bóginn og er ætlunin að sýna verkið í Hörpunni í júlí. Sýnt verður í salnum Norðurljós sem er stór kassi. Það er skemmtileg tilviljun að Jón Gunnar Þórðarson leikstýrði fyrstu uppfærslunni í Menningarhúsinu Hofi, Rocky Horror, og nú leikstýrir nú einnig fyrstu sýningunni í […]

Listin að segja sögu – Sagnaþing á Núpi

Í heila viku í lok júlí ætla norrænir sagnaþulir að sitja saman í vestfirskri náttúrufegurð og ræða um listina að segja sögu. Þetta er í nítjánda sinn sem norrænt sagnaþing er haldið og í annað sinn hér á landi. Núpur í Dýrafirði hentar einkar vel til þessa, á miðju sögusviði Gísla sögu Súrssonar. Þar verða […]

Þrjár aukasýningar á Hárinu í Hofi

Um helgina verða lokasýningar á Hárinu í Menningarhúsinu Hofi. Silfurtunglið sýndi 12 troðfullar sýningar á 15 dögum yfir páskana og kveðja Akureyri um helgina með þremur sýningum. Nú fer hver að verða síðastur að sjá Hárið því miðarnir eru að seljast upp, en þessari velgengni verður fagnað með miðnætursýningu á laugardaginn  

Kona einsömul frumsýnt í Gaflaraleikhúsinu

Á kvennréttindadaginn, þann 19. júní næstkomandi, verður einleikurinn Kona Einsömul eftir leiklistarfrömuðinn Dario Fo og konu hans Franca Rame í þýðingu Aldísar Davíðsdóttur frumsýndur. Aldís fer einnig með einleik undir leikstjórn Guðjóns Þorsteins Pálmarsonar. Verkið tekur á réttindum kvenna á gamansaman hátt þar sem gert er grín af yfirgangssemi karlmanna og því hvernig konur eiga […]

Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga 30. apríl 2011 í Mosfellsbæ

Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga í Bæjarleikhúsinu Mosfellsbæ 30. apríl 2011 1.     Fundarsetning. Kosning 2ja og 2ja fundarritara, sem taka þegar til starfa. Lögmæti fundarins kannað. Þorgeir Tryggvason, formaður Bandalagsins bauð fundargesti velkomna. Hann stakk upp á Grétari Snæ Hjartarsyni og Pétri Ragnari Péturssyni frá Leikfélagi Mosfellsveitar sem fundarstjórum og Ármanni Guðmundssyni, ritara skrifstofu, og […]

Sumarleiksýningar í Tjarnarbíó

Í júní mun Tjarnarbíó bjóða upp á tvær sprellfjörugar íslenskar leiksýningar. Þetta eru Hetja eftir Kára Viðarsson og Víking Kristjánsson, og Ferðasaga Guðríðar þar sem Þórunn Erna Clausen fer á kostum í splunkunýrri leikgerð af hinu rómaða leikriti Brynju Benediktsdóttur Ferðir Guðríðar. Báðar sýningarnar hafa fengið mikið lof gagnrýnenda en þær voru frumsýndar á síðasta […]

Vorstarf Leikfélags Selfoss

Aðalfundur Leikfélags Selfoss var haldinn í Litla leikhúsinu við Sigtún miðvikudaginn 11. maí. Var fundurinn léttur og skemmtilegur að vanda þar sem ýmis skemmtileg erindi voru borin upp og síðasta leikár reifað auk annarra venjulegra aðalfundarstarfa. Þau Íris Árný Magnúsdóttir og Stefán Ólafsson hættu í stjórn eftir nokkurra ára farsælt og öflugt starf og var […]

Sjálfstæðir sviðslistahópar hljóta 28 tilnefningar

Sjálfstæðir sviðslistahópar hljóta alls 28 tilnefningar til Grímuverðlaunanna í ár. Eins og undanfarin ár eru sjálfstæðir hópar með flestar tilnefningar í Leikskáld ársins eða 4 af 5. Einnig hljóta sjálfstæðir dansarar og danshöfundar fjölda tilnefninga í ár eða 8 af 11. Sjálfstæðir hópar eru með 4 af 5 tilnefningar í flokknum Barnasýning ársins. Af þeim […]

Leikfélagið Sýnir auglýsir eftir leikurum

Leikfélagið Sýnir er um þessar mundir að hefja æfingar á verkefni sumarsins, Sögu af Tristram og Ísönd, sem verður útileiksýning, sýnd í Elliðaárdal. Er þar á ferð ný leikgerð af þessari frægu riddarasögu og hefur hún allt sem prýða má góða leiksýningu, ástir, afbrýðisemi, ofbeldi, öfund, hugrekki, dreka og illan dverg. Frumsýnt verður seinni part […]

Prufusöngur fyrir drengi og stúlkur í Hörpu

Íslenska óperan efnir til prufusöngs fimmtudaginn 9. júní fyrir þrjú hlutverk í Töfraflautunni eftir Mozart, sem frumsýnd verður í Hörpu í haust. Um er að ræða hlutverk „drengjanna þriggja“, „Drei Knaben“, sem koma töluvert við sögu í óperunni. Leitað er að ungum drengjum eða stúlkum með góðar bjartar sópranraddir, þó ekki yngri en 10 ára. […]

Drama Master Class í Landnámssetrinu

Drama Master Class verður haldið í Landnámssetrinu í Borgarnesi dagana 1.-6. ágúst næstkomandi. Kennari er Michael Seibel, prófessor í leiklist, spuna og raddþjálfun. Kynnin við leikhúsið er opið boð sem krefst andlegs, tilfinningalegs og líkamlegs vilja til að nálgast það óþekkta, nýja og framandi. Á námskeiðinu er áherslan lögð á líkamlega vinnu leikarans, vinnu leikarans og skynjun […]

Skemmtiferð á vígvöllinn

FreyvangsleikhúsiðGóði dátinn Svejk í ÞjóðleikhúsinuLeikstjóri: Þór Tulinius Ég á bágt með að trúa því að nokkur sem var búinn að sjá sýningu Freyvangsleikhússins á Góða dátanum Svejk hafi efast um að þau yrðu fyrir valinu sem Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins þetta árið. Það er ekki oft sem maður sér viðamikla sýningu af þessu tagi heppnast svona […]

Ný stjórn Leikfélags Ölfuss

Aðalfundur LÖ var haldinn í Ráðhúskaffi, Þorlákshöfn fimmtudagskvöldið 26. maí. Fundarstjóri var Árný Leifsdóttir og ritari Helena Helgadóttir. Ágæt mæting var og fóru fram hefðbundin aðalfundastörf. Meðal annars urðu breytingar á stjórn.

Aðalfundur Halaleikhópsins 2011 haldinn 28. maí

Verður haldinn laugardaginn 28. maí kl. 14.00 í Rauða salnum, Sjálfsbjargarhúsinu Hátúni 12 gengið inn að vestanverðu. Skv. lögum félagsins geta allir fullgildir félagsmenn gefið kost á sér í þessi embætti á fundinum. Nú er kjörið tækifæri fyrir nýtt fólk að gefa kost á sér í stjórn. Lög félagsins má finna á vefnum okkar.

Metaðsókn á Með táninginn í tölvunni og leikferð framundan

Leikfélag Hólmavíkur leggur upp í leikferð um Vestfirði í næstu viku, með uppsetningu á hinum sprellfjöruga gamanleik  „Með táning í tölvunni“ eftir Ray Cooney. Nú er endanlega búið að ákveða hvar og hvenær sýningarnar verða en þær verða þrjár í ferðinni, á Patreksfirði, á Bolungarvík og í Súðavík. Leikfélagið á 30 ára afmæli á þriðjudaginn […]

Big Wheel Café í Þjóðleikhúsinu

Föstudaginn 27. maí býður leikhúsmaðurinn makalausi Kristján Ingimarsson gestum á harla óvenjulegt kaffihús við þjóðveginn, þar sem hver heimsókn varir ævina. Big Wheel Café var sýnt í Kaupmannahöfn í vetur og hlaut afar góða dóma. Kristján er höfundur og leikstjóri verksins, en auk hans taka danskir og íslenskir tónlistarmenn og leikarar þátt í sýningunni.

Góði dátinn Svejk í Þjóðleikhúsinu 29. maí

Athyglisverðasta áhugaleiksýning leikársins 2010 til 2011  er að þessu sinni Góði dátinn Svejk, leikgerð Colin Teevan eftir sögu Jaroslav Hasek, í uppsetningu Freyvangsleikhússins. Leikstjóri er Þór Tulinius. Sýningin hefur verið sýnd við miklar vinsældir í Freyvangsleikhúsinu í Eyjafirði, og verður nú sýnd á Stóra sviðinu þann 29. maí.

Gamli góði Villi – Sjeikspír í höndum Hugleiks

Sunnudaginn 29. maí kl. 16 frumsýnir Hugleikur sýninguna Gamli góði Villi – Sjeikspír í höndum Hugleiks. Höfundar félagsins hafa lagst yfir verk skáldsins og stolið þaðan öllu sem hnýsilegt má teljast en skrumskælt annað af vel þekktu smekkleysi sínu, og jafnvel samið frá grunni ýmislegt með misbeinar vísanir í verkin. Leikstjórar og leikendur hafa síðan […]

Verslun Bandalagsins opnuð á nýjum stað

Þjónustumiðstöð Bandalags íslenskra leikfélaga hefur nú verið opnuð á ný og er nú til húsa að Kleppsmýrarvegi 8. Nýja húsnæðið er á jarðhæð að Kleppsmýrarvegi 8 í póstnúmeri 104 í Reykjavík en Kleppsmýrarvegur gengur niður af Skeiðarvogi og þetta er mjög stutt frá Húsasmiðjunni við Skútuvog, beint á móti Bónus, sjá kort.

Aðalfundur Leikfélags Ölfuss 26. maí

Aðalfundur Leikfélags Ölfuss verður haldinn í Ráðhúskaffi, Þorlákshöfn fimmtudaginn 26. maí kl. 20:00. Auk venjulegra aðalfundarstarfa verða verkefni leikársins kynnt og tekið fagnandi á móti nýjum félögum. Leikfélag Ölfuss var stofnað haustið 2005 og hefur síðan þá sett upp 6 stórar sýningar auk þess sem félagið hefur tekið þátt í fjölmörgum uppákomum og smærri verkefnum. […]

Leikfélagið Sýnir heldur aðalfund 19. maí

Fimmtudaginn 19. maí kl. 20 heldur Leikfélagið Sýnir aðalfund sinn að Eyjarslóð 9, húsnæði Hugleiks. Þar verður, auk hefðbundinna aðalfundastarfa, kynnt verkefni næsta sumars sem verður ný leikgerð á riddarasögunni af Tristan og Ísönd sem Ármann Guðmundsson og Guðrún Sóley Sigurðardóttir hyggjast vinna í samvinnu við leikhópinn. Nýir jafn sem gamlir Sýnarar eru hvattir til […]

Allra síðustu sýningar á Fjalla Eyvindi

Tvær sýningar í viðbót verða hjá Leikhópnum Aldrei óstelandi á Fjalla-Eyvindi Jóhanns Sigurjónssonar á Norðurpólum. Þær verða sunnudaginn 15. maí og þriðjudaginn 17. mai klukkan 20. Fjalla Eyvindur er ein magnaðasta ástarsaga íslensks leiksviðs og fjallar um stórar ástir og miklar fórnir, flókið samband karls og konu sem talar jafn mikið til okkar í dag […]

Gamli góði Villi – æfingar hafnar hjá Hugleik

Shakespeare gengur til liðs við Hugleik í síðasta verkefni félagsins á leikárinu. Ekki þó sjálfviljugur.  Höfundar félagsins hafa lagst yfir verk skáldsins og stolið þaðan öllu sem hnýsilegt má teljast en skrumskælt annað af vel þekktu smekkleysi sínu, og jafnvel samið frá grunni ýmislegt með misbeinar vísanir í verkin. Leikstjórar og leikendur hafa síðan bætt […]

Skop á Sæluviku

Leikfélag Sauðárkróks Svefnlausi brúðguminnLeikstjóri: Jakob S. Jónsson Hefð er fyrir því að Leikfélag Sauðárkróks frumsýni í upphafi Sæluviku, hinni árlegu lista- og menningarhátíð Skagfirðinga sem rekur uppruna sinna allt aftur á 19. öld. Ekki var brugðið út af vananum að þessu sinni og þann 1. maí síðast liðinn frumsýndi leikfélagið leikritið Svefnlausa brúðgumann eftir Þjóðverjanna […]

Aðalfundur Leikfélags Selfoss

Nú vorar loksins á Suðurlandinu sem og Selfossi og það þýðir aðeins eitt, aðalfundur Leikfélags Selfoss er á næsta leiti.  Aðalfundur Leikfélags Selfoss verður haldinn miðvikudaginn 11. maí kl. 20.00 í Litla leikhúsinu við Sigtún. Hann verður með hefðbundnu sniði, venjuleg aðalfundarstörf í léttri og heimilislegri stemningu. Sérstaklega bendum við á að inntaka nýrra félaga […]

Umsóknareyðublöð vegna ríkisstyrks 2011

bil_island_logo

Umsóknareyðublöð vegna styrkja Menntamálaráðuneytisins til sýninga áhugaleikfélaga fyrir leikárið 2010-2011 eru nú tiltæk hér á vefnum. Umsækjendur eru beðnir um að fara vandlega yfir leiðbeiningar sem fylgja eyðublöðunum og hafa samband við Þjónustumiðstöðina ef eitthvað er óljóst. Eyðublöðin sem eru á PDF-formi eru hér vinstra megin á forsíðunni. Frestur til að skila umsóknum til skrifstofu […]

Við flytjum!

Skrifstofa Bandalags íslenskra leikfélaga flytur sig um set í næstu viku og opnar á nýjum stað mánudaginn 23. maí nk. Vegna flutninganna verður lokað alla næstu viku eða frá mánudegi 16. maí. Nýja húsnæðið er á jarðhæð að Kleppsmýrarvegi 8 í póstnúmeri 104 í Reykjavík og er um 70 fm að stærð. Kleppsmýrarvegur gengur niður […]

Allra, allra síðasta aukasýning á Einkamál.is

Nú fer hver að verða síðastur að sjá Einkamál.is eftir Árna Hjartarson í leikstjórn Huldu B. Hákonardóttur og Þorgeirs Tryggvasonar. Frá því Hugleikur frumsýndi verkið 15. apríl sl. hefur verið uppselt á allar sýningar og færri komist að en vildu. Tvær aukasýningar voru því um helgina, en þriðja og allra síðasta aukasýningin verður í kvöld, […]

Steinunn Knútsdóttir nýr deildarforseti leiklistar- og dansdeildar

Steinunn Knútsdóttir hefur verið ráðin í stöðu deildarforseta leiklistar- og dansdeildar. Hún tekur við af Ragnheiði Skúladóttur, sem hefur stýrt deildinni allt frá stofnun hennar haustið 2000. Steinunn hefur að baki fjölþættan feril, bæði í námi og starfi. Hún lauk bakkalárnámi í guðfræði við Háskóla Íslands, stundaði  leiklistarnám í Árósum, og lauk síðar meistaranámi í […]

Halaleikhópurinn með Kaffileikhús

Kaffileikhús eða skemmtikvöld verður seinnihlutann í maí hjá Halaleikhópnum. Sýnt verður í Halanum. Það verða nokkur tónlistaratriði og 2 til 3 stuttverk þar á meðal Snyrting sem var á Einþáttungahátíð Bandalags íslenskra leikfélaga í Mosfellsbæ 29. apríl. Vorhittingur verður í Halanum laugardaginn 7. maí kl. 14:00. Allir velkomnir og kjörið tækifæri að fá að spreyta […]

Umsóknarfrestur í Bandalagsskólann er til 4. maí

skolalogo200

Nú fer hver að vera síðastur til að sækja um pláss í Leiklistarskóla Bandalags íslenskra leikfélaga sem haldinn verður að Húnavöllum í A-Húnavatnssýslu dagana 11.-19. júní nk. Í boði eru þrjú námskeið, framhaldsnámskeið fyrir leikstjóra sem Sigrún Valbergsdóttir kennir, framhaldsnámskeið fyrir leikara sem Ágústa Skúladóttir kennir og námskeið fyrir reynslumeiri leikara sem Rúnar Guðbrandsson kennir […]

Góðgerðasýning á Drama lama

Aðeins er ein sýning eftir á hinum bráðfyndna söngleik Drama lama, sem er  í lit og með íslensku tali um 17 ára Akureyring og er hún í kvöld, þriðjudaginn 3. maí klukkan 20:00. Leikfélag Menntaskólans á Akureyri hefur nú sýnt 8 sýningar fyrir fullu húsi af söngleiknum og nú er komið að síðustu sýningunni og verður […]