Síðustu sýningar á !HERO
Rokkóperan !HERO er í raun nútíma/Brooklyn útgáfa af Jesus Christ Superstar. Sýningin er leikhús og tónlistarupplifun sem enginn ætti að láta framhjá sér fara. Tónlistin spannar allt frá rokki, poppi og fallegum melódíum yfir í rapp. Með aðalhlutverk fara m.a.: Svenni Þór (Luxor), María Magnúsdóttir, Sigurður Ingimarsson og rappararnir Dabbi T og Poetrix. Leikstjóri: Rakel Brynjólfsdóttir, Tónlistarstjóri: Jóhann Axel Schram Reed, Dans og sviðshreyfingar: Petra Pétursdóttir. Um takmarkaðan sýningarfjölda er að ræða og eru síðustu sýningar um helgina í Loftkastalanum: Laugardaginn 14. mars kl. 17:00 Sunnudaginn 15. mars kl. 17:00 Allar nánari upplýsingar um sýninguna, myndir, tónlist og fleira...
Read More


