Author: lensherra

Leiksýningar 2007-2008 í tölum

Í tilefni af alþjóða leiklistardeginum þann 27. mars nk. hefur Hagstofa Íslands sent frá sér frétt um leiksýningar leikhúsa og leikhópa leikárið 2007-2008. Samanlagður fjöldi gesta á leiksýningar leikhúsa, atvinnuleikhópa og áhugaleikfélaga nam ríflega 414 þúsundum á síðasta leikári, leikárinu 2007/2008. Þetta samsvarar því að hver landsmaður hafi sótt leiksýningu 1,3 sinnum á leikárinu. Gestum fækkaði nokkuð frá fyrra leikári – leikárinu 2006/2007 – eða um tæplega 25 þúsund gesti, sem samsvarar fækkun gesta um 5,7 af hundraði. Á síðasta leikári voru settar upp á fjalirnar 231 uppfærsla. Sýningar voru 3.339 talsins. Heildarfjöldi gesta leikhúsa, leikhópa og félaga á...

Read More

Fjórar sýningar í gangi hjá LA um páskana

Það verður úr nógu að velja fyrir þá sem hyggjast dvelja í höfuðstað Norðurlands núna um páskana en Leikfélag Akureyrir býður uppá 4 sýningar yfir hátíðirnar. Þetta eru Fúlar á móti með þeim Eddu Björgvins, Helgu Brögu og Björk Jakobs sem slegið hefur rækilega í gegn, Tenórinn, sem saminn og fluttur er af Guðmundi Ólafssyni, Skoppa og Skrítla fyrir yngstu börnin og svo Þjónn í súpunni sem sýnt er í samvinnu við veitingahúsið Friðrik V. Edda Björgvins, Helga Braga og Björk Jakobs eru Fúlar á móti í nýju skítfyndnu, frístandandi uppistandi í íslenskri útfærslu Gísla Rúnars Jónssonar. Þetta er...

Read More

Ávarp Alþjóða leiklistardagsins, 27. mars 2009

Leiklistarsamband Íslands hefur ávallt fengið íslenskan leikhúslistamann til að semja sérstakt ávarp í tilefni Alþjóða leiklistardagsins. Hefur sú hefð skapast að það hafi verið flutt af höfundi í útvarpi þann dag, sem og af stóra sviði Þjóðleikhússins fyrir sýningu. Þá hafa leikhúslistamenn um allt land stigið fram fyrir tjald leikhúsa sinna og flutt ávarpið íslenska þetta kvöld. Ávarpið semur að þessu sinni Sigrún Edda Björnsdóttir leikkona. Frá árinu 1962 hefur Alþjóða leiklistardagurinn verið haldinn hátíðlegur um allan heim. Þá hefur heimskunnur leikhúslistamaður verið fenginn til að semja ávarp í tilefni dagsins af Alþjóða leiklistarstofnuninni, ITI, sem hefur aðsetur í...

Read More

Borgarholtsskóli sýnir Rómeó og Júlíu

Leikfélag Zeus í Borgarholtsskóla frumsýnir eitt frægasta meistaraverk leikbókmenntanna: Rómeó og Júlíu eftir William Shakespeare, í þýðingu Hallgríms Helgasonar. Þetta er kynngimagnaður og meinfyndinn harmleikur þar sem jogglað er með hnífa, barist með prikum, staðið á öxlum og ástin tekur heljarstökk út yfir líf og dauða. Leikstjóri er Ágústa Skúladóttir. Leiklistin hefur verið ríkjandi í kennslu skólans í mörg ár og skipað stóran sess í félagsstarfi nemenda. Á þessari önn tók leikfélagið aftur formlega til starfa eftir nokkurra ára hlé og eru nú allt að 40 manns í leikfélaginu. Leikhópurinn, sem tekur þátt í sýningunni, er um 20 manns...

Read More

Frestur til að sækja um Athyglisverðustu áhugaleiksýninguna

Á aðalfundi Bandalagsins, 1. og 2. maí nk. verður val Þjóðleikhússins á athyglisverðustu áhugaleiksýningunni tilkynnt eins og hefð er fyrir. Frestur til að sækja um fyrir leiksýningu að koma til greina í valinu rennu út 20. apríl nk. og skulu umsóknir berast til Þjóðleikhússins ásamt myndbandsupptökum af sýningunni ekki seinna en þá um daginn. Leikfélög eru eindregið hvött til þess að sækja um með sýningar sínar. Þjóðleikhúsið hefur um árabil boðið aðildarfélögum Bandalags íslenskra leikfélaga að taka þátt í valinu á Athyglisverðustu áhugleiksýningu ársins og er sú sýning sem fyrir valinu verður sýnd á einhverju sviði Þjóleikhússins í lok...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert