Author: lensherra

Tónlistarskólinn í Reykjavík sýnir tvær óperur

Föstudagskvöldið 3. apríl verða sýndar tvær óperur í uppfærslu Tónlistarskólans í Reykjavík í samvinnu við Íslensku óperuna. Þessi óperusýning sætir nokkrum tíðindum, því hér er um að ræða annars vegar frumflutning á nýrri íslenskri óperu, Gilitrutt eftir Þórunni Guðmundsdóttur, og hins vegar frumflutning á Íslandi á fyrstu óperu Rossinis, La cambiale di matrimonio. Leikstjórn er í höndum Þórunnar Guðmundsdóttur og hljómsveitarstjóri er Kjartan Óskarsson. La cambiale di matrimonio (Hjónabandssamningurinn) var samin af Gioachino Rossini (1792 –1868)  á örfáum dögum árið 1810, þegar hann var aðeins átján ára gamall. Hún er fyrsta ópera hans sem flutt var opinberlega. Librettóið er eftir Gaetano...

Read More

Leikfélag Sauðárkróks leggur Roklandi lið

Kvikmyndafélagið Pegasus hefur verið á Sauðárkróki síðustu daga við æfingar og undirbúning vegna kvikmyndarinnar Roklands, sem byggir á samnefndri skáldsögu Hallgríms Helgasonar. Leikfélag Sauðárkróks hefur verið framleiðendum myndarinnar innanhandar og lagt til leikara í ýmis aukahlutverk. Það var éljagangur og norðangarri sem mætti leikurum og kvikmyndafólki á Nöfum ofan við Krókinn um hádegisbil á mánudag þegar fram fóru æfingar vegna jarðarfarar móður aðalsögupersónunnar Bödda, sem Ólafur Darri leikur. Leikfélag Sauðárkróks, sem heldur uppá 120 ára afmæli sitt í ár, útvegaði til jarðarfararinnar allnokkurn fjölda eldri leikara. Nokkrir þeirra leikara sem þar voru eiga að baki áratuga leikferil með LS,...

Read More

Gefðu Jens séns sýnt hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar

Unglingadeild Leikfélags Hafnarfjarðar laugardaginn 4. apríl í húsakynnum félagsins í Gamla Lækjarskóla í Hafnarfirði, nýtt frumsamið spunaverk sem ber nafnið Gefðu Jens séns. Það er unnið af leikhópnum og leikstjórum hans. Leikhópurinn samanstendur af 8 eldhressum unglingum, en umsjónarmenn og leikstjórar eru þær Guðrún Sóley Sigurðardóttir og Hrefna Lind Lárusdóttir. Æfingar í leiksmiðju hófust í lok janúar og er verkið afrakstur þeirra. Byrjað var í æfingum út frá karakterum sem leikarar bjuggu til. Karakterarnir höfðu allir sína sögu sem síðar voru fléttaðar saman í senur og loks fullmótað handrit. Afraksturinn er Gefðu Jens séns, spunaverk í fullri lengd. Sýningar...

Read More

Auðun og ísbjörninn á Ísafirði

Kómedíuleikhúsið frumsýnir nýtt íslenskt leikverk Auðun og ísbjörninn miðvikudaginn 1. apríl kl. 20 í Tjöruhúsinu á Ísafirði. Leikurinn er byggður á Íslendingaþættinum Auðunar þáttur vestfirzka sem er án efa besti og vinsælasti allra Íslendingaþátta. Hér segir frá bóndastrák frá Vestfjörðum sem leggst í víking og á vegi hans verður taminn ísbjörn. Auðun ákveður að gefa Sveini Danakonungi ísbjörninn og hefst þá ævintýralegt ferðalag piltsins og bjarnarins. Höfundur og leikstjóri er Soffía Vagnsdóttir og leikari er Elfar Logi Hannesson. Tónlistin í leiknum er eftir Hrólf Vagnsson en Bára Grímsdóttir og Steindór Andersen flytja söngvana. Höfundar leikmyndar eru Kristján Gunnarsson og...

Read More

Valhalla Bank skipuleggur magnaða opnunarhátíð

Undirbúningur að stofnun Valhalla Bank gengur vonum framar. Bankinn mun opna þann 2. apríl og í tilefni þess verður blásið til opnunarveislu þrisvar sinnum. Fyrsta hátíðin verður þann 2. apríl, næsta 3. apríl og sú síðasta 11. apríl. Ástæða þess er gríðarleg eftirspurn að hátíðinni sem og vilji bankans til að tengjast fólkinu á starfsvæði bankans. Þess vegna er miðaverði á opnunarhátíðinni stillt hóf og kostar aðeins 1.500 kr. miðinn. Búið er að ganga frá æðisgenginni dagskrá og helst ber að nefna að Aðalsteinn Bergdal sér um að halda uppi stuðinu, bæjarlistamaður Akureyrar frumsýnir nýtt listaverk, bankastjórinn sýnir á...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert