Halaleikhópurinn með Kaffileikhús á Uppstigningardag
Á uppstigningardag, 21. mai kl. 17.00, verður kaffileikhús hjá Halaleikhópnum í Halanum Hátúni 12 (norðanverðu við hliðina á þar sem Góði Hirðirinn var). Sýnd verða þrjú stuttverk eftir Benoný Ægisson, Jónínu Leósdóttir og Ármann Guðmundsson. Leikstjóri er Gunnar „Gunsó“ Gunnarsson. Milli atriða verða leika hljómsveitir auk þess sem uppistandararnir í Hjólastólasveitinni troða upp. Aðeins verður þessi eina sýning. Verkin sem sýn verða eru: Miðvikudagur í Helvíti, eftir Ármann GuðmundssonBara Tjilla, eftir Jónínu LeósdótturEinleikur fyrir höfund og leikara, eftir Benóný ÆgissonHjólastólasveitin mun flytja nýtt rúllandi uppistand sem þau kalla Kókosbollu hó ó pónó, leikstjóri Ágústa Skúladóttir Þrjár hljómsveitir munu flytja...
Read More


