Jólastemmningin er í Bæjarleikhúsinu
Verkstæði jólasveinannaLeikfélag MosfellsbæjarLeikstjóri: Stefán Bjarnarson Það er ekki laust við að ég hafi verið spenntur fyrir frumsýningu Leikfélag Mosfellsbæjar á Verkstæði jólasveinanna í Bæjarleikhúsinu. Alinn upp með þessu verki var ég að minnsta kosti örugglega spenntari en fimm ára dóttir mín, sem var alveg steinhissa á því að jólasveinarnir væru með verkstæði í Mosfellbæ.Hér á […]
Nemendaleikhúsið sýnir Jarðskjálfta í London
Föstudaginn 2. desember næstkomandi frumsýnir Nemendaleikhús Listaháskóla Íslands verkið Jarðskjálftar í London eftir Mike Bartlett í Smiðjunni, Leikhúsi Listaháskóla Íslands að Sölvhólsgötu 13. Verkið er nú sett upp í fyrsta sinn á Íslandi í þýðingu Heiðars Sumarliðasonar og leikstjórn Halldórs E. Laxness. Í þessari mögnuðu rússíbanaferð þeytumst við um í tíma og rúmi frá 1968 til […]
Salka Valka á svið í Borgarfirði
Í kvöld frumsýnir Umf. Dagrenning í Lundarreykjadal í Borgarfirði leikritið Sölku Völku í leikstjórn Jakobs S. Jónssonar. Er þetta þriðja verkið eftir Halldór Laxness sem félagið setur upp, en áður hefur verið tekist á við Sjálfstætt fólk og Íslandsklukkuna. Segja má að um afmælissýningu sé að ræða þar sem félagið fagnaði 100 ára afmæli sínu […]
Leitin að jólunum hefst 27. nóvember
Sjöundu aðventuna í röð sýnir Þjóðleikhúsið ævintýrið Leitina að jólunum. Að jafnaði verða þrjár sýningar hvern laugardag og sunnudag kl. 11, 13 og 14:30 allar helgar til jóla. Leitin að jólunum er eftir Þorvald Þorsteinsson og er sýningin ríkulega hljóðskreytt með tónlist Árna Egilssonar við Jólasveinavísur Jóhannesar úr Kötlum. Sýningin var frumsýnd í Þjóðleikhúsinu á […]
Bjálfansbarnið og bræður hans á Ísafirði
Kómedíuleikhúsið frumsýnir nýtt íslenskt jólaleikrit í Listakaupstað á Ísafirði um helgina. Leikurinn heitir Bjálfansbarnið og bræður hans, og er sannkallað jólaævintýri fyrir alla fjölskylduna. Hér er sagt frá vestfirsku jólasveinunum sem hafa ekki sést í mannabyggðum í hundrað ár ef ekki meira. Þessir sveinar eru skrítnir og skondnir enda heita þeir undarlegum nöfnum á borð […]
Jesús litli snýr aftur á Litla sviðið
Jólin koma með guðspjalla trúðanna. Jesús litli hefur slegið rækilega í gegn síðustu tvö ár og fer nú aftur á svið fyrir jólin þriðja leikárið í röð, nk. laugardag 26.11.11. Jesús litli hlaut Menningarverðlaun DV 2009 og var valin besta leiksýning ársins á Grímunni vorið 2010. Jesús litli er nýsnúinn aftur úr leikferð til Spánar […]
Elsku barn snýr aftur á Nýja sviðið á fimmtudag
Verðlaunaverkið Elsku barn, eftir breska leikskáldið Dennis Kelly, snýr aftur á fjalir Nýja sviðsins fimmtudaginn 24. nóvember nk. Elsku barn er nístandi saga móður sem sökuð er um að myrða börnin sín tvö. Hér er á ferðinni áleitið verk sem veltir upp ýmsum heimspekilegum spurningum um eðli sannleikans, réttlæti og lygi, hvernig lifa má við […]
Ferna í Kópavogi
Leikfélag Kópavogs frumsýnir leikdagskrána Fernu fimmtudaginn 24. nóvember kl. 20.00. Dagskráin samanstendur af 4 leikþáttum, tveimur íslenskum og tveimur erlendum. Íslensku þættirnir eru XXX eftir Jónínu Leósdóttur og Verann eftir Hrefnu Friðriksdóttur. Erlendu þættirnir nefnast Fjölskylda 2.0 og Vegsummerki minninga. Átta leikarar taka þátt og þar af eru fimm að þreyta frumraun sína með leikfélaginu. […]
Síðustu sýningar á Töfraflautunni
Bjarni Thor Kristinsson bassasöngvari bregður sér í hlutverk Sarastrós á einni sýningu á Töfraflautunni í Íslensku óperunni í haust, en það verður á aukasýningunni næstkomandi sunnudag 20. nóvember kl. 16.00. Á öllum öðrum sýningum syngur hins vegar Jóhann Smári Sævarsson hlutverkið, og um helgina syngur ennfremur Hlöðver Sigurðsson hlutverk Annars reglubróður í stað Kolbeins Ketilssonar. […]
Síðustu sýningar á Himnaríki
Himnaríki – geðklofinn gamanleikur, var frumsýndur í Versölum í Þorlákshöfn þann 14. október og hafa nú verið sýndar 9 sýningar. Viðtökur hafa verið vægast sagt frábærar og mikið fjör verið á sýningum. Leikstjóri er Gunnar Björn Guðmundsson og leikarar í sýningunni eru þau Aðalsteinn Jóhannsson, Árný Leifsdóttir, Helena Helgadóttir, Róbert Karl Ingimundarson, Ottó Rafn Halldórsson […]
Silfurtunglið frumsýnir Saknað
Leikfélagið Silfurtunglið heldur áfram starfsemi en fyrr á þessu ári sýndi leikfélagið söngleikinn Hárið í menningarhúsinu Hofi á Akureyri og í Hörpu í Reykjavík fyrir um 19.000 áhorfendur. Á föstudag, 18. nóvember, frumsýnir Silfurtunglið nýtt frumsamið verk eftir Jón Gunnar Þórðarson „Saknað“; Tíu ár eru liðin frá hvarfi Önnu Taylor. Fjölskyldan lifir enn í þeirri […]
Fertugsafmæli Leikklúbbs Laxdæla
Leikklúbbur Laxdæla heldur uppá fertugsafmælið sitt um næstu helgi í Dalabúð í Búðardal. Í tilefni afmælisins setur félagið upp leiktirið Skóarakonan dæmalausa eftir Federico Garcia Lorca í þýðingu Geirs Kristjánssonar og í leikstjórn Margrétar Ákadóttur.Skóarakonan dæmalausa var einnig fyrsta leikritið sem félagið setti upp árið 1971.
Síðustu sýningar á Dampskipinu Ísland
Föstudaginn 18. og laugardaginn 19. nóvember verða síðsutu sýningar hjá Litla leikklúbbnum á leikritinu Dampskipið Ísland eftir Kjartan Ragnarsson í Edinborgarhúsinu á Ísafirði. Frumsýnt var 21. október og hafa nú þegar verið sýndar 8 sýningar. Leikstjóri er Halldóra Björnsdóttir.
Vertu úti! í Kópavogi
Unglingadeild Leikfélags Kópavogs frumsýnir glænýtt leikverk er nefnist Vertu úti sunnudaginn 20. nóvember kl. 20.00. Verkið er byggt á þekktum þjóðsögum og þjóðsagnaminnum. Hér segir frá systkinum sem leggja á Heiðina þegar allra veðra er von, fleiri reynast vera á sveimi á sama tíma. Fólk hittist eða fer á mis og allra bíða margvísleg örlög. […]
Mikið um að vera hjá Leikfélagi Selfoss
Það er mikið um að vera í Litla leikhúsinu við Sigtún um þessar mundir hjá Leikfélagi Selfoss. Sýningum á hinu skemmtilega barnaleikriti Rúi og Stúi er nýlokið og vill leikfélagið þakka öllum þeim sem komu á sýninguna kærlega fyrir komuna en aðsókn og viðtökur voru einstaklega góðar. En þó að sú sýning hafi runnið sitt […]
Leikfélagið Sýnir heldur aðalfund
Aðalfundur Leikfélagsins Sýnir verður haldinn miðvikudaginn 16. nóvember kl 20.00 að Sogavegi 115, 2. hæð til vinstri. Á dagskrá verða venjuleg aðalfundarstörf, þ.á.m. kosning nýrrar stjórnar en ljóst er að kosinn verður nýr formaður og nýr gjaldkeri. Einnig verða ræddar hugmyndir um starfið framundan. Gamlir jafnt sem nýir félagar velkomnir og áhugasamir eru hvattir til […]
Aukasýning á Fjalla-Eyvindi
Sökum mikillar eftirspurnar hefur leikhópurinn Aldrei óstelandi ákveðið að bæta við aukasýningu Á Fjalla-Eyvindi næstkomandi laugardag, 12.nóvember kl 20:00. Leiksýningin Fjalla-Eyvindur var frumsýnd í Norðurpólnum í janúar 2011. Sýningin hlaut einróma lof gagnrýnenda og var tilnefnd til Grímunnar 2011 sem besta sýning ársins og í kjölfarið var henni boðið á alþjóðalegu leiklistarhátíðina Lokal. Fjalla-Eyvindur er […]
Opinn dagur í Listaháskóla Íslands
Laugardaginn 12. nóvember næstkomandi verður Opinn dagur í Listaháskóla Íslands, í húsnæði skólans við Laugarnesveg 91 kl. 11 – 16. Áhugasömum er boðið að koma í skólann og kynnast starfsemi hans. Þennan dag verða nemendur og kennarar til viðtals og upplýsingagjafar og til sýnis verða inntökumöppur og kynningar á inntökuferli, verkstæðum og aðstöðu skólans.
Leikfélag Rangæinga sýnir Vodkakúrinn
Leikfélag Rangæinga frumsýnir á laugardaginn næstkomandi leikritið Vodkakúrinn eftir Kristlaugu Maríu Sigurðardóttur í leikstjórn Ólafs Jens Sigurðssonar. Um er að ræða gamanleikrit með örlítið alvarlegum undirtóni þar sem það er skoðun höfundar að megrunarkúrar virki ekki og séu frekar til að fita fólk en hitt. Þetta leikrit var frumflutt árið 2004 og voru þá leikararnir […]
Gyllti drekinn frumsýndur á Nýja sviðinu
Verðlaunaverkið Gyllti drekinn eftir þekktasta samtímaleikskáld Þjóðverja um þessar mundir, Roland Schimmelpfenning, verður frumsýnt á Nýja sviði Borgarleikhússins föstudaginn 11. nóvember næstkomandi. Gyllti drekinn var valið besta leikritið í Þýskalandi árið 2010. Verkið gerist á og í næsta nágrenni austurlensks skyndibitastaðar Gyllta drekans einhvers staðar í Evrópu. Það segir segir sárar sögur af skrítnu fólki […]
Skemmtilegir Rúar og Stúar á Selfossi
Rúi og Stúi Leikfélag SelfossLeikstjórn: F. Elli Friðjónsson Það er aðeins 45 mínutna akstur að aka frá Hafnarfirði til Selfoss, yfir Sandskeið og Hellisheiði. Það er ekki langt að fara til að sjá skemmtilega leiksýningu eins og ég og 5 ára afastelpan mín, hún Embla Sól gerðum eina kvöldstund í vikunni. Og á leiðinni er […]
Mórar og meyjar í Bæjarleikhúsinu í kvöld
Leikfélag Mosfellssveitar fagnar um þessar mundir 35 ára starfsafmæli. Af því tilefni verður haldin afmælishátíð í Bæjarleikhúsinu dagana 1.-4. nóvember. Í kvöld, þriðjudaginn 1. nóvember kl. 20, verður sýnd sýningin Mórar og meyjar – draugasögur í tali og tónum eftir Maríu Guðmundsdóttur og BirgiSigurðsson. Í sýningunni eru sviðsettar magnaðar draugasögur úr Mosfellssveitinni og af Akranesi. […]
Metaðsókn hjá Hörgdælum
Leikfélag Hörgdæla tók hina geysivinsælu sýningu Með fullri reisn aftur til sýninga nú í haust og virðist ekki hafa verið vanþörf á því, það hefur verið mjög góð aðsókn og er nú uppselt á allar sýningar sem fyrirhugaðar eru á Melum. Síðan ætla leikfélagsmenn og -konur að halda í leikferð til Reykjavíkur. Verður leikritið sýnt […]
Prenstsmiðjan Oddi gerist máttarstólpi Borgarleikhússins
Jón Ómar Erlingsson framkvæmdastjóri og Magnús Geir Þórðarson leikhússtjóri undirrituðu samstarfssamning á Stóra sviði Borgarleikhússins að viðstöddum leikurum og listrænum stjórnendum Kirsuberjagarðsins. Prentsmiðjan Oddi verður máttarstólpi Kirsuberjagarðsins, en aðrir máttarstólpar Borgarleikhússins eru Reykjavíkurborg, Valitor, VÍS, Íslandsbanki og Ölgerðin. Þrátt fyrir erfitt efnahagsástand hafa fyrirtækin í landinu staðið þétt við bakið á Borgarleikhúsinu og hafa komið […]
Himnaríki í Ölfusi
Himnaríki Leikfélag ÖlfussLeikstjóri: Gunnar Björn Guðmundsson Eftir að hafa farið villu vegar einhverstaðar á milli Hveragerðis og Vestmannaeyja í dálítinn tíma, römbuðum ég og betri helmingur minn loks inn í Ráðhúsið, þar sem Leikfélag Ölfuss sýnir þessa dagana Himnaríki eftir Árna Ibsen. Höfðu heimamenn og aðrir velunnarar nýlega slátrað einu lambi, fáeinum humarsræflum og saklausum […]
Leikfélag Rangæinga æfir Vodkakúrinn
Leikfélag Rangæinga hefur hafið æfingar á leikritinu Vodkakúrinn eftir Kristlaugu Maríu Sigurðardóttur. Leikstjóri er Ólafur Jens Sigurðsson. Þetta leikrit var frumflutt árið 2004 og voru þá leikararnir aðeins tveir, Helga Braga Jónsdóttir og Steinn Ármann Magnússon og varð verkið gríðarlega vinsælt. Þetta er í fyrsta skipti sem verkið er sett upp af áhugamannaleikfélagi og ríkir […]
Kirsuberjagarðurinn frumsýndur í Borgarleikhúsinu
Kirsuberjagarðurinn, síðasta og mest leikna leikrit Antons Tsjekhovs verður frumsýnt á Stóra sviði Borgarleikhússins föstudaginn 28. október. Verkið er af mörgum talið eitt besta leikverk allra tíma, angurvært stórvirki þar sem gaman og alvara vegast listilega á. Hilmir Snær Guðnason leikstýrir verkinu en hann hlaut Grímuverðlaun fyrir síðustu uppsetningu sína, Fjölskylduna, sem gekk tvo vetur […]
Hreinsun eftir Sofi Oksanen frumsýnt í Þjóðleikhúsinu
Þjóðleikhúsið frumsýnir leikritið Hreinsun eftir Sofi Oksanen á Stóra Sviðinu fimmtudaginn 27. október kl. 19:30. Hreinsun er einstaklega áhrifamikið verk um ást, grimmd og svik, og örvæntingarfulla baráttu manneskjunnar fyrir því að lifa af ofbeldi og niðurlægingu og verða heil að nýju. Leikstjóri er Stefán Jónsson.
Leikhúslýsing fyrir áhugaleikhús
Dagana 29. og 30. október verður haldið námskeiðið í leikhúslýsingu fyrir áhugaleikhús. Námskeiðið er ætlað fólki á öllum aldri. Á námskeiðinu eru kennd helstu atriði við hönnun og uppsetningu lýsingar fyrir leiksýningar, tónleika, ráðstefnur o.fl. Fjallað er um eðlisfræði ljóss og litafræði, hugmyndafræði lýsingar, upphengingu og staðsetningar, leikhúsljós og önnur tæki, skipulag, teikningar og fleira. […]
Allt í plati frumsýnt á Sauðárkróki
Leikfélag Sauðárkróks frumsýnir í Bifröst barnaleikritið Allt í plati eftir Þröst Guðbjartsson þann 26. október næstkomandi. Í leikritinu galdrar Lína Langsokkur til sín persónur úr þekktum barnaleikritum, t.a.m. Mikka ref, Lilla klifurmús, Karíus og Baktus, Kasper, Jesper og Jónatan og Soffíu frænku. Tónlist spilar stóran þátt í leikritinu og sér Rögnvaldur Valbergsson um undirspil. Leikstjóri […]
Eftir lokin frumsýnt í Tjarnarbíói
Þann 29. október frumsýnir leikhópurinn SuðSuðVestur leikritið Eftir lokin eftir breska leikskáldið Dennis Kelly, í þýðingu Stefáns Halls Stefánssonar og Lilju Nætur Þórarinssonar. Stefán er jafnframt leikstjóri og Lilja Nótt leikur annað hlutverki á móti Sveini Ólafi Gunnarssyni. Sýnt er í Tjarnarbíói og hefjast sýningar kl. 20.00.
Töfraflautan í Íslensku óperunni 22. október
Um komandi helgi verður merkisviðburður í sögu Íslensku óperunnar og óperuflutnings á Íslandi – en þá færir Íslenska óperan upp fyrstu óperusýningu sína í Eldborg í Hörpu. Á fjölunum í þessari fyrstu uppfærslu verður engin önnur en sjálf Töfraflautan eftir W.A. Mozart, sem hrifið hefur áhorfendur öll þau 220 ár sem liðin eru frá frumsýningu […]
Haustflensa Halaleikhópsins 21. og 23. október
Halaleikhópurinn verður með stuttverkadagskrá 21. og 23. okt. nk. sýnd verða 7 stuttverk. Þau eru 5 þættir úr Heilsugæslunni eftir Lýð Árnason, í leikstjórn Margrétar Sverrisdóttur og Odds Bjarna Þorkelssonar. Snyrting eftir Nínu Björk Jónsdóttur í leikstjórn Gunnars Gunnarssonar, Gunsó og Þanþol eftir Huldu B. Hákonardóttur líka í leikstjórn Gunsó. Halabandið flytur tónlist milli atriða.
Af unglingum og fleira fólki… á Dalvík
Leiklistarhópur unglingadeildar Dalvíkurskóla frumsýnir nýtt leikverk föstudaginn 28. október næstkomandi í Ungó. Nefnist það Af unglingum og fleira fólki… og er eftir Arnar Símonarson og leikhópinn. Dalvíkurskóli og Leikfélag Dalvíkur eru nú enn og aftur í samstarfi í tengslum við leiklistarvinnu með unglingum í Dalvíkurbyggð. Er þetta í sjöunda sinn sem samstarf af þessu tagi […]
Leikfélag Fljótsdalshéraðs frumsýnir Finnska hestinn
Föstudaginn 21. október klukkan 20 frumsýnir Leikfélag Fljótsdalshéraðs leikritið Finnski hesturinn eftir Sirkku Peltola. Leikstjóri er Ásgeir Sigurvaldason en þýðingu verksins gerði Sigurður Karlsson. Sýnt er í Valaskjálf, Egilsstöðum og eru áætlaðar 8 sýningar. Finnski hesturinn gerist í nútímanum á sveitaheimili þar sem allt er komið í niðurníðslu og fjölskyldumunstrið eitthvað orðið sérkennilegt. En amma […]
Rúi og Stúi á Selfossi
Föstudaginn 21. október frumsýnir Leikfélag Selfoss barna- og fjölskylduleikritið Rúi og Stúi eftir þá Skúla Rúnar Hilmarsson og Örn Alexandersson. Um er að ræða æsifjörugt verk þar sem fara saman spenna, gleði, grín og söngur. Leikstjóri er F. Elli Hafliðason og stýrir hann kraftmiklum hópi leikara. Með hlutverk Rúa og Stúa fara Rakel Stefánsdóttir og Álfrún Björt Agnarsdóttir […]
Lokasýning Zombíljóða til styrktar Fjölskylduhjálp Íslands
Lokasýning á Zombíljóðunum verður á Litla sviðinu föstudaginn 14. október. Það kostar ekkert inn á sýninguna en tekið verður á móti frjálsum framlögum til Fjölskylduhjálpar Íslands. Zombíljóðin eru nýtt verk úr smiðju Borgarleikhússins og Mindgroup. Á undan komu Þú ert hér og Góðir Íslendingar. Þremenningarnir sem stóðu að þeim verkum eru Jón Atli Jónasson, Jón […]
Stafræn ljósa- og leikmyndahönnun

DigiDeLight er verkefni á vegum NEATA sem verður í gangi frá nóvember 2011 til ágúst 2012. Auglýst er eftir þátttakendum frá öllum NEATA-löndunum, leikhópum sem vilja tileinka sér nýtingu starfænnar tækni í hönnun lýsinga og leikmynda. Hvert land má tilnefna einn leikhóp í verkefnið. Verkefnið endar á ráðstefnu sem verður haldin í Sønderborg í Danmörku […]
Tvö leikfélög á stuttverkahátíðinni í Færeyjum
Laugardaginn 15. október verður haldin stuttverkahátíð í Nólsoy í Færeyjum og munu tvö íslensk leikfélög taka þátt í henn, Hugleikur og Leiklistarfélag Seltjarnarness. Upphaflega stóð til að á hátíðinni yrðu auk færeyskra og íslenskra sýninga, sýningar frá Noregi en því miður sá enginn hópur þaðan sért fært að koma. Hátíðin verður í Røyndinni, leikhúsi þeirra […]
Himnaríki í Þorlákshöfn
Leikfélag Ölfuss frumsýnir leikritið Himnaríki – geðklofinn gamanleik, eftir Árna Ibsen þann 14. október í Versölum, Þorlákshöfn. Árni Ibsen var tilnefndur til Norrænu leikskáldaverðlaunanna 1996 fyrir þetta verk og hefur það verið sýnt í mörgum löndum Evrópu. Leikstjóri er Gunnar Björn Guðmundsson og með hlutverk fara Aðalsteinn Jóhannsson, Árný Leifsdóttir, Helena Helgadóttir, Ottó Rafn Halldórsson, […]
