Hugleikur sýnir Húsfélagið
Leikfélagið Hugleikur frumsýnir leikritið Húsfélagið laugardaginn 15. apríl næstkomandi. Verkið kemur sjóðheitt úr hinni afkastamiklu höfundasmiðju félagsins. Áratugum saman hafa húsfélög stigaganga A og B í Fögruhlíð 84 unnið hlið við hlið í sátt og samlyndi en aðskilin þó. Nú er kominn tími til að sameina þau í eitt og þá er friðurinn úti. Erjur, forboðnar ástir, gönguhópar, silfurskottur, brask, slúður og, já, Brennu-Njálssaga, ásamt öllum þeim vandamálum sem við mætum í samneyti við nágranna fléttast hér saman í sprenghlægilega satíru sem enginn má missa af. Gunnar Björn Guðmundsson leikstýrir verkinu en hann á farsælan feril að baki og hefur...
Read More


