Author: lensherra

Sýningar á Út í kött! hefjast að nýju

Sýningar Lýðveldisleikhússins á barnaleikritinu Út í kött! hefjast að nýju um helgina í Gerðubergi. Út í kött! er nýr dans og söngleikur fyrir börn á öllum aldri sem var frumsýndur síðastliðið vor. Verkið er ævintýraleikur og fjallar um tvo krakka og ferðalag þeirra um tölvu og ævintýraheima. Sýningarnar verða laugardaginn 26. september og sunnudaginn 27. september og hefjast kl. 14. Leikritið fjallar um strákinn Erp sem neyðist til að taka á móti dóttur vinafólks foreldra sinna inn í herbergið sitt. Helga Soffía er hress og hraðlýgin og kann frá mörgu undarlegu að segja. Erpur á erfitt með að sætta...

Read More

Aðalfundur Leikfélags Hafnarfjarðar

Næstkomandi laugardag, 26. september klukkan 15:00, verður aðalfundur Leikfélags Hafnarfjarðar haldinn í gamla Lækjarskóla í Hafnarfirði. Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf, kosning stjórnar, farið yfir reikninga félagsins og áætlun um vetrarstarfið framundan kynnt. Sjáumst hress á laugardaginn !Stjórn Leikfélags Hafnarfjarðar...

Read More

Rúi og Stúi á Sauðárkróki

Leikfélag Sauðárkróks er komið á fullt í æfingar á barnaleikritinu Rúi og Stúi eftir þá Skúla Rúnar Hilmarsson og Örn Alexandersson. Æfingar ganga ljómandi vel, enda hinn þaulreyndi leikstjóri Þröstur Guðbjartsson við stjórnvölinn og er stefnan sett á frumsýningu 25. október.  Í þessu bráðskemmtilega verki fá áhorfendur að kynnast félögunum Rúa og Stúa og vélinni þeirra stórkostlegu. Vélin er þeim hæfileikum gædd að hún leysir hvaða verkefni sem er, ja alveg þangað til hún klikkar.  Glöggum áhorfendum gæti dottið í hug að leikritið hefði skírskotun til núverandi efnahagsvanda, en því miður gott fólk – þetta er bara hrein skemmtun!...

Read More

Heima er best í Borgarleikhúsinu

Fyrsta verkið sem frumsýnt er á Nýja sviði Borgarleikhússins í ár er verkið Heima er best eftir írska leikskáldið Enda Walsh. Jón Páll Eyjólfsson leikstýrir verkinu og leikarar eru Þröstur Leó Gunnarsson, Guðjón Davíð Karlsson, Jörundur Ragnarsson og Dóra Jóhannsdóttir. Verkið fjallar um föður sem hefur flúið frá Írlandi með tvo syni sína sem hann hefur lokað  inni í íbúð þeirra í hart nær tvo áratugi. Þar hefur hann neytt þá til að leika sama leikritið aftur og aftur til að breyta minningum þeirra um óhugnanlega atburði í sögu fjölskyldunnar. Leikritinu leikstýrir faðirinn, sem Þröstur Leó leikur,  með harðri...

Read More

Námskeið í leikhúslýsingu

Námskeið í leikhúslýsingu hefst laugardaginn 26. september á vegum Raftækniskólans. Námskeiðið er ætlað fólki á öllum aldri. Á námskeiðinu eru kennd helstu atriði við hönnun og uppsetningu lýsingar fyrir leiksýningar, tónleika, ráðstefnur o.fl. Fjallað er um eðlisfræði ljóss og litafræði, hugmyndafræði lýsingar, upphengingu og staðsetningar, leikhúsljós og önnur tæki, skipulag, teikningar og fleira. Kennari: Benedikt Axelsson lýsingahönnuðurTími: Laugardagana 26. sept., 3. og 10. okt. frá kl. 9:00 – 13:00.Námskeiðsgjald: 23.000 kr.Staðsetning: Tækniskólinn, Raftækniskólinn...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert