Author: lensherra

Íslensk-Færeysk leiklistarhátíð á Seltjarnarnesi

Laugardaginn 10. október verður haldin Margt Smátt stuttverkahátíð. Að þessu sinni verður hún reyndar ekki í Borgarleikhúsinu, heldur í Félagsheimili Seltjarnarness. Og það er svo sannarlega ekki það eina óvenjulega við þessa hátíð. Stuttverkamenning íslenskra áhugaleikfélaga hefur nefnilega hafið útrás. Færeyskt áhugaleikhúsfólk hefur um nokkurt skeið fylgst með stuttverkamenningunni hér og dreymt um að taka þátt. Afraksturinn verður á boðstólum á hátíðinni, en þá mæta færeyskir áhugaleikarar með fimm frumsamin stuttverk. Auk þeirra verða á boðstólum fimmtán íslensk stuttverk frá sex leikfélögum. Og þar að auki munu sirkuslistamenn úr leikfélagi Mosfellsveitar setja svip á hátíðina og heimamenn í Leiklistarfélagi...

Read More

Fólkið í blokkinni æft á Húsavík

Leikfélag Húsavíkur æfir nú á haustdögum leikritið Fólkið í blokkinni eftir Ólaf Hauk Símonarson. Oddur Bjarni Þorkelsson leikstýrir. Með helstu hlutverk fara þau Ármann Örn Gunnlaugsson, Helga Sigurjónsdóttir og Ingvar Björn Guðlaugsson. Einnig taka margir af reyndari leikurum félagsins þátt í sýningunni, þau Sigurður Illugason, Dóra Ármannsdóttir, Gunnar Jóhannsson og Katrín Ragnarsdóttir. Áhugi ungs fólks fyrir þátttöku í sýningunni var það mikill að leikstjórinn ákvað að hafa níu manna kór með. Leikfélag Húsavíkur þarf því ekki að hafa áhyggjur af endurnýjun í félaginu. Fólkið í blokkinni er hjartnæm saga af skrautlegu lífi fólks í blokk í Reykjavík. Þar býr...

Read More

Aðalfundur Leikfélags Hörgdæla

Hið geysivinsæla Leikfélag Hörgdæla heldur aðalfund sinn á Melum, Hörgárdal, þriðju­dags­kv. 6. okt. nk. kl. 20:30. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf. Rætt verður um starfið á komandi vetri (leikritaval og fleira). Allir áhugasamir er hvattir til að mæta og hafa þannig áhrif á stefnu og starf félagsins.Mætið tímanlega til að forðast biðraðir! Nýir félagar...

Read More

Nemendaleikhúsið í Smiðjunni

Æfingar eru nú í fullum gangi hjá útskriftarárgangi leiklistardeildar Listaháskóla Íslands, en starfsemi Nemendaleikhúsins 2009-2010 er hafin. Nemendaleikhúsið hefur nú fengið aðsetur sitt í Smiðjunni á Sölvhólsgötu en í vetur verða sýndar þrjár sýningar í Smiðjunni. Fyrsta verkefni vetrarins er hin magnaða háðsádeila Eftirlitsmaðurinn eftir Nikolai Gogol í nýrri þýðingu Bjarna Jónssonar. Gogol hefði orðið 200 ára í ár en er svo sannarlega sígildur í bestu merkingu þess orðs. Hann er talinn til höfuðskálda Rússa og leikritið Eftirlitsmaðurinn er álitið þjóðargersemi þar í landi. Þekktasta skáldsaga hans er vafalaust Dauðar sálir. Leikritið Eftirlitsmaðurinn gerist í lítill borg þar sem spillingin...

Read More

Allra meina bót í Hveragerði

Nú kreppist kreppan enn meir og menn þurfa að skera, skera bæði UPP og niður í samfélaginu. Við í Leikfélagi Hveragerðis viljum sem minnst minnast á svoleiðis fréttir og umtal en í þetta skiptið verður ekki hjá því komist að mikið verður skorið UPP á sviðinu okkar hér í Hveragerði.   Þá er átt við gamanleikritið Allra meina bót eftir Jónas og Jón Múla Árnasyni, sem í leikstjórn heiðursfélagans Sigurgeirs Hilmars Friðþjófssonar, mun vekja gleði og kátínu hjá hverjum manni. Verkið gerist á sjúkrastofu þar sem ríkjum ræður ókrýndur konungur allra skurðlækna, Dr. Svendsen og tekur hann á móti...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert